Mánaskál

13.12.2007 15:01

Komin með hrossasóttina

Ég er alveg að deyja úr hrossasótt núna! Lilja vinkona hringdi í mig í gær og við mæltum okkur mót í hesthúsinu í næstu viku. Við þetta hestatal fór allt af stað í hausnum á mér og ég er að deyja.. mig langar svo að taka inn!! Ég er alvarlega að spá í að reyna að finna mér pláss og taka Byltingu inn. Ég hugsa um hross núna allan sólarhringinn og er að verða ég sjálf aftur held ég.. ég hlít að hafa legið í dvala. Það eru að koma jól.. og það þýðir bara eitt.. að maður á að taka inn hestana sína og byrja að ríða út!

Ég verð bara að skella inn myndum af primadonnunni minni..




í september 2007


Ég var nú líka svona sæt þegar ég kom fyrst á hús

Ég þarf eitthvað að finna út úr þessu.. ég bara get varla einbeitt mér.. mig langar svo að fara að dunda mér í hesthúsinu, ríða út og svona.. ohhhh erfitt líf. 



Ég var að setja inn gamlar myndir af Mána mínum.. vá hvað ég sakna hans. Mig vantar svo rosalega annan svona Mána. Mér finnst æðislegt að skoða myndirnar af krökkunum að hnoðast á klárnum. Ég vona að ég eignist aftur svona hross.

Flettingar í dag: 36
Gestir í dag: 10
Flettingar í gær: 838
Gestir í gær: 30
Samtals flettingar: 189279
Samtals gestir: 25643
Tölur uppfærðar: 19.5.2024 03:02:29

Eldra efni

Nafn:

Kolbrún Á. Guðnadóttir

Tenglar