|
Mánaskál |
|
10.06.2009 09:45Ferð austur og fleiraVið vorum ekki heima síðustu helgi frekar en aðrar. Við skelltum okkur austur á Klaustur í þetta skipti. Atli var að vinna fyrir veiðifélagið og ég að hestastússast.
Hestaferðalagið með Vöku gekk bara vel en ég heimleiðinni stoppuðum við á Glóru en þar var einmitt gulrótin sem dró Atla með mér austur.. traktórinn sem okkur langar svo í! Atli er búinn að vera með hugann við þessa vél í nokkra mánuði, eitthvað búið að karpa um verð og svona svo þegar hann var loksins ákveðinn að kaupa vélina og borga það sem karlinn vildi fá fyrir hana þá var hann líklega hættur við að selja hana! Þetta er nú bara svona ef maður hikar.. og svo er maður bara oft svo ferlega óheppinn. Nema hvað karlinn hafði samband aftur í gær og vélin er föl eftir allt saman Skrifað af Kolla Flettingar í dag: 197 Gestir í dag: 7 Flettingar í gær: 233 Gestir í gær: 13 Samtals flettingar: 787261 Samtals gestir: 53888 Tölur uppfærðar: 23.2.2026 12:59:02 |
Eldra efni
Tenglar
|
© 2026 123.is | Nýskrá 123.is síðu | Stjórnkerfi 123.is