Húsfrúnni á Mánaskál gengur ekkert að halda blogginu lifandi um þessar mundir. Reyndar hjálpar netleysið ekki til, netleysið sem hrjáir okkur stundum heilu dagana. Það fer víst eftir veðri hvort það er nothæft internet hjá okkur og það hefur verið mikið um rigningu undanfarið og þá er netið upp á sitt versta.
Ég er langt á eftir í öllum fréttum og ætla ekki að ryfja það allt upp núna en í staðinn ætla ég að setja inn nokkra myndir af Þórdísi Kötlu sem fór í ballett í dag
Tilbúin í fyrsta balletttímann
Fleiri myndir í myndaalbumi