Mánaskál |
|
28.02.2012 06:12Sex vikur að verða liðnarÞá eru sex vikurnar að klárast hérna í Budapest. Það er með ólíkindum hvað þetta hefur liðið hratt! Fjölskyldan er ekki á heimför eins og til stóð heldur er ferðinni heitið til Hamborgar í Þýskalandi í aðrar sex vikur. Það verður því smá seinkun á því að Þórdís fari á leikskólann og ég í vinnuna að ógleymdu hesthúsinu! Folöldin mín bíða eftir mér í hesthúsinu á Blönduósi og mér skilst að þau séu stillt og prúð. Orða litla er að verða spök eins og Brattur og ég hlakka ansi mikið til að koma heim upp á hestamennskuna að gera þó að hér sé ansi frábært að vera. Reiðhestarnir eru úti á gjöf og Sindri stórbóndi á Neðri Mýrum sér um þau fyrir mig. Hugsýn mín hefur það vonandi gott og vonandi er nú folald í henni þetta árið. Hún var sónuð með fyli í sumar, en það gerði hún líka sumarið þar á undan en svo virðist hún hafa misst fylið þá. Ég vona að sagan endurtaki sig ekki og ég fái fallegt folald í vor undan henni og Abraham frá Lundum II. Nú má vorið allavega fara að koma til að skera úr um þetta ![]() Svo fer alveg að líða að því að ég fari á yfirsnúning vegna stóðhestamála. Til stendur að gera aðra tilraun til að halda Vöku sparimeri þar sem hún hefur ekki átt folald áður, svo held ég Hugsýn og hinni brúnu Össu frá Þóroddssstöðum. Ég ætla aðeins að sjá til hvað ég geri með Gleði þá rauðskjóttu frá Þóroddsstöðum, það kemur í ljós í vor hvort ég ætla að halda henni eða ekki þetta árið. ![]() Vaka undan Svarti frá Unalæk ![]() Hugsýn undan Kjarval frá Sauðárkróki ![]() Assa undan Núma frá Þóroddsstöðum og Þrúði frá Laugarvatni ![]() Gleði undan Hilmi frá Sauðárkróki Lokaverkefnið mitt gengur ágætlega og er farið að taka á sig góða mynd. Það er ótrúlegur tími sem fer í eina svona ritgerð, ég er búin að liggja yfir þessu og á samt ótrúlega mikið eftir. Ég er svo glöð að hafa fengið tækifæri til að skrifa ritgerðina í fríi frá vinnu. Ég get ekki sagt annað en að maður sé farinn að sjá útskriftina handan við hornið en það eru ekki nema tæpir tveir mánuðir í skil á ritgerðinni og þá er ég búin! Hlakka ótrúlega til ![]() ![]() Þórdís Katla að leira kökur ![]() ![]() ..snúa sér í hringi ![]() ![]() ![]() ![]() Við fórum í útsýnissiglungu á ánni sem rennur í gegn um Budapest. Þetta er rosalega falleg borg og hún er algjört æði þegar það er farið að rökkva. Margar af þessum hrikalega fallegu byggingum eru upplýstar eins og t.d. Parlamentið þeirra. ![]() Parlament building - Þinghúsið Í gærkvöldi fórum við í göngu niður um verslunarhverfi þar sem ein aðalgata, svipað og laugavegurinn okkar. Úti á götu voru líka fjölistamenn og þessi var rosalega skemmtilegur að mati okkar. Þórdís Katla hljóp um tortið og elti sápukúlurnar hans ![]() ![]() ![]() Það er allt að verða tilbúið fyrir Þýskalandsferðina. Við bókuðum flug með Ryanair en ég held að við gerum það ekki aftur. Maður verður bara pirraður yfir öllum aukagjöldnum sem þeir demba á mann. Það þarf að borga sérstaklega fyrir það að bóka sig, velja sæti og svo framvegis og maður bíður alltaf eftir næsta gjaldi. Ég ætla samt ekki að kvarta ef við komumst yfir til Þýskalands á réttum tíma. Við erum búin að panta okkur bílaleigubíl í Þýskalandi til að koma okkur frá flugvellinum til Hamborgar og til að sækja nýja bílinn okkar. Atli er semsagt búinn að finna bíl handa okkur þarna úti og fyrir valinu varð svartur station Benz, eins Benz og við áttum nema station fyrir Týra og hann er líka sjö manna svo það er nóg pláss fyrir sundferðirnar á Blönduós í sumar ![]() Týri minn hefur það gott í Vestmannaeyjum. Hann varð 11 ára um daginn og fékk gott að borða í tilefni dagsins. Hann hefur aldeilis verið dekraður þarna í Eyjum og fær meðal annars harðfisk með smjöri á tillidögum og fær heila dýnu til að sofa á inni hjá heimasætunni. Nú er bara spurning hvort hann vill koma heim með mér aftur! ![]() Það er kominn mikill framkvæmdahugur í hobby "bændurna" á Mánaskál. Mörg flott verkefni liggja á teikniborðinu og það verður sko gaman að koma heim og taka hendur fram úr ermum. Ef við verðum heima í allt sumar þá verður sko mikið gert á okkar bæ ![]() Nú er best að koma sér aftur í ritgerðasmíðin Kveðja frá Budapest Skrifað af Kolla Flettingar í dag: 285 Gestir í dag: 9 Flettingar í gær: 803 Gestir í gær: 33 Samtals flettingar: 379979 Samtals gestir: 43408 Tölur uppfærðar: 7.4.2025 11:38:20 |
Eldra efni
Tenglar
|
© 2025 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is