Mánaskál |
|
03.05.2008 12:26Kominn tími á blogg.. mikið að gerast!Ég er ekki alveg að standa mig í bloggheimum. Ég hef haft svo mikið að gera.. aðallega þó það sem ég vil helst gera. Ég er búin að vera dugleg í hesthúsinu undanfarið en ég þarf að fara að gefa mínum eigin hrossum smá tíma! Ég er farin að ríða svolítið út með Lilju og ríð þá auðvitað bara þjálfunarhrossunum hennar. Ég held að ég fari að taka prósentur hehe. Ég er búin að fara á hundavaði yfir líðandi stund þar sem ég er að leysa af í þjónustuveri bankans.. vá hvað það hringja margir inn! En svona er þetta.. ég kom þá allavega einhverju frá mér. Skrifað af Kolla 23.04.2008 20:17Myndir, Mánaskál, Myrkvi, DrungiTíminn líður og líður og það verður komið sumar áður en maður veit af. Skrifað af Kolla 15.04.2008 14:48Myndir af MyrkvaÍ dag er fimmtudagur og það þýðir að ég á gegningarnar í hesthúsinu. Ég byrjaði á að leggja á Myrvka og teyma hann úti í lónseringargerði. Hann lónseraðist vel og hrekkti ekki hnakkinn, honum virðist vera alveg sama. Hann rak meira að segja ístöðin og hnakkinn utan í hliðið þegar við lögðum af stað og hann blikkaði ekki. Svona er þetta skemmtilegt, ég fer hraðar í allt með Myrkva, stærri skref heldur en með Byltingu þar sem ég er að læra inn á hvað ég má leyfa mér að fara hratt í þetta. Folinn er ekki hræddur við neitt og meira að segja aðeins of frekur fyrir minn smekk. Hann veit sko nákvæmlega hvar ég geymi kúlurnar góðu og honum finnst hann eiga að fá þær alltaf og endalaust. Hann kemst nú ekki upp með allt hjá mér enda væri hann þá fljótur að ganga yfir mig á ójárnuðum hófunum! Já.. hann er enn ójárnaður en er sem betur fer ekki orðinn sárfættur. Ég sá að Fannar var að járna hjá Lilju í gær svo ég vona að biðlistinn sé að styttast. Skrifað af Kolla 12.04.2008 23:50Myndir af Ótta
Ég er líka með nýjar myndir af Byltingu en ég er orðin uppgefin á þessu tölvustússi, ég hendi inn fleiri myndum við tækifæri. Núna er bara einn vinnudagur eftir af helginni.. vííí.. get ekki beðið eftir að það komi mánudagur Svona er þetta bara.. ég get ekki beðið eftir að hætta þessu helgarvinnustússi! Skrifað af Kolla 11.04.2008 10:53Kominn tími á bloggÞað eru bara kröfur á mann.. verið að heimta myndir og fleira.. Silla mín.. hvar er nú heimasíðan þín mér hefur allavega ekki verið boðið að kíkja á hana Ég segi nú bara svona.. allt í góðu hérna! Lífið gengur sinn vanagang. Tryppin dafna vel á húsi og verða "mannalegri" með hverjum deginum. Ég er farin að lónsera Myrkva sem gengur mjög vel og leggja á hann hnakk líka. Hann hefur ekkert sýnt eða gert og tekur þessu öllu með jafnaðargeði. Fyndið samt hvað þau eru ólík "systkinin" Hún er ákveðin en allt öðruvísi en hann samt því hann er frekar frekur en ákveðinn. Hún hefur alltaf staðið eins og stytta á staurnum fyrir utan húsið en hann er meira að vesenast. Honum finnst þetta algjörlega tilgangslaust og sýnir það með því að iða, ganga fram og til baka og krafsa. Aldrei hreyfist hún. Ég get skilið hana eftir á stéttinni með hnakk og beisli og tauminn hangandi á öðru eyranum.. og ekki haggast hún. Hann hefur sko ekki þolinmæði í svona. Svo er líka munur á þeim í lónseringargerðinu, hann reynir að stoppa og ath hvort hann komist ekki upp með það, hann veit líka hvar hliðið er það er sem hringavitleysan byrjar og endar.. aldrei stoppar hún, heldur bara áfram og bætir ferðina ef henni er misboðið. Samt er hann svo auðveldur og meðfærilegur og ég get ekkert kvartað, hann er bara önnur týpa en hún. Mér finnst rosalega gaman að fá tækifæri til að ganga í gegn um allt ferilið aftur og núna með hross sem hagar sér öðruvísi. Það er rosalega gaman að bera þau saman. Þau eiga auðvitað margt sameiginlegt, þau eru t.d. stilltari en flest tryppi á 4. vetur held ég, ég er nú bara lítil stelpa við hliðina á þeim og þau kæmust sjálfsagt upp með ýmislegt ef þau myndu reyna.. þau bara reyna ekkert, eru alveg eins og hugur manns. Þeim semur líka vel, eru óttalegir félagar og sæt saman í stíunni. Bylting lætur nú samt ekki bjóða sér hvað sem er og það er ferlega skemmtilegt að fylgjast með henni ef hún er sett inn síðust! Hún verður sko ekki ánægð þá daman! Hún tapa sér sko algjörlega og hleypur um í rassaköstum og látum.. ég verð að ná þessu á video við tækifæri! Talandi um myndir.. bara fyrir þig Silla hehe.. Ég tók myndir af Ótta síðustu helgi en þær eru enn í myndavélinni.. svo ég noti sömu afsökunina eina ferðina enn þá er tölvan mín biluð og það tekur SVO langann tíma að hlaða í hana myndum.. en þetta er allt að koma. Ég tók nú víst nokkrar myndir á litlu vélina og hér eru þær.. Ótti er voðalega líkur bræðrum sínum nema að hann er enn stærri og þreknari. Mér finnst hann voðalega sætur með langan háls en hausinn er dálítið Myrkvalegur. Hann er með þykkt og mikið tívskipt fax. Ég á nú ekki von á að það verði sítt en Myrkvi kom mér t.d. á óvart því faxið á honum er ekki sítt en það er þykkt og mikið. Ég sé nú pínu eftir að hafa ekki látið taka mynd af mér við hliðina á "folaldinu" mínu svo það sjáist vel hvað hann er stór og myndarlegur. Fyrst ég er komin af stað í myndunum þá er í lagi að setja inn myndir af okkur systrunum.. svona erum við nú fínar saman.. Svona erum við nú endalaust dannaðar Ég átti hesthúsið í gær og fór uppeftir beint eftir vinnu. Það eru orðnir svon margir graðhestar og fyrrverandi graðhestar í húsinu svo það þurfti að setja út í heilum 4 hollum. Það fór dágóður tími í þetta en það var gott verður og ég skemmti mér vel. Ég lagði hnakk á Myrkva og rölti út í gerði með hann en þá var það upptekið.. jæja gengur betur næst. Daman mín slapp rekar ódýrt líka í gær en þau þurfu svo bæði að éta með mélin og láta sig hafa það sem mér datt í hug. T.d. er bleiki faxburstinn sem ég fékk frá Svenna mjög góður Eftir að ég kláraði í hesthúsinu sótti ég Skellu mína og fór með hana góðan hring við Rauðavatn. Raggi hefur í nógu að snúast þessa dagana svo mér datt í hug að prinsessan mín væri pínulítið utangarðs núna. Hún skemmti sér auðvitað konunglega og mér veitti ekki af hreyfingunni svo þetta var fínt. Núna er að taka við vinnuhelgi ég hlakka orðið mikið til þegar ég hætti þessu helgarvinnustússi, ég er sko alveg búin að fá nóg.. og svo er líka að koma sumar og þá á maður ekki að hanga í Reykjavík um helgar.. maður á að fara í sveitina Við erum að fara að girða og allt.. Atli er búinn að gefa mér nánast hvert snitti í fyrstu girðinguna mína svo núna fara "tömdu" hrossin mín í girðingu á Mánaskál og verða þar allavega í sumar. Mig langar alveg rosalega að hafa tamið hross fyrir mig fyrir austan í sumar líka og ég ætla að reyna að redda mér lánshrossi í það. Ég held að það væri algjör draumur að geta riðið út í góða veðrinu á Klaustri á meðan Atli dundar í því sem honum finnst skemmtilegast Ohh.. ég bara bíð eftir sumrinu.. það má alveg fara að koma. Skrifað af Kolla 08.04.2008 21:53Tamningar og Party.. Ása taktu eftir.. eitthvað annað en hestar :)Jæja tamningar ganga sinn vanagang, hægt og bítandi.. þetta kemur allt með kalda vatninu. Lilja kom og aðstoðaði mig í gær. Við fórum loksins af stéttinni og út í gerði. Þetta gekk nú allt vel held ég en ég þarf að æfa jafnvægið og svo er ágætt að muna eftir að herða gjörðina! Ég reyni að muna það næst, ekki það að það slasaðist nú enginn í þetta skiptið en ef það hefðu verið einhverjir stælar í dömunni þá hefði ég nú geta týnst. Myrkvi er stilltur á húsi enda var engin hætta á öðru. Hann er rétt að byrja að kynnast beislinu og svo lónseraði ég hann í fyrsta skipti í dag. Sissi kom í hesthúsið til mín og rölti með mér út í lónseringargerði svona ef hann skyldi ekki teymast alla leið með góðu móti. Þetta fór auðvitað allt vel fram og ekki hægt að kvarta undan neinu. Hann skildi samt ekki alveg afhverju ég var með þessa stæla við hann, hann er auðvitað bara of spakur á köflum Fyrsta kennslustund var nú bara stutt og laggóð og ég held að hann hafi áttað sig á því um hvað málið snérist. Ég setti svo bara hrossin út og fékk aðstoð við að moka. Fínt að hafa svona vinnumann með sér, vertu velkominn any time Sissi minn Síðasta helgi var ósköp fín. Ég fór á laugardaginn að Baugsstöðum að kíkja á Ótta minn. Hann er auðvitað bara enn brúnn og alveg jafn stór og síðast Hann virðist hafa það voða gott í sveitinni hjá Sjöfn og Gumma en hann er auðvitað langstyggastur enda búinn að vera svo stutt á húsi. Hann sá líka greinilega ekki oft manneskjur síðan hann fæddist.. það munar sko helling! Ég tók nokkrar myndir af kauða sem var nú ekkert að sýna sig fyrir mig enda fer hann bara út til að leika sér og éta meira.. ekki til að módelast. Ég á eftir að tæma myndavélina mína en ég skelli inn myndum við tækifæri. Svo var ég reyndar búin að setja inn einhverjar myndir sem áttu að rata inn á síðuna mína en svo man ég ekkert lengur hvað það var!.. ástæðan fyrir þessu er kannski sú að 7. apríl rann upp í gær! Við Sjöfn tókum Ótta á múl og hann breyttist heilmikið við það, hann virðist hafa lært aðeins á múlinn eftir að hann var tekinn í Þorlákshöfn og fluttur á Baugsstaði. Hann fær að vera með múlinn í smá tíma og Sjöfn og Gummi ætla að reyna að tala aðeins við hann. Hann verður örugglega fljótur að átta sig fyrst hann er skyldur Myrkva og Drunga.. þeir eru sko ekki styggir. Á laugardagskvöld var ég með smá party þar sem afmælið mitt var að skella á. Frænkurnar komu auðvitað og svo Konni hennar Ásu og Sissi. Svo var auðvitað ekki hægt að hafa party án Svenna sem mætti að sjálfsögðu beint eftir vaktina. Við spiluðum póker.. og ég vann.. þó mig gruni að einhver hafi fiffað það örlítið.. og svo var farið í bæinn. Þetta var bara rosalega vel heppnað og mjög skemmtilegt kvöld. Sunnudagurinn var ansi þunnur hjá mér og ég var á leið í barnaafmæli! Sandra Diljá litla frænka á auðvitað afmæli 8. apríl þó ég hafi beðið um hana í afmælisgjöf Við Atli skelltum okkur í afmælið til Söndru en það gekk ekki alveg áfallalaust fyrir sig! Á leiðinni í afmælið var keyrt aftan á okkur á ljósum! Hvað er málið.. það var bakkað á mig um daginn og ég fékk greitt út úr tryggingnum á föstudaginn og á sunnudegi er aftur búið að keyra á mig! Ég held að ég verði að ganga frá líftryggingunni minni! Þetta var nú enginn hörku árekstur en það er sama.. frekar fyndið bara! Ég átti afmæli í gær.. gamla bara orðin 27 ára og foreldrar mínir hafa stórar áhyggjur af því að ég sé ekki gift og komin með börn! Svo segir mamma að pabbi hafi áhyggjur en svo held ég að það sé bara mamma sem hafi áhyggjurnar en reynir að koma því yfir á pabba Ég ætla nú bara að vera róleg yfir þessu aðeins lengur.. á meðan ég er sátt þá hlítur þetta að vera í góðu lagi. Þegar ég kom heim til Atla beið mín pakkaflóð. Hann og Svenni fóru í verslunarleiðangur og höfðu fyrir því að pakka herlegheitunum inn.. og svo voru þessar elskur líka að elda fyrir mig! Það veitti svosum ekki af að hressa mig við því svei mér þá ég held að ég hafi vaknað þuglynd þann 7. apríl... eða kannski var þetta bara aldurinn. Ég fékk semsagt girðingu í afmælisgjöf og geri aðrir betur, vír, einangrarar, hlið og fleira.. og svo m.a. rosa flottur barbie-bleikur hestabusti frá Svenna Hvað getur maður beðið um fleira?? Ekkert held ég bara. Eins og líklega flestir vissu þá átti Raggi "minn" von á barni og viti menn.. ég fékk drenginn í "afmælisgjöf". Ég held að það sé á hreinu að Raggi gleymir aldrei afmælinu mínu héðan í frá. Til hamingju með erfingjann Raggi ég er nú örugglega að gleyma einhverju en það kemur þá bara seinna og eitthvað af myndum líka. Skrifað af Kolla 04.04.2008 10:03Bloggið var bilað.. ég er alveg að standa migJæja núna var bloggkerfið að stíða mér, það var verið að setja upp nýja útgáfu og ég bara komst ekki inn til að blogga. Ég er búin að finna út úr þessu núna, þarf víst að fara inn í gegn um aðra síðu. Síðasta færsla var um Ótta Eiðsson, hann er á Baugsstöðum og hefur það gott. Sjöfn.. ef þú ert að fylgjast með þá ertu ekki enn búin að senda mér reikningsnúmer í sms svo ég geti greitt fyrir fóðrunina Ég er í fríi um helgina og ætla að reyna að fara austur að kíkja á hann á sunnudaginn. Það þarf að sýna honum spottann góða og snerta fætur og svona. Eins þarf hann að fá ormalyf. Af tamningum er allt gott að frétta, það gengur vel með Byltingu. Lilja teymdi hana með sér í fyrradag og það gekk eins og í sögu. Lilja kom svo og leiðbeindi okkur aðeins í gær við hesthúsið. Þetta gengur vel, hryssan er sko ekki vitlaus. Hún er að byrja að átta sig á beygjunum og hvernig þetta allt virkar. Það var ótrúlega skemmtilegt í gær þegar ég gat stýrt henni þangað sem ég ætlaði að fara og hún aktaði það vel, hún var að skilja til hvers var ætlast af henni og framkvæmdi það. Þetta var í augnablik eins og ég væri á tömdu hrossi Það er nú gott að hafa svona Lilju sér til aðstoðar sem gefur manni fínar leiðbeiningar. Ég tími nefnilega ekki að láta hryssuna frá mér, ég get gert þetta sjálf þar sem hún er svo stabíl, ég þarf bara smá aðstoð. Það styttist í það að maður fari að ríða henni fyrir alvöru.. vá hvað ég hlakka til! Myrkvi Kjalarsson stóri bróðir Ótta og Drunga kom í bæinn á sunnudaginn síðasta. Ég vildi fá hann suður og var svo heppin að fá auka pláss í húsinu hjá okkur Byltingu. Ég bað Kristján að láta mig vita með ferð suður, sem hann gerði, en með mjög litlum fyrirvara! Ég hringdi í Signýju og hún og Magnús gátu reddað þessu fyrir mig. Þau sóttu folann út í Laxárdal og keyrðu hann heim að Syðra Hóli þar sem hann beið eina nótt á húsi. Mikið er gott að hafa fólk að sem er tilbúið að hlaupa undir með manni þegar manni vantar aðstoð. Ég vona svo sannanlega að ég geti aðstoðað þau sjálf seinna. Takk fyrir mig! Mín vandræði með Myrkva voru fleiri. Ég var að vinna síðustu helgi og gat því ekki tekið á móti honum þegar hann kom í bæinn. Atli ætlaði að bjarga þessu en var svo kallaður út í vinnu, þá vandaðist málið. Lilja var í Víðidal með krakkana á æskunni og hestinum og hver átti að taka á móti honum. Nú var kominn tími til að Raggi hugsaði um folann sinn! Ég hringdi í Ragga og bað hann að redda þessu sem var ekkert mál en hann vissi ekki einu sinni hvar hesthúsið mitt var. Bíllinn kom svo rétt fyrir níu og Raggi tók á móti Myrkva og henti honum út í gerði og sótti mig svo í vinnuna. Þegar við komum að hesthúsinu var fólk í gerðinu mínu að skoða folann. Þau vorkenndu honum svo mikið að vera aleinn úti og slökkt í húsinu og enginn við. Það er gott að vita til þess að fólk spáir í aðra í kring um sig. Ég gekk beint að folanum og heilsaði upp á hann. Hann er alltaf jafn ljúfur. Ég fór svo inn í hús til að sækja múl á hann en hann kom bara á eftir mér inn í hús! Ég opnaði stíuna hennar Byltingar og hann labbaði inn og byrjaði að éta! Merkilegur foli, bara alveg eins og taminn! Bylting er auðvitað prinsessa og hefur átt sína stíu út af fyrir sig. Hún hefur greinilega haft það of gott því Myrkvi fékk ekki fínar móttökur hjá dömunni! Hún var sko ekki sátt við að það kæmi einhver inn til hennar og hvað þá að hann ætlaði að fá sér hey og vatn! Hún var ótrúlega leiðinleg við hann svo ég þorði ekki annað en að koma aftur í hesthúsið fyrir svefninn og kíkja á stemmninguna. Þetta endaði svo að ég batt Byltingu og með vatn í fóðurdallinum og Myrkvi fékk hinn stallinn og nóg að éta. Fýlusvipurinn á hryssunni var algjört met! Hún var svo hneyksluð að það stóð utan á henni! Hún var búin að éta heila kvöldgjöf og var því ekkert að deyja úr hungri. Svona erum "við" eins og Atli segir alltaf.. baneitraðar! Í dag eru þau perluvinir þó svo að Bylting sé ákveðnari og stjórni. Þau hneggjast á milli ef annað er tekið út.. voðalega sætir vinir. Þau halda hópinn í gerðinu og Myrkvi getur bara ekki verið án hennar held ég. Ég tók Byltingu upp á stétt í gær og lagði á hana, á meðan hékk Myrkvi við hliðið. Hann ætlaði að fylgja henni inn en fékk ekki svo hann bara beið og fylgdist með. Ég er byrjuð að taka upp fætur á Myrkva og núna fer ég að dunda meira í honum. Hann verður járnaður og svo er það bara skóli lífsins. Ég stefni nú ekki á að gera hann reiðfærann en ég ætla að fara á bak og kenna honum eitthvað áður en hann fer út aftur. Bylting er aftur á móti mun þroskaðri og vöðvafylltari og ég treysti henni í mikið meira. Hún er nú líka bara að fitna í góðærinu í hesthúsinu. Það fær nú kannski að renna af henni aftur þegar ég fer að ríða henni fyrir alvöru. ... í vinnslu Skrifað af Kolla 27.03.2008 09:09Ótti EiðssonurÉg gleymdi alveg að segja Óttasöguna síðast. Ég fékk nefnilega sms frá Lilju á páskadag sem sagði að Ótti væri kominn á hús. Ég hringdi þá í Lilju og vildi vita hvar og hvenær og hvernig hún vissi það, enginn hafði sagt mér neitt. Lilja hitti þá víst mann í Gusti sem var að taka inn folöld og fór með þau í Þorlákshöfn og í þeim hóp var víst eitt fyrir einhverja konu í Reykjavík (síðan hvenær er ég kona.. kornung stúlkan!) Lilju fer að gruna eitthvað og pumpar karlinn og kemst að því hvar folaldið var og undan hverju það væri. Þá var þetta bara hann Ótti minn og einhverra hluta vegna hélt maðurinn að þessi foli væri falur fyrir háar fjárhæðir og eitthvað. Ekki það að hann er alveg kannski falur fyrir háar fjárhæðir.. hver er það ekki.. en ég var aldrei búin að verðleggja folann upp úr öllu valdi Furðulegt allt saman. Ég fékk svo loksins símtal á annan í páskum og mér var sagt hvar folaldið væri og að ég ætti að sækja það. Ótti átti auðvitað að fara að Baugsstöðum þar sem það er mánuður síðan ég missti plássið hans í Gusti. Ég fékk lánaða kerru hjá Gumma og Sjöfn og fór austur með Atla og Sissa í gær að flytja Ótta á milli. Kerran var fyrst sótt við Eyrarbakka og svo farið í Höfnina að sækja folann. Mér hálfbrá þegar ég kom inn í húsið og spurði hvar folaldið mitt væri. Mér var bent á brúnan fola inn í einni stíunni.. þetta var sko ekkert folald heldur foli! Úps.. og ég sem gerði aldrei ráð fyrir að ég myndi ekki ráða við hann.. hver ræður ekki við eitt folald! Svo hafa mín folöld öll verið mannvön og ekkert vandamál með þau.. en karlinn talaði endalaust um það hvað það yrði erfitt að mýla þennan og ég ætti að passa að hann myndi ekki berja mig! Hann væri sko snarvitlaus af styggð. Ég spurði manninn hvort hann væri að grínast.. tvisvar! Hann var víst aldrei að grínast en ég er ekki viss um að hann hafi vitað að hrossin mín láta ekki svoleiðis Við fórum með tamið hross inn í stíuna til hans og króuðum hann af í horni, þar var hann mýldur og svo teymdur á eftir hrossinu upp á kerru. Allt gekk eins og í sögu. Fyrir algjöran aulaskap þá gleymdi ég að taka með tryppamúl og gleymdi svo líka að fá múl hjá Sjöfn. Honum var því sleppt þegar hann kom upp á kerruna og ég treysti bara á að það væri hægt að bakka upp að húsi með hann að Baugsstöðum. Þegar við komum þangað var hann mýldur á kerrunni aftur, og hann var nú bara ekki erfiðari eða hættulegri en það að ég gerið það bara alein. Ég sá meira að segja voðalega lítið því það var myrkur úti og á kerrunni, svartur foli og útiljósið skein framan í mig. Ótti var svo bara teymdur af kerrunni og inn í hús eftir löngum gangi og inn í stíu. Lilju hafði verið sagt að hann væri stór, og ég sá að hann var stór í Þorlákshöfn en ég hélt að það væri meira heimskan í mér að fatta ekki að það væri ekki nóvember.. auðvitað væri hann stærri en folöldin eru vanalega því hann er nú bara að verða veturgamall. En þegar hann gekk inn í stíuna á Baugsstöðum þá datt af mér andlitið, hann var lang lang stæðstur. Hann er sko nokkrum númerum stærri en hin folöldin.. bara fyndið. Hann var líka bara voðalega rólegur yfir þessu, mér líst bara vel á hann. Hann verður ekki lengi að spekjast og átta sig á lífinu og tilverunni. Peran fór í folaldahúsinu og því var erfitt að taka myndir í myrkrinu. Ég klikkaði alveg á því að gera það í Þorlákshöfn. Ég tók þó einhverjar og hér er eitthvað, þó það sé varla nothæft. Ótrúlega mikill stærðarmunur í stíunni. Ótti er þessi stóri brúni. Heilsar upp á Bófa Ég er að vinna um helgina og fer því bara í næstu viku austur til að kíkja betur á hann og byrja að dúllast í honum. 24.03.2008 20:54Páskar 2008Skírdagur fór í hestastúss hjá mér þar sem Atli var að vinna. Ég lagði á Byltingu og Lilja kom svo og aðstoðaði mig. Ég fór á bak og Lilja hafði taum í hryssunni til að byrja með en svo tók hún hann bara af mér og ég þurfti bara að redda mér 19.03.2008 10:00Síðasti vinnudagur fyrir páskaVá hvað ég er glöð að páskafríið er að byrja! Þessi tími er alltaf jafn frábær.. vorfílingurinn er farinn að kræla á sér og svo veit ég til þess að Tjaldurinn er farinn að sjást svo það er pottþétt að vorið er á næsta leyti. Ég fór í hesthúsið í gærkvöldi til að dunda mér. Ylfa "smáraútibúsgella" og Konni hennar.. haha nóg af þessum Konnum í kring um mig.. komu ríðandi til mín frá Heimsenda. Ylfa var á rauðblesóttri hryssu sem mig langaði að skoða. Daman er til sölu og ég get auðvitað lengi á mig blómum bætt :) ég á nú líka allt of lítið af hrossum finnst mér, ég á ekki einu sinni eitt tamið.. ég má sko alveg kaupa mér hest Ég ætla að kíkja á hryssuna aftur eftir páska.
18.03.2008 09:20Árshátíðin búin, að koma páskarJæja nú hef ég ekki bloggað í nokkra daga. Í síðustu viku dundaði ég bara áfram í hryssunni, steig í ístöðin og djöflaðist. Ég hafði það nú aldrei að setjast alveg í hnakkinn þó ég væri komin á bak. Hrossin í næsta gerði voru úti og þau eru svo uppáþrengjandi að ég hef bara ekki kynnst öðru eins! Þau hamast endalaust í snýkjugangi og frekju, naga reiðtygin og hamast í merinni.. bara óþolandi hross.. og það er ekki einu sinni hægt að hrekja þau í burtu.. urrr Á miðvikudaginn lét ég það allavega vera að setjast í hnakkinn þar sem hrossin voru að gera hryssuna mjög pirraða, hún var auðvitað bundin mjög stutt á gerðið og svo fékk hún engann frið. Svanur var í hesthúsinu á sama tíma í þetta skiptið og var að baða hrossin sín. Mér fannst fínt að Bylting sæi slönguna áður en ég færi að baða hana og henni var alveg sama eftir smá stund.. þangað til Svanur byrjaði að baða hana! Hún flogaði eitthvað smá en svo stóð hún þetta bara af sér þó henni væri alls ekki sama! Ég gerði svo ekkert um helgina í hrossamálum. Á fimmtudaginn var Bingó í Gusti og ég mætti með Ágúst og Söndru.. og hin börnin.. mömmu og Önnu frænku hehe. Við fengum smá vinninga en krakkarnir fengu samt ekki páskaegg. Ég var búin að gera samning við alla, ef þau fengju hestavinning myndi ég skipta við þau á páskaeggi. Ég taldi mig eiga hesthúsið á fimmtudögum en þegar ég kom uppeftir eftir Bingó þá var Vilhjálmur búinn að gera allt. Ég þurfti að vinna óvænt á föstudag þó ég hefði verið búin að fá frí, það var því ekkert hrossast það kvöldið. Á laugardag var auðvitað árshátíð Kaupþings. Ég mætti í klippingu kl. hálf ellefu. Það eina sem ég bað um væri að ég myndi halda síddinni! Eftir klippinguna fékk ég einhverjar ofur krulllur fyrir árshátíðina en ég sá í raun aldrei hárið á mér eftir að það var klippt. Ég fór svo bara eins og hálfviti í Smáralind og sótti það sem mig vantaði fyrir árshátíðina, greiðslan átti auðvitað eftir að síga og verða eðlilegri.. en vá hvað mér leið illa í smáranum! Ég fór svo bara heim og tók mig til og fór til Elísabetar í bjór áður en við mættum í fyrirpartyið. Árshátíðin var fín og fyrirpartyið líka. Sveppi og Auddi voru veislustjórar.. mér finnst þeir nú svolítið skemmtielgir. Skemmtiatriðin voru góð, maturinn líka og allt eins og það á að vera. Við fórum heim af árshátíðinni en ekkert í bæinn í þetta skipti en við gerum bara betur næst. Sunnudagur var algjör letidagur! Við sváfum framyfir hádegi og fórum ekki framúr heldur sofnuðum aftur og sváfum framyfir kvöldmat! Við gerðum heldur ekkert um kvöldið nema að sækja bílana og fá okkur að borða, meiri letihaugarnir! Svona er þetta bara daginn eftir árshátíð.. allt leyfilegt! Hárið mitt.. já blessað hárið mitt!! Hvað getur maður gert! Fólk tók strax eftir því að ég hefði farið í klippingu.. ég var virkilega að vona að það virkaði svona stutt út af krullunum.. en svo þegar ég fór í sturtu kom í ljós að hárið á mér er bara svona stutt!! ARG.. hún stytti hárið á mér helling!! .. og ég má alveg tuða yfir því!!!! Mér finnst þetta hræðilegt, eina sem ég bað um var að halda síddinni!!! og ofan á allt annað þá klíndi hún hárlit yfir hálft andlitið á mér svo ég gat ekki breytt hárgreiðslunni því ég gat ekki sýnt ennið eða eyrun.. kreist!! Svo borgar maður helling fyrir þetta.. vá hvað ég er reið yfir hárinu. Ég er búin að vera að safna síðan ég var 18 ára og ekkert gengur!! Litla frænka mín sem er ekki orðin 4 ára er með síðara hár en ég En jæja.. nóg um hárið.. Í gær var víst komin ný vinnuvika. Ég fór í Bónus eftir vinnu og keypti páskaegg handa börnunum.. þar með Atla og Svenna . Ég fór nú til að kaupa egg handa Ágústi og Söndru en Svenni bað mig svo fallega um daginn að ég bara varð að kaupa egg handa honum líka... "Kolla viltu kaupa handa mér páskaegg með íþróttastrump".. hehe ég fann 1 íþróttastrump.. og hann var í fýlu á varamannabekknum haha mér fannst það svo fyndið að ég keypti handa honum eggið og auðvitað annað egg handa Atla líka Eftir Bónus fór ég í hesthúsið núna hafði Bylting sloppið í marga daga í röð og það er nú ekki alveg að ganga. Ég lagði á hana úti á stétt og lagði við hana líka. Rölti svo út í gerði og lónseraði hana með hnakkinn sem henni er nú bara alveg sama um held ég. Þegar við komum til baka þá batt á hana við gerðið og hnoðaðist á bak. Vilhjálmur bauðst til að teyma undir mér á stéttinni sem ég auðvitað bara þáði og þetta gekk bara rosalega vel. Hún sá ekkert endilega tilganginn með því að ganga í hringi á eftir Villa en hún lét sig hafa það samt. Ég hlakka bara til að fara að gera meira og ath hvort það komi einhverjir stælar í ljós. Svo eru bara páskarnir að fara að skella á. Við Atli förum norður ef veður og færð leyfa.. núna þarf bara að fylgjast með verðurfréttunum. Ég sá brot af þeim í gær og það leit illa út fyrir skírdag.. en sjáum til. 11.03.2008 21:11Allt að komaJæja, tamningunni miðar ágætlega áfram. Þetta er nú allt í litlum skrefum en miðar allt þó í rétta átt. Ég sagði um daginn að ég ætlaði að vera komin í hnakkinn eftir 2 vikur og mér sýnist ég bara vera á áætlun. Þetta gengur bara eins og í sögu. Bylting er búin að vera inni í 2 vikur og ég er bara alveg að fara að skríða á bak. Í gær var daman bundin utan á og teymd kirkjugarðshringinn. Það var eins og hún hefði gert þetta oft áður, alveg sama um umhverfið og fylgdi vel. Lilja hafði hana utan á teymingarhrossi en ég reið Sjón á eftir og hafði víst eitthvað hlutverk en það var svo bara ekki þörf á mér. Hryssan bremsaði aldrei og ekkert vesen. Tryppin voru eitt sinn bundin utan á hross og teymd á milli bæja þegar ég var með hrossin fyrir austan. Það er sko greinilegt að maður uppsker eins og maður sáir. Tilbúin að legga af stað í fyrstu ferð Í dag batt ég hana út á stétt og lagði á hana hnakkinn í annað skipti. Ég dundaði mér við þetta vel og lengi og danglaði ístöðunum í hana og reyndi að láta sem mest klingja í öllu dótinu. Hryssan hræðist ekkert og stendur eins og klettur. Ég lagði auðvitað á hana frá báðum hliðum og oftar en einu sinni, svo steig ég í ístöðin og hékk í þeim og.. ekki haggast hryssan. Ég fór nú ekki alla leið í dag en ég stóð þó í báðum ístöðunum og danglaði mér. Ég er bara ótrúlega ánægð með þetta, ég held að ég hefði bara ekki geta fengið betra hross sem mitt fyrsta tamningatryppi... daman er bar æði! Ég er líka farin að kynna fyrir henni nasamúlinn. Henni var nú bara alveg sama áðan og það verður örugglega bara þannig áfram. Ég verð nú bara að viðurkenna að ég fylltist bara stolti og gleði þegar hún stóð við gerðið með hnakk, beisli og nasamúl.. og bara alveg eins og fínasta reiðhross .. það þarf greinilega lítið til að gleðja mig Á morgun heldur prógramið svo áfram, allt í litlum skrefum en mjakast þó. Ég er bara mjög spennt fyrir prógraminu en vildi óska að ég hefði 2 tamin hross til að nota með, ég gæti þá gert mikið meira. En þetta gengur ótrúlega vel samt og ég kvarta sko ekkert. Á fimmtudaginn er bingó hjá Gusti og ég ætla að mæta með Söndru og Ágúst. Lilja á þetta víst inni hjá mér síðan hún mætti á díf bingóið mitt (Deild ísl. fjárhundsins). Þetta verður örugglega bara gaman og fullt af fínum vinningum. Ég er búin að tilkynna Kidda að ég kaup páskaegg fyrir hvern vinning sem ég fæ frá krökkunum þar sem eitthvað af þeim eru hestatengdir. Honum leist nú ekkert á hugmyndina um mörg páskaegg og vill þá að ég beri ábyrgð á krökkunum um pákana hehe Á laugardag er svo árshátíðin hjá Kaupþing og ég veit ekki enn í hverju ég ætla! Reyndar eru skórnir í höfn en ég fer nú ekki í þeim einum saman.. eða hvað?? Jæja þangað til næst.. 10.03.2008 09:52Tamningu miðar vel, vinnuhelgi að baki.Bylting var járnuð á föstudaginn en ég gat ekki verið viðstödd þar sem ég var búin að lofa mér í afleysingu í blómabúðina. Fannar járnaði fyrir mig í húsinu hjá Lilju og að sjálfsögðu stóð drottiningin eins og klettur... svo vel tamin auðvitað 05.03.2008 11:41Tamingar, nýr vinnustaður, afmæliÉg er ekki alveg að standa mig í blogginu, ég hef bara of lítinn tíma í svona dunderí. Ég komst ekki í hesthúsið í gær þar sem útibúið mitt var að flytja aftur! Núna fórum við reyndar bara hinum megin við vegginn góða en við vorum bara í bráðabirgðahúsnæði. Ég er því komin með skrifstofu og fínerí og útibúið er auðvitað mikið flottara en það sem við vorum með. Flutningarnir gengu vel fyrir sig og þessa vikuna er boðið upp á kökur og með því svo það eru allir velkomir að kíkja á mig í vinnuna.. Kaupþing, Hamraborg 9 Ég fór í hesthúsið á mánudagskvöld en hafði ekki mikinn tíma í það skiptið, þar sem það var keyrt á bílinn minn þegar ég að leggja af stað uppeftir! Ég dundaði smá í hryssunni og ég er sko alveg búin að komast að því að taming er alveg eins og að kenna hundi og hundauppeldi er eins og barnauppeldi.. svo ég held að ég sé bara í góðum málum á öllum stöðvum. Reyndar er hundurinn minn ekki vel upp alinn.. ætli það sé slæmt ?hehe. Bylting er semsagt að læra trix núna, t.d. að lyfta fótum og framfótarsnúning. Ég er viss um að hún verður eins og hundur í vor! Jæja en að bílamálunum.. ég var semsagt að skutla Atla heim og ætlaði að hendast aftur í hesthúsið en í þann mund sem hann steig út úr bílnum var bíl bakkað á "fullri ferð" inn í hliðina á bílnum.. farþega hliðina! Ég er dauðfegin að Atli varð ekki undir!! Út úr bílnum steig stelpukind, voðalega vandræðaleg eins og gefur að skilja. Til að gera langa og fyndna sögu stutta þá var hún nýbúin að festa kaup á bílnum, búin að greiða fyrir hann en hann var ekki skráður á hana og ekki búið að breyta tryggingunum. Hún var að taka bílprófið og var enn með bráðabirgðaskírteini! og hún er jafn gömul og ég! Frekar fyndið allt saman Núna þarf ég semsagt að bæta tryggingaskoðun við "to-do" listann.. það þarf nefnilega að gera ýmislegt fyrir bílinn minn.. t.d. að þrífa hann.. en ég er líka enn að bíða eftir geislaspilaranum sem ég keypti í Boston í haust.. einhver gæðadrengur ætlaði að tengja hann fyrir mig.. haha nú fæ ég skammir !! Ég veit ekki betur en að það eigi að járna drottinguna mína í dag. Fannar ætlar að koma í húsið til Lilju og járna fyrir okkur Maríu og jafnvel Lilju líka. Núna fer boltinn að rúlla þegar daman er komin á járn.. gaman gaman. Þrátt fyrir frekar háann aldur hef ég komist að því að ég kann ekki að telja! Ég var að sjá að ég er í fríi helgina fyrir afmælið mitt en ég hélt að ég væri að vinna. Ég á afmæli 7. apríl en það mega samt allir gleyma því þar sem ég er að verða 27 sem er "fullorðins". Þið sem ekki gleymið, takið frá laugardagskvöld 5. apríl :) Það er aldrei að vita nema að ég geri eitthvað skemmtilegt með aðdáendum mínum Hef ekki fleira í fréttum í bili.. þangað til næst Flettingar í dag: 39 Gestir í dag: 11 Flettingar í gær: 303 Gestir í gær: 66 Samtals flettingar: 300718 Samtals gestir: 37182 Tölur uppfærðar: 21.11.2024 08:05:40 |
Eldra efni
Tenglar
|
© 2024 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is