Mánaskál
    <language>is</language>
Nýjar myndir af Sturluhóli
      <description>Í gær gerðist heilmikið í húsklæðningunni  Svo er útsýnið líka æðislegt </description>
Góður dagur á Sturluhóli
      <description>Smiðirnir mættu á Sturluhól í morgun og hófust handa við að raða járninu á húsið. Það er ótrúlegt hvað þetta gengur hratt  Í dag gerðist heilmikið og ég hlakka svo til að sjá útkomuna! Húsið verður glæsilegt!  Ég hlakka til að sjá hvað þetta verður langt komið eftir daginn á morgun  </description>
Blogg dag eftir dag :)
      <description>Ég er bara farin að blogga "daglega".. meiri dugnaðurinn Ég kíkti á Sturluhól í dag til að kíkja á féð og sjá hvernig gengur með íbúðarhúsið. Atli og Jói frændi hans voru iðnir um helgina og núna er húsið alveg klárt undir járn og þeir byrjuðu meira að segja á þakkantinum  Byggingarfulltrúinn kom í dag til að taka út ullina og smiðurinn mætir í fyrramálið til að byrja að setja járnið á! Spennandi!Gimbrarnar hafa það gott inni og ég smellti nokkrum myndum af þeim.Litla grábotnótta gimbrin hennar Söndru sem gengur undir nafninu Sandra þar til Sandra gefur henni nafn. Systir hennar fékk nafnið Diljá (seinna nafnið hennar Söndru).Skessa DrífandadóttirEin af ónefndu Smáhamragimbrunum.Smáhamra Flekka sem á eftir að fá nafn.Nýji kollótti hrúturinn.. það er ekkert verið að standa upp samt fyrir myndatökurEldri ærnar eru úti við hlöðuna og hafa það alveg gott þó svo að þær séu ekki þess heiðurs aðnjótandi að fá að vera í hlöðunni í góðri rúllu. Allavega ákvað Grána að koma aftur í girðinguna eftir að hafa stungið af um leið og henni var hleypt út eftir lambadómana.Fleirum finnst reyndar líka gott að vera hjá okkur.. Á heimleiðinni tók ég myndir af bænum okkar og fína dalnum. Ég fæ bara ekki nóg af því.Þrátt fyrir að það sé kuldalegt í þessu fallega veðri þá er það sko ekki alslæmt. Fröken Nótt finnst snjórinn ekki leiðinlegur.. og gólfunum mínum ekki heldur! Þvílíkur munur þegar hundurinn getur farið út og komið inn aftur.. ennþá hrein  </description>
Meira af kindum
      <description>Ég lét ekki verða að því um daginn að taka rúnt á Strandirnar til að kaupa mér nokkrar gimbrar. Mér fannst ég ekki vera í ástandi til þess að fara í slíkt ferðalag, gengin eins langt og ég var þá. Nema hvað að svo frétti ég af því í síðustu viku að Jón Heiðar væri á leið á Smáhamra að sækja tvo hrúta og þá langaði mig voðalega að nýta ferðina til að fá 2-3 gimbrar í leiðinni. Því meira sem ég spáði í þetta þá bara varð ég að fara með til að velja sjálf.. og viti menn, ég skellti mér á Strandirnar  Við fórum á hans fræga Subaru Impreza sem hefur farið nokkra hrútaleiðangrana í gegn um árin. Á leiðinni vestur sagði hann mér að hann hafi áður tekið 7 lömb í bílinn svo mér væri óhætt að velja mér 5 gimbrar í þessari ferð.Þegar á Smáhamra var komið leitaði Jón Heiðar að góðum gimbrum fyrir mig á meðan ég fletti í bókhaldinu. Úr varð að ég keypti 6 gimbrar og þær ásamt hans 2 hrútum voru öll sett í Subaru. Ég bjóst nú ekki við að þetta kæmist allt í bílinn en í bílinn fóru öll þessi lömb og ég þurfti ekki að labba heim.Af þessum 6 gimbrum sem ég valdi voru 4 með 18 í læri, 2 með 30 í ómvöðva, 3 með 9 fyrir frampart og 3 með 4,5 í lögun. Ein var botnótt og önnur svarflekkótt  og allar kollóttar. Tvær af þeim eru undan hrút sem mér hefur verið sagt að hann sér nýr hrútur á leið á sæðingarstöð í haust en það voru einmitt afkvæmarannsóknir á Smáhömrum þetta haustið fyrir sæðingarstöðvarnar.Sama dag fékk ég svo nýja kollótta hrútinn minn frá Hraunhálsi heimsendan alla leið á Sturluhól  Aldeilis þjónusta það! Mér líst voðalega vel á hann og hlakka til að sjá hvað hann gefur mér á næsta ári.Við tókum gimbrarnar á hús 16. okt en þær eldri eiga að vera áfram úti þeim til mikillar undrunar. Þær eru búnar að koma inn og fá smjörþefinn úr gjafagrindinni og skilja ekki alveg afhverju þeim er svo úthýst. Gimbrarnar eiga að fá að vera einar um góssið og hafa það gott þar til þessar eldri koma inn.Stefán dýralæknir kom á föstudaginn og bólusettið lömbin við garnaveiki. Sjálf erum við búin að bólusetja við öðru sem þarf og merkja lömbin. Atli og Jón Heiðar græjuðu líka réttina í einum grænum svo við gátum nýtt ferðina hjá Stefáni. Við smöluðum hrossunum saman og létum sprauta allt með orma- og lúsalyfi. Einnig var litið yfir hófa. Hér er því allt að verða komið í stand fyrir veturinn og þetta litla barn sem ég geng með getur farið að koma í heiminn. Ég tók því miður engar myndir af hrossunum en bæti úr því flljótlega eftir að ég verð búin að létta á mér. Ég var nú samt glöð að sjá að Hugulsemi mín er enn jarpvindskjótt og þú hún sé ekki sú fallegasta þá allavega töltir hún voða fínt  Fröken Brá frá Hraunhálsi er reyndar inni og fékk líka tékk hjá Stefáni í þessari ferð en hún var með eitthvað ógeðslegt kýli í andlitinu sem við stungum á um daginn. Hún er núna í sýklalyfjameðferð.Atli er enn á fullu í húsinu á Sturluhóli og keppist við að klára áður en barnið fæðist og veturinn skellur á. Járnið og efnið í þakkantinn kom í síðustu viku og við erum farin að sjá fyrir endann á þessu.Smiðurinn kemst ekki fyrr en eftir helgina til að byrja að setja járnið á húsið svo Atli notar tímann til að undirbúa þakkantinn. Hesthúsið lítur því út eins og smíðaverkstæði um þessar mundir.Ég er núna gengin rúmar 39 vikur og settur dagur er næsta miðvikudag (28.október). Ef allt verður samkvæmt áætlun þá förum við suður á fimmdudaginn (og ég ætla að fæða á föstudaginn). Á meðan ég næ að halda í mér lítur út fyrir að járnið komist á húsið áður en  nýja prinsessan mætir á svæðið  Ég hlakka rosalega til að sjá útkomuna.. já og létta á Atla í þessu öllu saman. Hann hamast og hamast við að klára þetta og vill örugglega gjarnan fara að slaka á.Á meðan við dveljum í Reykjavík fær Þórdís Katla að vera gestanemandi í bekk hjá Sigríði vinkonu sinni sem var í Höfðaskóla en byrjaði í Hvassaleitisskóla í Reykjavík í haust. Þetta verða eflaust skemmtilegir dagar hjá þeim vinkonunum og mikið sport  Íris Björg getur því miður ekki fengið að vera gestur á Hjallaleikskóla í Reykjavík svo við foreldrarnir verðum að hafa ofan fyrir henni þessa daga  Það verður reyndar bara gaman líka.</description>
Kindablogg
      <description>Á fimmtudag fórum við með féð heim að Sturluhóli en það var búið með nýræktina á Mánaskál og meira til. Planið var að fá Bjarka á Breiðavaði með smalahundana sína til að smala þessu á kerrur eða fjárvagn en svo ákváðu Atli og Jón Heiðar að þeir gætu alveg smalað þessu sjálfir út í Balaskarðsrétt. Ég verð að viðurkenna að ég var með smá fiðring í maganum þegar þeir fóru af stað með féð á milli. Ég var pínu smeik um að þetta færi allt út um allt og þeir misstu þetta frá sér. Þetta gekk nú samt (auðvitað) mjög vel en það var samt merkilegt að þrjár ær hálf gáfust upp á þessari stuttu vegalengd. Það segir mér kannski að þær hafi haft dálítið mikið að éta á Mánaskál og væru kannski orðnar hálf þungar á sér! Við keyrðum svo fénu úr réttinni á hestakerrum  Atli og Jón Heiðar voru búnir að græja hlöðuna undir vigtun og flokkun en nýja fjárvogin mín var einmitt prufkeyrð þarna. Mér hálf brá þegar fyrsta kind inn í boxið ætlaði eiginlega ekki að passa inn í hana. Það þurfti allavega að ýta duglega á eftir henni! .. en flestar runnu nú ágætlega í gegn. Bæði ær og lömb voru vigtuð og nú á að vigta reglulega til að fylgjast með fóðrun og vexti þeirra  Maður verður nú að vera duglegur að nota græjuna fyrst það er búið að fjárfesta (já þetta er eiginlega fjárfesting) í svona græju fyrir örfáar kindur.Á föstudag mætti Anna Magga með sónargræjuna og stigaði lömbin. Ég er svo furðuleg að ég læt dæma allt, bara svona til að hafa fleiri tölur í fjárvís til að grúska í  Mér finnst allt í lagi að leyfa sér svona sérviskur þegar maður á ekki fleira fé en þetta, ráðunautinum fannst samt dálítið skondið að dæma fleiri hrúta en gimbrar, yfirleitt er það öfugt og munar líklega heilmiklu á fjölda.Við dæmdum 24 hrúta og fengum úr því 5 hrúta með 85-85,5 stig. 6 hrútar fengu 18 í læri og 8 hrútar mældust með bakvöðva frá 30-34mm.Við völdum hrúta undan Saum og Kölska til ásetnings. Saumsonurinn er gemlingslamb, undan Garradóttur sem ég keypti frá Fáskrúðarbakka síðasta haust.Hann fær nafnið Nagli og hans dómur var 50 kg - fót. 101, ómv. 34, ómf. 2,4, lögun 4,0. 8-8,5-9-9-8,5-18-8-8-8,5 alls 85,5 stig.Kölskasonurinn er undan ær frá Hraunhálsi sem við keyptum 2012 þegar við byrjuðum sauðfjárbúskapinn. Þetta er í annað skipti sem við setjum á hrút undan þessari ær en hún átti ásetningshrút í fyrra líka undan Salamon. Kölskasonurinn fær nafnið Satan og hans dómur var46 kg - fót. 103, ómv. 30, ómf 3,4, lögun 4,0. 8-8,5-9-9-9-18-7,5-8-8,5 alls 85,5 stig.Hér eru nýju lambhrútarnir. Satan hægra megin og Nagli vinstra megin. Á bað við þá er svo Órói Salamonsson, stóri bróðir Satans. Svo er ég búin að festa kaup á einum kollóttum hrút frá Hraunhálsi á Snæfellsnesi. Ég á eftir að sjá hann en hans dómur er 51 kg, fót. 110, ómv. 30, ómf. 3,0, lögun 5,0. 8-8,5-8,5-9-9-18,5-8-8-8,5 alls 86 stig. Hann er undan Kroppsyni og Sigurfaradóttur.Við létum svo dæma allar 20 gimbrarnar okkar þrátt fyrir að sumar væru nú ansi litlar og léttar   Það var t.d. búið að lofa einni frænku að fá að eiga eina grábotnótta gimbur sem hún sá fæðast hér í lok sauðburðar. Sú gimbur var svo ekki nema 28 kg en fékk samt dóm eins og hinar og verður sett á sem smálamb. Maður verður víst að standa við stóru orðin. Gimbrin á móti þessari títlu var líka lítil, vigtaði 32 kg en hún mældist samt með 27 í ómvöðva sem mér þykir bara ótrúlega vel gert fyrir svona lítið dýr.Svo kom að því að slátra og keyrði Atli lömbin á Blönduós til slátrunar á föstudagsmorgun. Allan daginn beið ég svo eftir vigtarseðlinum eins og smákrakki að bíða eftir jólunum  Um kvöldið kom svo loksins niðurstaðan og hún var bara fín. Við sendum 25 lömb (26 með hrútnum sem fór um daginn) og var meðalvigtin 17 kg - fita 6,77 og gerðin 10,88. Alls fóru 5 lömb í E flokk, 17 lömb í U flokk, 2 í R flokk og 2 í O flokk.Við sendum 3 ræfla sem voru 29 og 30 kg. Tvö af þeim voru litlir seinbornir þrílembingar og það þriðja var líklega undanvillingur með lungnabólgu í þokkabót. Tvö af þeim flokkuðust í O og eitt í R. Svo fór einn hrútur undan Aþenu hennar Þórdisar og Drífanda í R flokk. Mér finnst Drífandi ekki hafa verið að gera sig hjá okkur þetta árið. Aftur á móti var ég ánægð með Kölska. Ég fékk undan honum 4 hrúta og fengu 3 þeirra 18 í læri. Ég var líka ánægð með Saumslömbin mín. Hrúturinn sem var settur á undan honum og var með þykkasta bakvöðvann og einnig var gimbrin með þykkasta bakvöðvann (og 18 í læri) undan honum. Ég fékk tvær aðrar gimbrar undan honum undan frekar lakri kind og þær stiguðust líka ágætlega  Það var nú smá metingur á milli okkar Atla núna um það hvort hrúturinn hans eða minn hefði gert betri hluti þetta árið. Hrúturinn "minn" (reyndar Þórdísar) var settur á sem aðalhrútur en Atli valdi svo flekkóttan Salamonsson sem varahrút. Hann fékk svo notkun líka. Atli má bara vera sáttur við sinn hrút en hann skilaði tveimur E hrútum en minn bara einum E hrút. Mér sýnist líka í fljótu bragði að hans hrútur hafi líka skilað betri lærum og baki en minn  Ég held að Atli ætli að nota hann eitthvað í ár líka.Framkvæmdir við íbúðarhúsið á Sturluhóli ganga vel. Atli og Jói frændi hans eru að vinna í því að klára að setja járn utan um glugga og horn og allt það sem þarf áður en hægt er að setja járnið utan á kofann. Vonandi verður hægt að mæla fyrir járninu í byrjun vikunnar og svo raða því á nokkrum dögum síðar!  Allt að gerast  Veðrið í dag var alveg dásamlegt. Stelpurnar komu með mér á Sturluhól og Íris Björg var í essinu sínu að sulla í pollum! og stóra systir náði alveg að bleyta sig líka!Brynja Pála og Guðrún Árný komu norður um helgina með mömmu og pabba. Þær voru settar í að spekja hrútana  Það verður að hafa þá spaka Nú er ég hætt að vinna enda ekki nema rúmar tvær vikur í setta dag. Næstu daga verður væntanlega farið í gegn um barnaföt og eitthvað þannig sniðugt en sjálfsagt verður líka hangið áfram í fjárvís! .. nú þarf að fara að skipuleggja fengitímann!  Það er nú meira hvað maður getur verið jarmandi.</description>
September æðir áfram
      <description>Haustið ætlar að fara jafn hratt og það kom, allavega æðir september mánuður áfram þó mér finnist hann vera nýkominn.Það voru göngur og réttir hérna fyrstu helgina í september. Ágúst Unnar systursonur minn kom ásamt Benedikt vini hans og svo mættu bestu tengdaforeldrar í heimi ásamt Brynju Pálu frænku hans Atla. Ég hafði því þrjá unglinga til að hlaupa og sendast fyrir mig og ég get ekki sagt annað en að ég kunni mjög vel við það. Á föstudeginum hjálpuðu krakkarnir til við að smala heimalöndin á Sturluhóli. Brynja Pála fékk að fara ríðandi með Gísla en strákarnir þurftu að láta sér duga að hlaupa. Þeir fengu þó að leika sér á fjórhjólinu og voru bara ánægðir með það held ég.Á laugardag fór Gísli á Sturluhóli í göngur fyrir óléttu konuna. Féð kom svo niður í réttina milli Balaskarðs og Mánaskálar og þar fengum við stærstann hluta af okkar fé. Unglingarnir mínir sáu um að draga fyrir mig og eina sem ég gerði var að merkja við bókhaldið hvaða skjátur voru búnar að skila sér  Atli kom svo og keyrði umframfé í Skrapatungurétt og svo okkar fé heim að Mánaskál.Við unglingarnir gerðum líka gagn í þessum göngum en þau stóðu vörð niður við veg til að passa að féð myndi fara með fjallinu í átt að Balaskarðinu frekar en að fara niður á eyrarnar fyrir neðan Mánaskál. Svo tóku þau þátt í að reka féð meðfram hlíðinni og standa í fyrirstöðu við Balaskarðsá.Heimasæturnar fylgjast meðAðdáun mætt ásamt fleiri vinkonumÁ sunnudag tóku svo við "aðal"réttirnar í Skrapatungurétt. Ég mætti ásamt unglingunum mínum til að finna afganginn af fénu. Við tókum eina hópselfie að því tilefni.Ekki fundum við margar skjátur í þessum "aðal"réttum en það varð nú samt að sækja þær. Ég fékk nú meira að segja undanvillings þrílembing sem ég hafði talið af svo það má kannski segja að ég hafi grætt eitthvað.Sveinbjörg og Gunnar voru svo áfram eftir réttirnar og unnu á Sturluhóli með Atla. Feðgarnir kláruðu að setja grindina á húsið og komust langt í að ulla það og tengdamamma málaði gluggana.Allt að gerast  Á laugardeginum fóru feðgarnir ásamt Sigga vini Atla að veiða í Laxá. Ég kíkti svo til þeirra aðeins seinna og ákvað að gera tilraun til að veiða með Atla. Eftir dágóða stund færðum við Atli okkur yfir á annað svæði og stoppuðum við bílinn hans tengdapabba. Atli heyrir þá strax að hann er að kalla á hjálp og rýkur hann af stað að leita að honum. Gunni hafði hrasað og fallið fram af kletti. Hann var í framhaldinu fluttur á Akureyri og þaðan með sjúkraflugi til Reykjavíkur þar sem hann gekkst undir aðgerðir. Við erum öll ógurlega þakklát fyrir að hann sé enn á meðal okkar því þetta hefði hæglega geta farið verr. Bataknús til þín elsku besti tengdapabbi!Hér er tengdapabbi í þrælavinnunni með syninum  Drungi minn var búinn að vera eitthvað veikur undanfarið. Ég varð allt í einu vör við mikla bjúgsöfnun við skaufahúsið sem svo færði sig fram kviðinn. Stefán dýralæknir kom og kíkti á hann og taldi öruggast að gefa honum breiðvirkt ormalyf ef ske kynni að hann hefði náð sér í svæsna ormasýkingu, annars gat hann ekki útilokað að það væri eitthvað alvarlegt að s.s. í lifur eða hjarta. Hann lagði til að við myndum hreyfa hann næstu daga og athuga hvort bjúgurinn myndi renna af honum. Ég er ekki í miklu standi til að ríða út þessa dagana svo við Atli hjálpuðumst að við að teyma hann út um bílgluggann. Greyjið klárinn teymdist ekki vel og þetta gekk yfirleitt frekar hægt fyrir sig. Ég dauðvorkenndi honum að vera að níðast þetta á honum. Eftir nokkur skipti var bjúgurinn þó farinn að minnka og greinilegt að hestinum leið betur. Svo 2 dögum eftir að Gunni slasaði sig og hesturinn hafði ekki verið hreyfður í 2 daga var hann orðinn alveg jafn slæmur og áður ef ekki verri. Ég var akkúrat á leiðinni suður og gat ekki hugsað mér að skilja hestinn eftir svona eftirlitslausan. Ég hringdi því í Gísla á Sturluhóli og bað hann að sækja hestinn fyrir mig og hafa hann á Sturluhóli á meðan ég færi í burtu. Ég ætlaði svo að fá Stefán til að líta á hann einu sinni enn áður en ég tæki ákvörðun um að fella hann. Eftir skoðun hjá Stefáni var ákveðið að láta hestinn fara, að öllum líkindum var hann með lifrarbólgu og hann var orðinn mjög veikur. Sævar á Sölvabakka var akkúrat að vinna á gröfu á Sturluhóli svo hann græjaði holuna og Gísli felldi hann áður en ég kom norður aftur. Ég var ósköp fegin að þetta hafi bara vera yfirstaðið þegar ég kom til baka.Þórdís Katla á Drunga fyrir líklega rúmum 2 árumSvo þegar ég var búin að redda því að Drungi færi á Sturluhól þarna á mánudeginum og byrjaði að bera dótið okkar út í bíl kom ég auga á afvelta lamb í nýræktinni. Ég brunaði þangað og snéri því við en það kútveltist bara þegar það ætlaði að æða af stað. Þegar hér var komið við sögu var mér alveg hætt að lítast á að ég færi að heiman, mér fannst að mér væri ekki ætlað að fara. Aftur bað ég Gísla um greiða, að líta eftir lambinu til að vera viss um að það hefði ekki farið beint á hrygginn aftur. Sindri meira að segja leit líka á það daginn eftir. Lambið varð ekki afvelta aftur en það jafnaði sig ekki og fer í sláturhúsið á morgun, á undan öðrum lömbum.Við stelpurnar komum svo aftur norður úr Reykjavík á fimmtudaginn og Atli og Jói frændi hans komu á föstudag. Þeir eru búnir að eyða helginni í að klára að ulla húsið á Sturluhóli og setja járnið, sem þeir voru að beygja í vikunni, utan um fyrstu gluggana. Á meðan við vorum í burtu mokaði Sævar frá hlöðuveggnum sem lak svo hrikalega síðasta vetur og gerði það að verkum að í leysingum flæddi inn á gólfið undir kindunum. Þegar búið verður að drena þessa hlið og ganga frá þessu ætti að vera þurrt og gott hjá spariskjátunum  Einnig er búið að moka upp úr skurðum við utihúsin og laga "planið" fyrir framan mjólkurhúsið og framkvæmdir eru enn í gangi  Núna um helgina voru stóðréttir og ég verð að viðurkenna að í fyrsta skipti þá fór ég hvorki inn að Kirkjuskarði né niður í rétt. Það er bara meira en nóg fyrir mig að vera með stelpurnar og heimilið. Atli fór í morgun í réttina og sótti einn gemling frá okkur með myndarlegan hrút undan Drífanda og held ég að okkur vanti þá ekkert nema Gránu hans Bjarka Rúnars sem er sjálfsagt í fríu fæði með hrútana sína einhversstaðar hjá Sindra á Neðri-Mýrum. Ég er allavega fullviss um að hún eigi eftir að koma í leitirnar.</description>
Ágúst að verða búinn
      <description>Framkvæmdir á Sturluhóli voru settar á smá bið á meðan Atli fór í burtu í vinnuferð til Bandaríkjanna. Hann hefur aftur á mót ekki stoppað síðan hann kom heim aftur þar sem hann verður ekki heima nema til ca 10 september. Aftur á móti þýðir það að hann á að vera heima í réttunum sem er mjög ánægjulegt fyrir mig  Tengdapabbi kom síðustu helgi til okkar og eyddi henni í að þétta glugga á Sturluhóli en þeir voru orðnir ansi margir sem láku þrátt fyrir að vera ekki gamlir.Taka þyrfti rúðurnar úr og skipta um þéttikant, á svona dögum er maður ekki alveg jafn þakklátur fyrir það hvað gluggarnir eru stórir og rúðurnar margar  Atli kom svo heim á miðvikudaginn og strax á fimmtudag mættu girðingaverktakar á svæðið. Verktakarnir tveir og Atli girtu 1000 m langa girðingu á einum degi og þó Atli minn sé duglegur þá hefði hann nú verið töluvert mikið lengur að þessu ef hann hefði verið einn. Þessir verktakar eru þrælduglegir og ég held að Atli ætli sér að girða aldrei framar sjáflur! Nýja fína túngirðingin mín  Smiðirnir koma aftur í næstu viku til að halda áfram með íbúðarhúsið en þá ætti drenið að vera orðið alveg klárt. Atli, Gunni og Gísli voru ansi duglegir í gær í drenvinnunni og munar svakalega um það að við fengum lánaða smágröfu hjá Bjarka smið og svo er Gísli alvanur gröfukarl.Grindin er komin á húsið að hluta og ég hef trú á að þetta muni ganga hratt fyrir sig þegar sökkulvinnan verður búin og smiðirnir geta haldið áfram. Ég er sko farin að hlakka rosalega til að sjá útkomuna  En það eru fleiri verk á dagskrá en framkvæmdirnar á Sturluhóli, heyskapur er t.d. ekki búinn. Atli lagði af stað að slá eftir kvöldmat í gærkvöldi en heppnin var ekki með okkur þann daginn því sláttuvélin bilaði. Atli var eitthvað fram á nótt í viðgerðun á henni en ég er ekki viss hvort það hafðist að laga hana eða hvort við verðum að fara aðrar leiðir til að klára heyskap. Heyskapurinn ætti að klárast í þessari viku. Þá getur maður haldið áfram að láta sér hlakka til lambadóma og haustverkanna.Skólinn hjá Þórdísi Kötlu byrjaði í síðustu viku og núna er það sko 2. bekkur. Ótrúlegt hvað tíminn líður, sumarið búið og skólinn byrjaður.Ég tók að gamni mynd af henni á sama stað og þegar hún mætti fyrsta daginn sinn í 1. bekk. Hver veit nema að þetta verði árlegur viðburður sem gaman verður að skoða síðar meir. Myndir af henni teknar með ársmillibili alla skólagönguna  Íris Björg stækkar líka og dafnar og varð 2 ára þann 16. ágúst. Hún fékk örlitla afmælisveislu hérna heima daginn áður því Atli var að fara í burtu að vinna. .. og ís klikkar ekki! Hún elskar ís  Í dag stendur svo til að tína loksins saman rúllurnar en trakstorinn okkar bilaði um daginn svo það tafðist að hirða þær. Atli fór svo út strax á eftir líka svo þetta þurfti því miður að bíða. Ég harkaði það nú samt af mér í gær að fara og ganga frá endum og merkja rúllurnar svo ég geti sérvalið heyjið ofan í sparikindurnar í vetur. Við erum búin að ná fínum heyfeng í kindurnar og erum að vonandi að klára heyskapinn í hrossinn um þessar mundir  Það verður ljúft.Sandra Diljá systurdóttir mín er búin að vera staðráðin í því að koma í réttir í haust og finna gimbrina sem hún sá fæðast í sauðburðinum í vor. Við vorum nefnilega svo heppnar að akkúrat á meðan Þórhildur systir og fölskylda komu í heimsókn í sauðburð í vor bar ein tvævetla tveimur gimbrum og önnur þeirra var grábotnótt. Sandra ætlaði að finna þessa gimbur í réttunum og eigna sér hana. Sú grábotnótta hefur sést af og til í sumar og er eins og stendur að stelast í nýræktina okkar. Vonandi verður hún orðin nógu þung í haust til að fá að verða sparigimbur á Mánaskál/Sturluhóli. Þá verður Sandra Diljá sko að finna flott nafn á hana.Við fengum örfá lömb í lit þetta árið þrátt fyrir að hafa sett á tvo litaða lambhrúta. Ég vona að ég geti leyft mér að kaupa nokkrar góðar lífgimbrar og þá helst í einhverjum lit. Ég er með bæi í huga fyrir þessi kaup en svo er spurning hvernig mér gengur að komast vestur á firði þegar Atli er ekki heima. Ég legg ekki í að fara með stelpurnar í svona flakk, svo er ég heldur ekkert að fara að ragast sjálf í fé eða eitthvað þannig. Ég fékk aðstoð við að klippa hófa á hluta af hrossunum um daginn, restin verður klippt aðeins seinna. Jón Heiðar kom og þeir Gísli ráku hrossin heim fyrir mig. Hugsýn fær fóstnyrtinguÉg ætla enn að halda því fram að Hugulsemi sé jarpvindskjótt, ég skoðaði ofan í faxið og þar er grátt. Jón Heiðar er þó ekki sammála mér með litinn því hann segir að þetta heiti rauðvindótt. Ég segi að það sé ekki til, rauður verði ekki vindóttur. Að þessu tilefni var ég spurð spjörunum úr með liti og ég held að ég hafi nú alltaf svarað rétt.. nema að þessu leyti að hans viti.. hann segir rauðvindótt en ég segi jarpvindótt  Hann þekkir mig ekki mikið ef hann heldur að hann geti fengið mig til að skipta um skoðun  BBQ rauður er þrælmyndarlegur, undan Össu Númadóttur og Byr frá Borgarnesi.Glóð fékk líka fótsnyrtingu og var svo sónarskoðuð í síðustu viku. Hún reyndist vera með stóru fyli og kastar væntanlega í lok maí á næsta ári. Ég er búin að panta rauðblesótta hryssu  Orða fékk sömu meðferð og aðrir sem komu inn í réttina þennan dag. Núna styttist í að hún fari í tamningu sem verður bara spennandi að sjá. Ætli það verði ekki fljótlega eftir áramót svona þegar hún er búin að fá tíma til að geldast upp og jafna sig. </description>
Þá er sælan að verða búin
      <description>Þá er sælan að verða búin, það styttist óðfluga í að Atli fari erlendis að vinna. Hann hamast og hamast við að klára sem mest áður en hann þarf að fara því næg eru verkefnin. Það er útlit fyrir að Atli verði ekki heima í neinum göngum, réttum eða öðru rollustússi þetta árið. Það verður eitthvað! Eins og mér finnst þetta skemmtilegur tími þá er hann líka annasamur og erfiður og það vera gengin 29 vikur er sko ekki að hjálpa til! Ég sé ekki að ég sé sjálf að fara að draga eitt einasta lamb eða hreyfa mig á nokkurn hátt hraðar en að kjaga... en það reddast! Ég verð nú að segja að þó að ég vilji alls ekki að sumarið taki enda (sérstaklega þar sem mér finnst það varla komið), þá hlakka ég rosalega til að fá féð til baka og vigta, dæma, velja ásetning og kaupa lífgimbrar  Frændur hans Atla mættu í fyrrakvöld til að koma í veiði í Laxá. Þar sem þeir áttu ekki veiði fyrr en seinnipart daginn eftir þá voru þeir drifnir út í vinnu á Sturluhóli fyrripartinn. Þeir kláruðu að rífa upp ónýtu túngirðinguna á Sturluhóli og boltuðu helling af vinklum utan á húsið.Gísli mokaði meðfram húsinu fyrir okkur og Atli græjaði drenið og einangraði sökkulinn. Það er sko bara unaðslegt að sjá framkvæmdir komnar af stað  Í vikunni ringdi svo mikið einn daginn að Atli ákvað að vera inni að vinna í staðinn fyrir að vera úti. Hann dreif sig þá í að smíða glugga fyrir nýja "gamla hesthúsið". Gluggasmiður með meiru!Það var ekki lengi verið að vippa fram fjórum gluggum og opnanlegum fögum. Ég meira að segja gat gert smá gagn en ég fúavarði gluggana. Þessum verður væntanlega smellt í húsið við tækifæri  Þórdís Katla stækkar og dafnar og missti loksins framtönn! Hún er búin að vera að bíða eftir því í dálítinn tíma.Hin framtönnin hangir svo á lyginni svo hún hlítur að detta úr á morgun eða hinn. Þórdís Katla er að passa framtönnina sem datt úr og ætlar væntanlega að semja við tannálfinn þegar hin dettur líka.</description>
Ágúst kominn
      <description>Sumarið líður, komið framyfir verslunarmannahelgi en ég ætla að vera áfram með sól í hjarta og lifa í sumri fram í október allavega Ég byrjaði að vinna í síðustu viku og þá sumarfríinu mínu að mestu lokið. Ég á eitthvað smátterí eftir en það verður eflaust notað í kring um göngur eða eitthvað þannig. Ekki það að ég haldi að ég get smalað þetta árið eða gert nokkurt gagn en það væri samt fínt að geta átt smá frí á undan eða eftir þessum annasömu dögum. Fjárréttir eru í ár 6. september en seinni göngum og stóðréttum var seinkað um eina viku og því eru stóðréttir ekki fyrr en 19. september. Ég sem var svo glöð að loksins lenti septembersýning HRFÍ ekki á réttarhelgi, en jú þá voru stóðréttirnar fluttar yfir á sýningarhelgina. Ég er nú hvort sem er ekki að fara ríðandi með stóðrekstrinum þetta árið og mun ekki eiga nein hross í réttinni heldur svo ég fer kannski bara samt á hundasýninguna eins og til stóð. Það fer nú svolítið eftir ástandinu á Nóttinni en hún er í hárlosi núna og er að verða alsber. Vonandi verður hún komin í flottan feld aftur í september  Atli er búinn að vera ofurduglegur undanfarna daga og hamast eins og enginn sé morgundagurinn því það styttist í að hann fari að vinna erlendis. Ansi margt er á dagskrá hjá okkur ennþá og langt liðið á sumarið. Við fengum verktaka til að koma og moka meðfram húsinu á Mánaskál svo Atli gæti græjað dren á síðustu hliðinni. Núna getum við aldeilis haldið áfram að klæða höllina okkar heima á Mánaskál  Bjarki smiður mætti svo í morgun á Sturluhól svo nú má segja að framkvæmdir við klæðninguna á íbúðarhúsinu séu hafnar  Ég hlakka rosalega til að sjá útkomuna, ég held að húsið verði glæsilegt. Atli var með honum í dag að mæla fyrir grindinni og fór svo í að bora fyrir múrboltunum. Hér er Atli að bora fyrir múrbolta 1 af 1.100Undanfarna daga hafa Atli og Jón Heiðar gert kraftaverk á Sturluhóli. Búið er að moka út úr hlöðunni eftir veturinn, og svo handmokuðu þeir út eldgömlum skít sem var á milliloftinu og úr hrútastíunni. Einnig var mokað út undan kanínunum. Atli er líka byrjaður að einangra og klæða veggina í nýja "gamla" hesthúsinu. Um daginn múruðu Atli og Geir í Skrapatungu aðeins í skemmdir á útihúsunum en ég málaði yfir það í dag svo húsið lítur aftur glæsilega út  Þórdís Katla hjálpaði til við að málaNýja "gamla" hesthúsið fer alveg að verða tilbúið. Það er orðið klárt að utan en það er dálítið eftir inní því. Það er allt annað að sjá húsið svona með hvítan neðri part og í kring um gluggana. Vonandi kemur svo fljótlega þak á súrheysturninn því þar höfum við ákveðið að gera kaffistofu  Þeir félagar réðust líka á gömlu girðinguna meðfram túnunum og rifu hana og settu niður hornstaura. Ég held að ný girðing sé komin á planið og ætti að vera tilbúin fyrir réttir. Þá geta kindurnar komið beint á Sturluhól eftir réttir sem ætti að einfalda ýmislegt fyrir mig ef Atli verður ekki heima þegar það á að dæma lömbin, senda í slátur hús og svo taka á hús. Þar sem búið var að moka undan kanínunum þá skellti ég upp aðstöðu fyrir þær á sama stað en með breyttu sniði. Ég gerði þrjár stíur fyrir þær og fékk Lúpus karlinn eina, Ísing og kvenkyns ungarnir eina og svo karlungarnir þá þriðju. Ungarnir eru nú orðnir rúmlega tveggja mánaða gamlir og ég tel að ég sé með 2 kerlingar sem ég ætla að halda sjálf en karlarnir 4 eru tilbúnir á ný heimili.Fyrri sláttur er búinn á Sturluhóli en við eigum eftir að slá smá há þar. Svo er eftir að slá nokkur stykki í hrossin en vonandi verður ekki endalaus vætutíð í ágúst.Síðustu helgi fengum við góða gesti en þá kom Jói vinur hans Atla í heimsókn með strákinn sinn. Auðvitað voru fjórhjólin sett í gang sem krökkunum (og fullorðnum) leiddist ekki.Íris keyrði meira að segja alveg sjálf  Nótt nýtur þess alltaf þegar það eru langir útidagarGóðar vinkonur þessar tværÍris er byrjuð á leikskólanum eftir sumarfrí og allt er að komast í rútínu. Þórdís Katla byrjar fljótlega í skólanum aftur og þá verður þetta allt komið í fastar skorður. Vinnukonan okkar sem er búin að vera hjá okkur síðan í mars fer til síns heima um svipað leiti og það á eftir að koma í ljós hvenær einhver kemur í hennar stað. Ég geri ráð fyrir að vera með einhverja aðstoð í vetur þar sem Atli verður væntanlega mikið að heiman. Þetta á allt saman eftir að koma í ljós og alveg á hreinu að tíminn líður sama hvort maður er tilbúinn eða ekki.</description>
Hundasýning og fleira
      <description>Sumarið æðir áfram en þó er maður einhvern veginn enn að bíða eftir að það komi. Þetta er allt hálf skrítið finnst mér. Hitinn hefur verið ótrúlega lítill það sem af er sumri en auðvitað er maður samt þakklátur fyrir þá góðu daga sem þó hafa komið.      Heyskapur fór af stað 5. júlí sem er mikið fyrr en hingað til. Ég heimtaði að fá úrvalshey í þessar sparikindur sem ég á svo við tókum sénsinn og fórum í heyskap á sama tíma og aðrir óðalsbændr á svæðinu. Við fengum held ég þarna frábært hey fyrir ærnar og ég hlakka eiginlega til að byrja að gefa þeim það  Það var grænt og ilmandi og það lá við að ég smakkaði á því sjálf því mér fannst það svo lystugt! Við slóum nýræktirnar og svo hálft stykki á Sturluhóli í þessari atrennu.             Bjarki á Breiðavaði kom og rakaði fyrir okkur       Nýræktin á Mánaskál     Atli fór til Chicago að vinna í þarsíðustu viku og kom heim á sunnudaginn. Hann er svo mikill bóndi í sér þessi elska að hann fór auðvitað beint í að slá fyrir okkur. Núna voru 2 stykki slegin á Sturluhóli en svo erum við með fleiri stykki bæði þar og heima á Mánaskál sem verða slegin í hrossin aðeins síðar.      Við Iris og Paulette eyddum síðustu helgi í Reykjavík því þá var tvöföld útisýning hjá HRFÍ. Við Nótt látum okkur sko ekki vanta á slíka viðburði og mættum í höfuðborgina á fimmtudagskvöldi. Á föstudeginum fórum Nótt í snyrtingu og ég leit svo við á hvolpasýningunni á föstudagskvöldinu.      Á laugardeginum var Reykavik Winner 2015 og fékk Nótt 1. sæti í opnum flokki með meistaraefni (CK)  og endaði sem 4. besta tík  . Þar með rétt missti hún af eina íslenska meistarastiginu sem var í boði á þessari sýningu en meistarstigið fékk hálfsystir hennar sem náði 3. sæti. Linda sýndi Nótt vel fyrir mig eins og alltaf og þykir mér árangurinn mjög góður þar sem ekki fengu allir hundar náð fyrir augu dómarans í þetta skiptið. Dómarinn tók meira að segja fram í umsögninni að hún hefði verið "well handled" sem alltaf er gaman að fá viðurkenningu á        Linda og Nótt á Reykjavík winner 2015     Fyrir svona hundasýningarfíkla eins og mig er frábært þegar hægt er að ná 2 sýningum í einni ferð til Reykjavíkur en það var einmitt þannig nú. Á sunnudeginum var alþjóðleg sýning. Nótt mætti galvösk til leiks, staðráðin í því að ná í meistarastigið eftirsótta.. já eða ég var allavega mjög staðráðin í því  Nótt vann aftur opna flokkinn með meistaraefni (CK) og náði svo að verða 2. besta tík og fá þetta líka æðislega íslenska meistarasig (CAC) sem mig langaði svo mikið í! Auk þess fékk hún vara alþjóðlegt meistarastig (Res-CACIB).            Á mánudaginn kom svo Þórdís Katla heim frá Svíþjóð en hún var svo heppin að fá að fara með Tinnu mágkonu og Kormáki syni hennar að heimsækja Höbbu og fjölskyldu í Gautaborg. Ferðin var dekur frá upphafi til enda held ég. Þau fóru í Liseber skemmtigarðinn, Astrit Lindgren garðinn og margt fleira!            Hryssurnar okkar eru allar komnar heim eftir heimsókn til stóðhesta. Assa fékk við Roða frá Garði þann 28. júní og kom heim eftir sónarskoðun þann 14. Ég sótti svo Glóð til Blæs frá Miðsitju 23. júlí en ég á eftir að láta sóna hana til að vera viss um að hún sé með farþega innanborðs. Hugsýn var svo sótt í gær til Ljósvíkings frá Steinnesi.        Glóð loksins komin í ný heimkynni       Hugsýn og Hugulsemi     Kanínuungarnir vaxa og dafna og ég þarf nú að fara að læra að kyngreina þá svo þetta fari ekki allt í vitleysu hjá mér :) Það er voða gaman að þessum greyjum. Koma hlaupandi þegar þeu verða vör við mann enda vön að fá eitthvað gott að borða þegar við komum til þeirra       Ég stefni á að vera með myndavélina á mér næstu daga til að bæta upp fyrir hálfgerða myndaleysið í sumar. Það er svo mikið um að vera hjá okkur alltaf hreint að það væri svo gaman að ná myndum af sem flestum framkvæmdum. Maður er nefnilega svo fljótur að gleyma!      Í dag sett Atli niður nýtt ræsi milli stykkja á Sturluhóli svo það sé óhætt fyrir verktakann að fara með nýju rúllusamstæðuna yfir skurðinn á morgun. Ég fór þarna sjálf yfir gamla ræsið á traktornum í dag, ekki með neina margmilljóna samstæðu í eftirdagi, og ég var með hjartað í buxunum! Ég er því mjög fengin að Atli dreif sig af stað í að laga þetta   Í gær fóru Atli og Geir "úr Skrapatungu" í múrviðgerðir á útihúsinum á Sturluhóli, meðal allars í "nýja" hesthúsinu mínu sem er alltaf að verða flottara og flottara! Svo stendur líka til að gera ótrúlega flotta kaffistofu/hnakkageymslu þarna  Stundum mætti halda að ég væri dekruð!     Við erum búin að fá byggingaleyfið fyrir klæðningunni á íbúðarhúsið á Sturluhóli. Ég get ekki beðið eftir að það verði búið að klæða það! Ég held að þetta verði ógeðslega flott  Við erum í startolunum að panta efni í klæðninguna og svo eru bara nokkrir dagar í að smiðirnir mæti á svæðið!      Á næstu dögum stendur svo til að moka út úr fjárhúsinu, setja nýtt hlið á fjallhólfið okkar og margt fleira! Aldrei verkefnaleysi hér á þessum bæ. </description>
Ótitlað
      <description>Ég gerði tilraun til að mynda folaldið sem kom í heiminn í gær en hryssurnar voru ekkert á því að hleypa mér of nálægt. Á svona dögum vantar mig Hugsýn mína til að hafa hemil á stóðinu, hún haggast aldrei. Alltaf er hægt að ganga upp að henni og taka hana þó maður svoleiðis sveifli framan í hana múlnum og mæti brauðlaus og allt. Hún stendur alltaf kyrr þessi elska  Ég smellti nokkrum myndum af öðrum hrossum í leiðinni og þessi 2. vetra Össudóttir er sérstaklega mikið fyrir augað  Svo loksins stoppuðu þessar drottningar og leyfðu örlitla myndatöku áður en þær æddu af stað aftur.Atli hamast í að klára að styrkja gamla hesthúsið á Sturluhóli svo hægt sé að setja nýja járnið utan á það en það gerist vonandi á morgun!</description>
Ótitlað
Jamm og jæja
      <description>Jamm og jæja! .. þessi heimasíða er nú bara alveg að deyja út hjá mér. Ég vil endilega reyna að halda henni gangandi enda er þetta minnið mitt, allt sem ég þykist muna er klárlega skráð hér og það eina ástæðan fyrir því að það er ekki gleymt! Það líða orðið margir mánuðir á milli blogga svo það verður alltaf heljarinnar átak að koma sér af stað í að skrifa! Ég nenni aldrei að skrifa neitt nema að hafa myndir með svo það fer eiginlega mesta vinnan í að halda utan um myndirnar. Reyndar verð ég að viðurkenna að undanfarið hef ég bara ekki verið nógu dugleg að taka myndir, ég þarf klárlega að herða mig í þeirri deild. Ég sé að ég hef ekki sett inn frétt síðan í janúar svo ég ætla að reyna að stikla á stóru og segja eitthvað frá vetrinum og vorinu.Veturinn var í minningunni frekar langur og mikið um leiðinlegt veður. Ég var allavega alltaf að segja vinnukonunum mínum að þetta færi að skána, mér fannst það samt gerast ansi seint. Ég var með eina Hollenska stelpu hérna í nokkrar vikur sem sá held ég varla neitt nema lægðir, þar á eftir kom ein frá Þýskalandi sem er búin að vera hjá mér í 3 mánuði og hún er varla farin að sjá sólardag. Ég held að sumarið sé nú reyndar loksins mætt svo vonandi verður framhaldið gott  Sauðburður byrjaði 5. maí eftir mikla eftirvæntingu. Þetta er okkar fyrsti alvöru sauðburður svo þetta var bæði spennandi og strembið. Við samstillum allar ær og lambgimbrar og sæddum. Þessar ungu héldu illa í sæðingum en þessar eldri ágætlega. Vegna samstillingarinnar kom sauðburðurinn því í gusum sem er bæði gott og slæmt. Fyrstu dagarnir voru mjög skemmtilegir, nokkrar sem báru á hverjum degi og alltaf nóg að gera. Svo kom pása í nokkra daga, svo báru nokkrar á nokkrum dögum, svo aftur pása og svo voru þessar síðustu heila eilifð að klára að okkur fannst. Þórdís Katla og Anna Rakel vinkona hennar með lambÉg var svo heppin að fá hana Brynju Pálu frænku í heimsókn yfir fyrstu sauðburðarhjálpina. Atli var erlendis svo það var gott að fá svona duglega stelpu til okkar. Zanný vinkona var líka boðin og búin svo ég var í góðum málum  Brynja Pála með eitt af sæðingarlömbunumVið sluppum við að missa ær en hún Sparikolla varð þó eitthvað veik. Ég veit ekki hvað amaði að henni en ég stalst til að gefa henni breiðvirkt sýklalyf fyrst ég átti það til og hún allavega braggaðist og er enn á lífi úti með flottu gimbrina sína undan Þoku-Hreini  Sú mun heita Spari-Þoka ef hún skilar sér heim í haust.Sparikolla bíður eftir fóðurbætiEin sæðisgimburin undan Drífanda fæddist risa stór og var alltaf eins og skessa við hliðina á öðrum lömbum. Hún fær nafnið Skessa í haust ef hún skilar sér heim.Ekki voru allir gemlingarnir stórir og miklir svo einhverjir fengu sérmeðferðir og dekur. Hér eru Óvænt, sem kom óvænt í réttirnar sl. haust með móður sinni, og ein af kaupagimbrunum mínum sem hefur bara ekki stækkað nóg í vetur.Sauðburðaraðstaðan okkar var alveg að gera sig. Við gerðum 8 einstaklingsstíur sem dugði okkur vel enda ekki með nema innan við 40 sem áttu að bera. Svo var notaður hitalampi yfir nýjustu lömbin svo engum yrði nú kalt  Vinnukonan fékk alveg stundum að setjast niður og fá sér kakó.. en bara stundum  Ég varð að taka selfie með Spari-Þoku.. hún verður algjört spari þessi  Í þessu kalda vori var ósköp gott að hafa mjög rúmt pláss og geta leyft lambfénu að ganga við opið. Stundum voru skáturnar bara settar inn fyrir nóttina. Mér fannst lömbin dugleg að leita inn í skjólið og þessar mömmur gátu bara alveg verið inni með þeim að passa upp á þau í köldustu og blautustu veðrunum.Þórdís Katla kom reglulega við og tók út nýju lömbin.Íris Björg er líka mjög áhugasöm um "me" og fannst sko ekki leiðinlegt að halda á lömbunum. Lólý systir og fjölskylda gerðu sér ferð hingað norður til að kíkja í smá sauðburð. Þó að það hafi verið fáar eftir óbornar þá fengu þau samt að sjá tvö lömb koma í heiminn. Annað þeirra var grábotnótt gimbur sem Sandra Dilja ætlar að finna í réttunum og eigna sér. Ég er búin að segja henni að hún fengi númerið 261 og hún verði bara að finna hana  Ágúst ætlar líka að koma í haust og hjálpa mér að draga svo Sandra verður að passa að Ágúst finni hana ekki á undan!Bjarki Rúnar, Ágúst Unnar og Sandra Diljá fylgjast með.Hér er botna litla (sem ég man ekki hvað Sandra vildi nefna) að fæðast.Nótt var mikið með okkur í fjárhúsunum og lætur fátt framhjá sér fara, hún er þó ekki endilega með einhverja fyrirferð þó hún kunni það sko alveg líka! Nótt á vaktinniÞað voraði svo seint að það þýddi ekkert nema að hafa rúllur hjá fénu þó það væri sett á nýræktina. og svo var svarti sparijeppinn notaður sem skjól! .. .. og hitt gullið reyndar líka..Sauðburði lauk svo loksins 12. júní. Við fengum óþarflega marga hrúta miðað við gimbrar en þó bíð ég spennt eftir að fá nokkrar af þeim heim í haust í dóm  Einnig fengum við mikið minna af litum en ég taldi ég hafa samið um við hrútana okkar. T.d. var nú settur á einn flekkóttur en okkur fæddist ekki eitt einasta flekkótta lamb. Hinn hrúturinn er botnóttur og fengum við eina botnótta gimbur og einn botnóttan hrút. Á vorin er vanalega beðið eftir folöldunum á þessum bæ en nú í ár létu þau ekkert bíða eftir sér, fyrsta folaldið kom 28. maí en það var hún Assa sem kastaði rauðstjörnóttum hesti undan Byr frá Borgarnesi. Rauður hestur var nú ekki það sem ég hafði pantað en eins og Helga mín í Miðengi segir alltaf þá er rauður hestur betri en dauður hestur  Byr frá BorgarnesiHugsýn mín kastaði svo 4. júní, án þess að ég væri farin að bíða eftir henni. Viti menn.. ég fékk fína skjótta, tvístjörnótta hryssu sem ég stend í trú um að sé jarpvindskjótt  Þessi er líka undan Byr frá Borgarnesi. Hún fékk nafnið Hugulsemi því ég sagði strax í fyrra að nú ætlaði ég að fá jarpvindskjótta hryssu og sú ætti að heita Hugulsemi, það væri jú svo hugulsamt af gömlu minni að verða við þessari ósk. Hún bætti svo við og gaf mér tvær stjörnur. Hún klikkar ekki hún Hugsýn mín  Nokkrum dögum síðar keyri ég svo fram á Orðu mín að kasta en ég átti ekki von á hennar folaldi fyrr en seint í júní. Eitthvað hefur bókhaldið mitt klikkað eða þá að hún hefur eitthvað verið að flýta sér. Ég fylgdist með köstuninni og átti hún rauða tvístjörnótta hryssu undan hesti sem ég man ekkert hvað heitir en sá er undan Óskasteini frá Íbishóli. Þetta folald er algjört slys en Orða mín stakk af síðasta sumar og fann sér stóðhest, alveg upp á eigin spítur.Ég ætlaði svo ekki að halda nema einni hryssu en alltaf gerir maður aðeins meira. Ég eignaðist nýja hryssu um daginn en henni verða gerð betri skil fljótlega. Hún var sótt um helgina austur í Landeyjar og fór beint undir Blæ frá Miðsitju Hugsýn fór á fimmtudaginn undir efnilega leirljósan fola frá Steinnesi. Sá heitir Ljósvíkingur og er undan Óskasteini frá Íbishóli og Oddsdóttur.Assa fer svo undir hinn fallega Roða frá GarðiHeimsenda Sumar Nótt varð 2 ára í apríl og mætti í fyrsta skipti í opinn flokk á tvöfalda sýningu Hundaræktarfélagsins í maí. Hún vann opna flokkinn á báðum sýningunum og fékk meistaraefni á sunnudeginum og frábæra umsögn. Ég er voðalega ánægð með þennan voffa minn.Við gerðum okkur svo ferð suður aftur núna um nýliðna helgi á deildarsýningu Fjár- og hjarðhundadeildarinnar. Sama dag var sýning hjá Deild íslenska fjárhundsins svo við byrjuðum á að hanga þar allan daginn og fylgjast með fínu íslendingunum. Linda vinkona hefur verið dugleg að sýna Nótt fyrir mig og er svo miklu betri í því en ég. Þar sem þessar sýningar voru sama dag var erfiðara fyrir Lindu mína að sjá um okkur Nótt líka, hún hafði eiginlega nóg að gera á sinni sýningu. Ég brá á það ráð að freista þess að fá annan sýnanda fyrir Nóttina því mér leist ekkert á að sýna hana sjálf. Ég var svo stálheppin að fá svakalega góðan sýnanda fyrir hana þó ég hafi ekki haft samband við hana fyrr en samdægurs. Þarna duttum við Nótt í lukkupottinn því Theodóra og Nótt voru hrikalega flottar saman og ég eiginlega hélt niður í mér andanum á meðan þær voru í dómi. Útkoman var dásamleg. 1. sæti í opnum flokki með meistaraefni.og svo í úrslitum varð hún þriðja besta tík og fékk sitt fyrsta íslenska meistarastig!Nú bíðum við bara spenntar eftir tvöfaldri útisýningu HRFÍ í júlí  Atli situr aldrei auðum höndum. Um leið og sauðburði lauk málaði hann útihúsin (og mér finnst það flott sama hvað hann hefur sagt öðrum!) Þar á eftir fór hann af stað í að endurbyggja gamla hesthúsið á Sturluhóli.Ég er ekki frá því að hann haldi svo áfram með húsið mitt heima á Mánaskál þegar hann klárar að loka hesthúsinu  Við erum enn að bíða eftir að teikningarnar af klæðningunni á íbúðarhúsið á Sturluhóli verði tilbúnar. Það er nú orðið dálítið síðan að þeim var lofað fyrst. Allt þarf þetta svo að fara fyrir byggingarnefnd sem gefur okkur leyfi til að klæða húsið. Í haust á það allta að vera klætt og frágengið! Ég hlakka mjög til að sjá útkomuna. Ég held að húsið verði glæsilegt  Nú og svo verður fjölskyldan að fá nokkrar línur í fréttunum en stelpurnar bara stækka og dafna. Þórdís Katla útskrifaðist úr 1. bekk með góðum árangri og er komin í langþráð sumarfrí. Þessi dugleg stelpa les, skrifar og reiknar og er altalandi á ensku, hún hefur sko rúllað því upp að byrja einu ári á undan í grunnskóla  Íris Björg stækkar og verður kröftugri með hverjum deginum. Hún er mjög sjálfstæð og lætur ekkert stoppa sig. Það þarf nú svosum heldur ekkert því hún er svo dugleg. Hún vill helst af öllu vera úti að leika og leiðist ekki að prufa fjórhólið og kíkja á kindurnar okkar  Svo eru nú víst tíðindi að fjölskyldan stækkar enn frekar í haust en þá bætist við annað systkin í hópinn. Áætlaður lendingardagur er 28. október og það verður spennandi að sjá hvort við fáum þriðju duglegu heimasætuna eða lítinn bróðir  Ég veit að ég er að sleppa fullt af hlutum en ég ætla að skrifa fljólega aftur og halda áfram að ryfja upp veturinn og vorið.</description>
Sveitastörfin
      <description>Nú er Merle vinnukona farin frá okkur, hún er reyndar í Reykjavík framyfir helgi en svo heldur hún heim á leið. Hún hélt úti bloggsíðu á meðan hún dvaldi hérna. Þetta er allt á þýsku og ég hef ekki google translate-að þetta ennþá en ég kem því kannski í verk einhvern tímann. Hún tók skemmtilegar myndir og birti með bloggunum sínum. Hér er slóðin á síðuna hennar http://gluecklichesekunden.jimdo.com/mein-blog/Merle langaði í íslenska lopapeysu svo ég Gunna "mákona" prjónaði peysu fyrir hana. Merle valdi sjálf peysuna og litina og mamma verslaði garnið fyrir mimg. Útkoman var æði og Merle var mjög ánægð með hana. Hún tók líka æðislegar myndir af stelpunum okkar.Fallegi dalurinn okkarSönnun fyrir því að ég mokaði sjálf upp jeppann um daginnFreyja að velta sérNú hefur Atli verið að heiman undanfarið svo við stelpurnar erum að redda okkur með dagleg verkefni. Við fengum nýja vinnukonu á föstudaginn en sú er Hollensk en uppalin í frakklandi. Hún var eiginlega strax sett í vinnu því ég þarf dálitla aðstoð með stelpurnar svona þegar Atli er ekki heima. Ég er þá ein um að sinna búskapnum  .. en mér leiðist það nú ekkert. Nú um helgina er ég búin að yfirfara girðinguna sem hrossin eru í og bæta við streng ýmist undir eða yfir eftir aðstæðum. Ég er að vona að með þessu verði hægt að halda straum á girðingunni. Ég gaf svo kindunum í hlöðunni, hrossunum sem eru úti og setti rúllu inn í hesthús. Ég er ekki frá því að ég sé nokkuð sátt við þessa helgi  Ég stenst sjaldan mátið að mynda þessar prinsessur mínarHófsemi undan Hvítserk og Hugsýn KjarvalsdótturAldrei undan Hvítserk og Össu NúmadótturÞessi litla leikskólaskotta blómstrar  Nótt er mjög áhugasöm um Lopa kanínu. Ég hef ekki enn þorað að leyfa þeim að hittast laus á gólfinu en það kemur vonandi að því. Hérna er Nóttin að skoða nýjasta vin sinn í gegn um rimlana  </description>
Myndir
      <description>Síðasta vika leið mjög hratt enda upplifir maður það stundum að það séu ekki nægilega margir tímar í sólarhringnum. Það er samt bara gaman því það er ljóst að manni leiðist ekki á meðan  Það er gott að hafa nóg að gera í sveitinni.Ég fór aðeins út með myndavélina um helgina en ég er að reyna að taka mig á í myndatökum. Hrossin okkar eru á gjöf á Sturluhóli og hafa það fínt þar.Hófsemi frá Mánaskál undan Hvítserk frá Sauðárkróki og KjarvalsdótturÉg er ánægð með það hvað folöldin eru forvitin. Svo vera þessar tvær Hvítserksdætur okkar teknar inn  og gerðar bandvanar við tækifæri.Aldrei frá Mánaskál undan Hvítserk frá Sauðárkróki og Númadóttur.Askja kíkir á Merle vinnukonuAskja er á öðrum vetri undan Kvist frá Skagaströnd og Númadóttur.Vörður hennar Brynju Pálu er forvitinnHér er hún Lovísa sem er á leið til Þýskalands, hún er ein af gestahrossunum hjá okkur.Lovsía frá BorgarnesiEkta-Von frá ÁlfhólahjáleiguFreyja frá Fremri-FitjumLjósbrá frá HólkotiÝla frá Felli er hérna lengst til vinstri en hún er ein af gestahryssunum og folaldið hennar Ljósbrár þar við hliðina.Þær elstu tvær voru ekkert að fara mikið úr heyinu þó við værum þarna  Hugsýn mín gamlaRákin mínVið Nótt fórum svo í smá göngutúr áðan í frostinu og tókum myndavélina meðMyndavélin var líka tekin með í fjárhúsið  Þessar tvær eru í einkakró í hesthúsinu og fengu ekki að vera hjá hrút. Sú kollótta kom sér reyndar einhvern veginn í annan hrútinn um daginn svo það gæti nú verið að hún beri í vor. Fósturvísatalningar verða svo um mánaðarmótin febrúar mars en ég er mjög spennt fyrir þeim  Óvænt og Aldís (sem hefur viðurnefnið Stappa því hún er sístappandi niður fótunum).Óvænt litla kom af fjalli í september þá ekki nema ca 2 vikna gömul. Hún hefur stækkað alveg helling og verður vonandi að alvöru kind einn daginn  Já og kanínubúskapurinn gengur enn, kanínurnar eru allavega enn á lífi. Svo bættist aðeins í fjölskylduna fyrir helgina en hann Lopi kanína kom til okkar. Hann er reyndar bara heima á Mánaskál enn sem komið er en flytur líklega í hesthúsið til hinna kanínanna síðar.Nú styttist í að Merle fari aftur heim til Þýskalands og hennar verður saknað. Hún er búin að standa sig svo vel hjá okkur og hún er sérstaklega dugleg að leika við stelpurnar.</description>
Nýtt ár
      <description>Nýtt ár er mætt og nóg að gera í sveitinni. Haustið hefur liðið ótrúlega hratt og mér finnst örstutt síðan kindurnar fóru upp á Sturluhól. Atli hefur verið mjög duglegur að vinna á Sturluhóli og aðstaðan í hlöðunni fyrir kindurnar er orðin ansi góð. Við erum með eina stóra gjafagrind fyrir allar ærnar en skiptum þeim upp í tvo hópa þar sem gimbrarnar fá að vera öðrum megin og eldri ærnar á móti. Það er mjög rúmt á báðum hópum og þær hafa það fínt. Hrútarnir eru svo með stóra kró í hesthúsinu. Við fengum eina litla óvænta gimbur í heim haust sem ekki tók að lóga og svo settum við á eina sem var heldur smá til að setja í hrút svo þær tvær hafa haft sína sér stíu líka í hesthúsinu þar sem þær fá nægt fóður og fóðurbæti.Atli er búinn að koma rafmagninu í stand í útihúsinu en það var algjör skortur á því. Núna er nóg af inni og úti ljósum og meira að segja næturlýsing fyrir skeppnur og menn. Atli er svo nýbúinn að ganga frá vatninu í hesthúsinu svo nú eru komar vatnsskálar í báðar krær í hlöðunni og í allar stíur í hesthúsinu sem er mikill munur.Í haust tók ég að mér nokkrar hryssur í fóðrun sem eru á leið í útflutning til Þýskalands. Þær eru á Sturluhóli ásamt mínum hrossum og hafa það gott þar á gjöf. Reyndar fór svo að ein af þessum hryssum hefur verið seld til ábúandans á Sturluhóli svo hún fer ekki út.Nótt mín fór á hundasýningu í haust á meðan ég sat heima með lungnabólgu og sárt ennið. Ég er svo heppin að hafa góða að því ég gat fundið far fyrir prinsessuna og fengið samastað fyrir hana í Reykjavík, bað og blástur, sýnanda og allan pakkann!  Nótt fékk 1. sæti í unghundaflokki með Excellent og meistaraefni og áframhaldandi keppnisrétt um bestu tík tegundar. Hún landaði þar þriðja sæti í annað skipti og fékk vara alþjóðlegt meistarastig og frábæra umsögn! Ég var alveg í skýjunum yfir þessum árangri. Hún er enn ung og á eftir að taka út þroska en ég vona að hún eigi bara eftir að halda áfram að blómstra.Heimsenda Sumar NóttÞriðja besta tík tegundar, meistaraefni og vara alþjóðlegt meistarastig  Þó að Nóttin sé fín á hundasýningu þá er þessi drottning bara flottust heima í sveitinni.Við samstilltum allar ærnar okkar með svömpum til að stýra sauðburðinum og vonandi fá fullt af fínum gimbrum undan sæðisstöðvahrútum. Við ætlum að halda áfram að fjölga fénu svo við verðum endilega að fá mikið af góðum gimbrum í ásetning.Ég skellti mér svo á námskeið í sauðfjársæðingum í haust og það var mjög skemmtilegt, ekki síst að fá að koma á sauðfjárræktarbúið að Hesti í Borgarfirði og sjá aðstöðuna þar. Við sæddum svo 15-18. desember og bíðum spennt eftir fósturvísatalningu! Þetta var fyrsta sæðingin okkar og maður er reynslunni ríkari fyrir næsta ár. Við fylgdumst með ánum þegar kominn var tími á næsta gangmál og því miður gengu of margar upp, en endanleg niðurstaða er ekki ljós ennþá. Við krossum allavega putta um að frjósemin verði fín og svo óska ég auðvitað eftir extra háu hlutfalli af gimbrum svo ég eigi nóg í ásetning í haust. Ég er allavega þakklát fyrir það að ég á nokkrar sparikindur sem ég ef ekki orðið vör við að hafi beitt upp svo ég krossa putta! Jól og áramót voru ósköp yndisleg en við vorum heima í þetta skiptið og nutum þess að hafa allt afslappað og rólegt. Hin þýska Merle sem kom til okkar í október var með okkur yfir jólin og átti góðar stundir með okkur. Jólin okkar eru töluvert frábrugðin hennar hefðum en ég held að hún hafi haft gaman af þessu öllu saman. Pakkaflóðið klikkaði auðvitað ekki og fengu stelpurnar margar og góðar gjafir sem við erum þakklát fyrir. Spenningurinn var auðvitað mikill en stelpurnar stóðu sig svo vel í biðinni. Jólaljósin á aðventunni voru dálítið spennandiÞórdís Katla tilbúin með bjúgu fyrir bjúgnakræki. Ketkrókur fékk líka hangilæri!Milli jóla og nýárs voru svo hross tekin á hús. Vaka og Kóngur voru tekin inn ásamt 5 hrossum frá Gísla og Hafdísi á Sturluhóli. Ég og Merle eru búnar að fara nokkrar ferðir á bak og það er voða ljúft að vera komin með hross á hús.. en þó verður að viðurkennast að það vantar dálítið upp á tímann í þetta. Ég skráði mig nú samt á reiðnámskeið á Blönduósi í vetur og ætla að vera þar með Kóng í knapamerkjum. Merle er vön að ríða pólóhestum og vill bara ríða berbakt, ég kýs hnakkinn  Ég hef nú alltaf verið dýrasjúk og fæ reglulega einhverjar flugur í hausinn. Sú nýjasta eru kanínur. Ég er búin að kaupa tvær holdakanínukerlingar og ætla að sjá hvernig mér líst á að eiga kanínur. Ég hef nóg af plássi og eins og er þá eru þessar tvær í allaveg 10 fm stíu í hesthúsinu. Ég er reyndar nú þegar búin að panta eina kanínu í viðbót og lofa að taka að mér eina kanínu í heimilisleit en það er nóg pláss enn  </description>
Fé komið á hús
      <description>Nýju gimbrarnar mínar mættu á norðurlandið fyrir rúmri viku síðan. Þær fengu far með gimbrum sem voru að fá nýtt heimili að Fremsta-gili og ég verð að viðurkenna að þeirra gimbrar voru dálítið mikið flottari á litinn en mínar en jæja, mínar eru samt alveg fínar  þó þær séu allar hvítar.Við fluttum svo kindurnar að Sturluhóli á miðvikudaginn en þá var kominn tími til að bólusetja kaupagimbrarnar öðru sinni, þá var alveg eins gott að taka þetta allt heim. Bjarki á Breiðavaði aðstoðaði okkur að koma fénu á kerrur og ég verð að segja að það er snilld að eiga svona hörkuduglega og vel þjálfaða Border Collie hunda (þið getið rétt ýmindað ykkur hvað ég er að hugsa!). Enginn þurfti að hlaupa og missa andann! Love it!Atli vinnur eins og herforingi á Sturluhóli og eyðir öllum sínum tíma þar að undirbúa fyrir veturinn. Útihúsin eru í forgangi ennþá en við förum að sjá fyrir endann á því helsta sem liggur á þar.Hurðin er komin uppKomið gler í alla glugga á hlöðunniMörg járn í eldinum! Kindurnar eiga að fá að ganga við opið og fá það besta úr báðum heimum (endalaust dekraðar þessar elskur). Þær voru settar í hólfið við hlöðuna og eiga að vera hamingjusamar þar. Ég mætti með fóðurbætistunnuna og uppskar smá vinsældir við það.Aska hans KormáksTvenna SparikolludóttirKindurnar voru ekki hamingjusamari en það að þær gerðu mjög svo heiðarlega tilraun til að strúka úr hólfinu. Atli kom sem betur fer auga á þær í gærkvöldi og gat fengið aðstoð við að koma þeim aftur heim. Þær voru því settar inn og verða þar þangað til búið verður að yfirfara girðinguna og styrkja hana. Þær virðast geta farið í gegn um allt ef þær vilja. Þar sem hlaðan er ekki tilbúin voru þær settar inn í hesthús en þar er nóg pláss líka svo það fer ekkert illa um þær.Í dag tengdi Atli svo fyrstu vatnsskálina í hlöðunni og fleiri eru væntanlegar  Gjafagrindin ætti svo að vera tilbúin eftir nokkra daga. Allt að gerast  Ég er búin að vera að bíða eftir fínu móflekkóttu forystugimburinni frá Hafrafellstungu sem ég festi mér í vor. Hún hefur svo bara ekki skilað sér af fjalli blessunin svo líklega gerir hún það ekki úr þessu  Það hefur ekki farið framhjá neinum á þessu heimili að haustið sé gengið í garð. Pestir hafa lagst óvanalega þungt á fjölskylduna og eiginlega bara á stelpurnar. Íris er búin að vera lasin af og til síðastliðinn mánuð og lagðist enn eina ferðina í flensu á fimmtudagskvöld (auðvitað akkúrat þegar Atli fór suður að vinna). Við mæðgur vorum því heima á föstudaginn og vorum líka innandyra allan gærdag. Íris var hraustari í dag svo við kíktum á Sturluhól og kíktum á kindurnar en henni finnst það sko ekkert leiðinlegra en mér! Hún er algjör kindakerling  Þórdis Katla fékk ný íþróttaföt þegar Atli kom að sunnan og hún hefur ekki farið úr þeim alla helgina! Hún er alsæl með nýja fótboltaskó, stuttbuxur og bol. Svo hefur verið spilaður fótbolti hér innandyra og á Sturluhóli alla helgina.Svo er hún lika orðin svo stór að hún er búin að missa fyrstu tönnina!Svo eru fleiri nýjar myndir í myndaalbumunum  </description>
Lítið kindablogg
      <description>Það er alltaf nóg að gera í sveitinni og okkur leiðist það sko ekki. Ég hef reyndar hangið yfir bókhaldinu alla helgina við mikinn ófögnuð en í dag fór ég aðeins út því ég bara varð að komast ÚT. Ég kíkti við það tækifæri á nokkrar góðar vinkonur hér niður á túni.Þegar við fóðurbætistunnan gerðum vart við okkur komu þessar hlaupandi.Algebra frá Hraunhálsi fremst í flokkiAlgebra er skemmtilega spök og ein af þessum uppáhalds kollóttu (þær eru nú samt næstum því allar uppáhalds). Hún átti áberandi besta gemlingslambið í fyrra og í ár átti hún líka þyngsta lambið. Algebra er undan Lagði.Fóðurbætirinn er rosa góður Veturgamla Mökk er komin í heimsókn líkaSvo bættist Aþena hennar Þórdísar í hópinnHrúturinn hennar Aþenu var settur á Þórdísi til mikillar gleði. Hann er svarbotnóttur Grámannssonur og vonandi fáum við einhver botnótt lömb undan honum í vor. Ég gaf honum nafnið Hraunar en Þórdís Katla er víst búin að nefna hann allt öðru nafni, einhverju sem hún sá í Börnunum í Ólátagarði. Kannski ætti hann bara að heita Ólátabelgur.Mökk fékk dálítla atygli í vor því hún átti mjög erfiðan burð. Hún átti gríðar stóran hrút og var smá stund að jafna sig og gekk illa að ná upp mjólk. Við brugðum á það ráð að gefa lambinu pela í nokkra daga en fljótlega var Mökk sjálf farin að spekjast og farin að líta hýru auga á pelann. Ég fór því að gefa henni mjólk líka. Þegar lambið hafði klárað sinn sopa fékk hún restina í skál og svo gekk ég alla leið og blandaði tvær blöndur, eina fyrir lambið og aðra fyrir Mökk. Ég var aðeins rög við að sleppa þeim út og setti þau því í garðinn í einn eða tvo daga. Það var æðislegt að fara út til þeirra með mjólk því ég veit eki hvort jarmaði meira á móti mér, lambið eða ærin  Frameftir sumri var ég svo að rekast á þau og þá komu þau jarmandi á móti manni.Mökk hefur engu gleymt og er mjög spök og forvitinHrúturinn hennar Makkar reyndist svo 43 kg í haust og viktaði 17,9 kg í SAH svo hún hefur alveg mjólkað nóg eftir þetta.Ekki eru nú allir háir eða þungir í túninu hjá mér. Þessi litla gimbur er væntanlega fædd í lok ágúst. Ég vona að hún braggist í vetur með stóru gibbunum. Mamma hennar var sónuð með tvo fósturvísa í vetur en Ásta í Veðramóti taldi að hún væri búin að láta. Hún var því sett út í vor sem geld enda var ekki annað að sjá en að hún væri tóm. Það kom því dálítið á óvart þegar þessar mæðgur mættu í réttirnar. Hún hefur því fundið sér hrút eftir fóturvísatalninguna. Það er nú svolítið merkilegt með þessa kind að sama gerðist gemlingsárið hennar. Í henni voru taldir tveir fósturvísar en svo urðum við vör við að hún væri að láta í mars/apríl. Þessi heitir Afþreying og er undan Lagði eins og Algebra en móðir hennar er undan Grábotna.Algebra var kjössuð í bak og fyrir og kunni vel við athyglina.Útsýnið úr stofunni minni er líka bara frábært.. kindur og hestar. Svona á lífið að vera Atli setti upp járnstoðir í hlöðuna til að halda uppi þakinu. Við létum burðarþolsreikna þetta og það þurfti ekki nema tæp 800 kg af járni til að halda þessu uppi en það hafa engar stoðir verið undir þakinu í fleiri ár. Næstu dagar og vikur fara líklega í að halda áfram að gera tilbúið á Sturluhóli fyrir kindurnar okkar.Það stóð ekki til að kaupa fé í ár en svo frétti ég af sveitungum sem voru að fara á Snæfellsnesið að sækja sér gimbrar. Þá var nú ansi freistandi að kaupa sér nokkrar og fá þær heimsendar  Ég meina það er nú ekki hægt að láta fólk fara í svona ferð nema að kerran sé fullnýtt   Ég hafði samband við Hraunháls en við höfum keypt fé þaðan síðastliðin tvö ár en ég var of sein, allar álitlegar gimbrar voru þegar seldar. Til að fyrirbyggja svona að ári, lagði ég strax inn pöntun fyrir næsta haust! Eftir nokkrar fyrirspurnir fann ég gimbrar til sölu sem hægt var að nálgast nú um helgina en það var á bænum Fáskrúðarbakka. Ég fékk upplýsingar um nokkrar gimbrar sem ég gat valið úr og úff, þetta er meira en að segja það. Eftir marga hringi og langann umhugsunartíma gat ég loks ákveðið mig.. en gimbrarnar sem áttu að vera 3-4 urðu 6.  Svo er bara að vona að þessar skjátur standi sig og ég lendi ekki í sömu hremmingum og síðasta vetur þegar 2 af 5 gimbrum sem ég keypti voru dauðar fyrir áramót og svo misstum við 2 ær til viðbótar á sauðburði. Gimbrarnar eru allar hvítar og hyrndar (engar kollóttar til), ein er undan Guðna (og fær nafnið Systir), ein undan Garra, tvær undan Snævarssyni, ein undan Grábotnasyni og ein undan Prúðssyni. Ég bíð spennt eftir að sjá þessar skjátur mínar  </description>
Kominn tími á færslu!!
      <description>Jæja núna gengur þetta ekki lengur! Ég hef ekki komið með færslu síðan í júlí í fyrra og ætla hér með að bæta úr því. Ég geri samt ráð fyrir að ansi margt "fréttnæmt" gleymist í þessari yfirferð en ég ætla allavega að reyna að stikla á því sem helst hefur á daga okkar drifið síðastliðið rúmt ár! Svona að tilefni þess að síðusta færsla er síðan í júlí í fyrra þá er væntanlega mál málanna að ég fæddi stúlku þann 16. ágúst (í fyrra!) Þessi prinsessa er nú orðin rúmlega ársgömul og eins og eflaust allir vita nú þegar heitir hún Íris Björg og er algjör gaur  Á fæðingardeildinniSystur að kynnastHún var ekki lengi að stækka..Þórdís Katla stækkar líka hratt og er komin í skóla SkólasetningFyrsti skóladagurinn Lífið í sveitinni hefur verið ljúft í sumar. Veiðin í Laxá á Refasveit hefur gengið vel og Atli fór aðeins í hana sjálfur. Ég ætlaði að setja hér inn myndir af Atla í veiðinni en finn engar myndir í tölvunni minni svo ég vísa bara á heimasíðu árinnar www.refasveit.is þangað til ég kemst í myndirnar sem allar virðast vera í Atla tölvu. Í vor fengum við tvö folöld, bæði undan Hvítserk frá Sauðárkróki sem er 1. verðlauna hestur undan Álfi og Smáradóttur. Assa kastaði 31. maí brúnni hryssu sem fékk nafnið Aldrei.Ég sá út um eldhúsgluggann þegar Assa var lögst til að kasta og rauk af stað og rétt missti af því þegar hryssan kom í heiminn en við náðum henni samt svona glænýrri   Assa verður stygg þegar hún er köstuð og var ekki til í að sýna okkur folaldið sitt neitt of mikið. Fljótlega rákum við hana því í aðhald og tókum folaldið hennar til að handfjatla það. Aldrei litla fékk þar allskonar klapp og klór.Hugsýn kastaði svo 23. júní eftir mikla bið! .. ég var alveg farin að velta fyrir mér hvort það væri ekki örugglega folald í henni eftir allt. Ég var búin að vakta hana og fylgjast með henni svo lengi að ég var eiginlega hætt að nenna því. Það var auðvitað þá sem hún kastaði. Atli hringdi í mig í vinnuna og sagði mér að nú yrði ég glöð þegar ég kæmi heim! Þegar ég kom heim blasti svo við mér þessi líka fína skjótta, blesótta hryssa  Þessi sæta hryssa fékk nafnið Hófsemi.. svona bara því hún er svo "hóflega" skjótt  Bæði Assa og Hugsýn fóru svo undir Byr frá Borgarnesi sem er ungur, jarpvindóttur 1. verðlauna hestur. Ég er að sjálfsögðu búin að leggja inn beiðni um tvær vindóttar hryssur. Orða frá Stórhóli er loksins orðin 3. vetra og til stendur að hefja tamningu í vetur. Hún stakk mig af blessunin í sumar og fannst svo síðar í hólfi á næsta bæ.. og já auðvitað hjá stóðhesti  mér til mikillar "gleði". Ég geri því fastlega ráð fyrir að fá eitt aukafolald á næsta ári. Ég ætla samt að reyna að byrja á tamningunni í vetur, en það fer aðallega eftir því hvað mér tekst að búa til mikinn tíma fyrir hrossin í haust/vetur.Í vor fengum við þrigga fasta rafmagn og ljósleiðara  Nýja nettengingin er algjörlega ástæða þess að ég legg í að blogga á ný. Nýja netið er algjör bylting og svo fengum við líka Rúv snjólaust og fullt af öðrum stöðvum í kaupbæti, algjör lúxus. Fyrst við vorum hérna með gröfuverktaka á hlaðinu þá sömdum við við hann um að taka grunninn að nýja fjárhúsinu okkar. Grunnurinn var tekinn og vatnslagnir og rafmagn plægt að grunninum.  Síðan þá hefur ekkert gerst þar sem við tókum skyndilega U-beygju og settum fjárhúsbygginguna á bið og fjárfestum í annari jörð í staðinn. Jörðin heitir Sturluhóll og er í næsta nágreni við okkur, ca. 5 km frá okkur og um ca 2 km frá Skagastrandarvegi. Á jörðinni er íbúðarhús með bílskúr og eldri útihús. Hvort tveggja þarf viðhald og erum við komin af stað í allskonar framkvæmdir. Húsið þarf nauðsynlega á klæðningu að halda og vonandi komumst við í það fyrir vorið.Útihúsin hafa verið notuð sem hesthús síðustu ár. Ég ætla að hafa fé í hlöðunni og hesta í gamla fjósinu. Síðar meir verð ég væntanlega með fé þar líka. Við erum byrjuð að taka til hendinni og gera og græja. Íbúðarhúsið fer í útleigu um mánaðarmótin og því höfum við verið að eyða tíma í það núna. Eftir mánaðarmótin getum við svo sett meiri kraft í útihúsin. Síðan við fengum afhent þann 1. september höfum við tekið til, hent rusli, mokað út úr hlöðunni og hesthúsinu, lagað rafmagnið í hesthúsinu og hlöðunni, sett upp ljós inni og úti og girt. Í íbúðarhúsinu er búið að háþrýstiþvo, mála, pússa, hengja upp ljós, ganga frá rafmagni og fleira. Sævar mættur að moka útValerie vinnukona að háþrýstiþvoHérna erum við Valerie búnar að handmoka því sem liðléttingurinn náði ekki úr hlöðunniAtli að smíða stoðir undir þakið í hlöðunniÍ september er alltaf nóg að gera í réttum og því tengdu. Ég fór sjálf í göngur í fyrsta skipti í ár. Ég tók Valerie vinnukonu með mér og ég held að við höfum ekki gert mikið af okkur. Valerie var búin að vera dugleg að hreyfa reiðhrossin á meðan ég var í vinnunni, á milli þess sem hún vann allt milli himins og jarðar. Hún var sko algjör himnasending þessi stelpa og vonandi kemur hún til okkar aftur á næsta ári. Valeri á Vöku, teymir Rák og Kóngur utanáÍ göngunum kom ég á Mjóadal í fyrsta skipti sem var mjög gaman því þarna á ég land sem ég hafði aldrei séð. Séð yfir þröskuldÁ leið ofan í MjóadalMætt á MjóadalMjóidalurValerie og KóngurSafnið að koma niður að Balaskarðsrétt.Mamma og pabbi og Lólý systir og hennar fjölskylda komu til okkar réttarhelgina. Atli var erlendis og missti því af öðrum réttunum í röð. Þetta var þrælskemmtileg helgi og auðvitað nóg að gera. Við gistum öll á Sturluhóli svo það var nóg pláss fyrir alla.Valerie og Ágúst Unnar búin að finna SnædísiKiddi og Sandra fundu lambLengi vel leit dilkurinn okkar svona út.. rosa margt féEin af okkar kindum kom af fjalli með lítið lamb og fékk því far í réttina á kerru. Lambið var ca 1-2 vikna gamalt (réttirnar voru 7. sept). Lambið vakti mikla lukku enda voða lítið og sætt  Frændsystkin saman í réttunumKolla BÓNDI komin heim með litlu gimbrinaSeptember er algjör veisla fyrir sveitavarga eins og mig. Helgina eftir fjárréttirnar eru stóðsmölun og stóðréttir sem er ekki minna skemmtilegt en fjárréttir og göngur. Við Valerie fórum að sjálfsögðu ríðandi Laxárdalinn og höfum með okkur Kanadíska ferðakonu og Gumma vinnufélaga minn. Þar með voru öll mín reiðhross í notkun og hér með óska ég eftir reiðhrossum að láni næsta sumar  Ég fór í fyrsta skipti frá Gaustsdal eins og gagnamennirnir og það var upplifun að fara þessa leið núna en hingað til hef ég riðið upp Strúgsskarðið. Tiffany með Vöku og Valerie með KóngDrungi tapaði skeifu og fékk nýja neglda undir á KirkjuskarðiFullt af hrossum og fólkiRák, Drungi og VakaVið stelpurnar skelltum okkur á ball á Blönduósi með Made in Sveitin og Magna Ásgeirs um kvöldið. Þetta var rosalega gaman og þrátt fyrir langan dag þá varð ég eiginlega spæld þegar hljómsveitin hætti að spila  en fyrst stóðréttirnar eru svo daginn eftir var kannski bara ágætt að fara heim að sofa.Ég var ekki lengi að finna hana Orðu mína í réttinni.. ég þarf bara að finna alla útlendingana með myndavélarnar á lofti.. þá finn ég Orðu. Hún er alltaf vinsælt myndefni enda spök og nýtur þess að baða sig í sviðsljósinu.sko mig.. búin að finna hrossBrynja Pála kom svo norður til að finna sinn hest í réttunum og setja á hann múl. Þrátt fyrir mörg hross fundum við rétta hestinn og viti menn hann var ekki búinn að gleyma neinu frá fortamningunni í vor. Vörður frá Narfastöðum, Brynja Pála stoltur eigandi og Guðrún ÁrnýLambadómar fóru svo fram í síðustu viku og þá var loksins komið að því að uppskera árangur erfiði síns. Öll lömbin okkar skiluðu sér heim í haust fyrir utan það eina sem týndist hérna heima við bæ síðasta vor. Það var alveg merkilegt, kindin fór út með tvö lömb og var í hólfi hér heima við bæ með hinum kindunum. Allt í einu var hún bara með annað lambið og hitt fannst hvergi. Ég var langt frameftir nóttu að leita að lambinu hennar en allt kom fyrir ekki. Heilt á litið er ég var mjög ánægð með lömbin mín þetta árið. Ég fékk mun fleiri einlembinga en ég kæri mig um en í staðin voru lömbin að meðalali mjög væn. Sigurvegarinn í lambadómum þetta árið reyndist vera hrúturinn hennar Þórdísar. Við gátum þá með góðri samvisku sett hann á eins og við höfðum óskað okkur. Þessi hrútur er undan einni af spökustu kindunum og er botnóttur Grámannssonur. Hrúturinn hefur fengið nafnið Hraunar og er búinn að stækka ansi mikið síðan þessi mynd var tekin.Hraunar stigaðist svona:51 kgómv. 30ómfita 3,4lögun 5 fótur 104haus 8frampartur 8,5bak og útl 9bak 9malir 8,5læri 18ull 8fætur 8samræmi 8,5ALLS 85,5 stigAnnar hrútur var settur á svona bara "just in case".. svona ef þessi skyldi óvænt drepast eða eitthvað svoleiðis. Sá er undan Salamon sæðingarstöðvarhrút og þrílembu undan Frostasyni. Hann fékk nafnið Órói og hann er skemmtilega flekkóttur. Á þessum bæ voru semsagt bara settir á mislitir hrútar svo vonandi fáum við einhverja skemmtilega liti í sauðburðinum í vor  Við fengum líka vænar gimbrar og ætla ég að gera þeim nánari skil síðar.Ég veit að ég er að gleyma og sleppa mörgum hlutum sem ég hefði almennt leyft að fljóta með í bloggið en ég held að þetta sé orðið gott í bili. Ég ætla að vona að ég standi við að koma héðan í frá með fréttir reglulega. Það var bara svo erfitt að koma sér af stað fyrst það var orðið svo langt um liðið. </description>
Hryssurnar fengnar og eldhúsið tilbúið
      <description>Það var sónað frá Hvítserk frá Sauðárkróki í dag og við stelpurnar fórum að fylgjast með. Það er stutt síðan ég fór með hryssurnar okkar til hans og því átti ég alveg eins von á að þær væru ekki fengnar eða með of lítið fyl til að það sæist. Assa var sónuð með 23 daga fyli og Hugsýn með 16 daga fyl svo við erum bara sátt  Ég fór svo bara heim og sótti Atla og hestakerruna og við tókum hryssurnar og folöldin heim. Folaldið hennar Össu er rosa fallegt en vá hvað Hugsýnar sonurinn er rólegur og knúsulegur. Hann leyfir manni alveg að klappa sér í bak og fyrir, það er sko ekki mikið stressið á þeim bænum. Þar sem hryssurnar og folöldin eru komin heim í tún verður myndavélin örugglega eitthvað á lofti á næstu dögum.Ég tók loksins myndir af nýja eldhúsinu mínu! Eldhúsið mitt fyrirBúið að rífa innréttingunaBúið að rífa vegginn inn í borðstofunaAllt á hvolfiEldhús eftir breytinguEldhúsið teygir sig inn í borðstofunaÞegar klæðningin á veggnum í borðstofunni var rifinn kom í ljós gamall panill sem fékk að halda sér.Við erum voða ánægð með breytinguna á eldhúsinu enda skápaplássið ólíkt meira nú! </description>
Ótitlað
      <description>Júlí mánuður er nánast á enda og það þýðir að það styttist í barnið! Ég er gengin rétt tæpar 39 vikur og var að hætta að vinna svo núna er maður "formlega" farinn að bíða eftir nýja fjölskyldumeðliminum  Ég held að það sé allt að verða tilbúið en síðasta þvottavélin er akkúrat í gangi núna. Það er alltaf eitthvað að frétta héðan úr sveitinni. Í júní bættist við ferfætlingana í sveitinni en hún Heimsenda Sumar Nótt kom til okkar, hreinræktuð Australian Shepherd tík. Týri minn tók henni auðvitað bara vel þó svo að hann verði nú stundum að taka í þetta hvolpaskott sem er stundum bara of óþolandi fyrir svona höfðingja. Þegar hvolpurinn er farinn að hanga í skottinu á honum og stökkva upp á bak honum þá fær hann stundum nóg. Nótt stækkar ótrúlega hratt og stefnir með hraði inn í gelgjuna. Við erum að reyna að æfa okkur eitthvað að "standa" og vera sætar þar sem það búið að skrá hana á hennar fyrstu hundasýningu í september. Ég vona að hún verði ekki sú allra óþekkasta  Annars missi ég sjálf af þessari sýningu þar sem hér eru göngur og réttir sömu helgi og ég er nú líka með mjög ungt barn á þessum tíma og kannski ekki það gáfulegasta að eltast við hundasýningar. Ég vona að Linda Björk geti sýnt Nóttina fyrir mig því þá veit ég að hún er í fínum höndum. Ásta á Króknum sem ég var búin að sjá fyrir mér sem mjög álitlegan sýnanda fyrir Aussie fékk sér svo bara systur Nætur svo þar fór það! Hún á væntanlega aldrei eftir að geta sýnt fyrir mig.. og hennar tík verður væntanlega alltaf betur sýnd líka.. djö! hehe.Nótt tæplega 13 viknaÁsta kom einmitt í heimsókn hingað í Laxárdalinn með gotsystur Nætur, Heimsenda Sumar Nótt og eldri albróðir þeirra Týr. Það gekk nú ekkert rosa vel að ná mynd af þeim öllum saman en hér eru þau allavega  Fleiri myndir frá heimsókninni hérÞar síðustu helgi komu tengdaforeldrar mínir hingað og það er ekki að spyrja að því hvað þau voru dugleg að hjálpa til. Sveinbjörg þvoði barnaföt og meðan tengdapabbi smíðaði í eldhúsinu. Eldhúsið mitt er semsagt orðið alveg gjörbreytt og ég hlakka til að setja inn myndir af því! Atli reif sjálfur niður vegginn sem var á milli eldhúss og borðstofu svo það rýmkaði aldeilis um okkur. Veggurinn farinn og framkvæmdir að hefjastMyndir frá framkvæmdunum í eldhúsinu eru hér (fleiri eiga eftir að bætast við).Nýja eldhúsið er algjör lúxus miðað við það gamla svo nú ætti ég aldeilis að geta verið húsmóðir  Frænka Þórdísar hún Brynja Pála kom með Sveinbjörgu og Gunna og var svo hjá okkur alla vikuna. Þær Þórdís léku heilmikið saman og það létti heilmikið undir Atla þar sem ég var enn að vinna.  Brynja Pála á tryppi hérna úti á túni og var dugleg að heimsækja Vörð sinn og færa honum og Orðu brauð. Frænkurnar að bakaHryssurnar okkar fóru loksins undir hest en þetta var ótrúlega erfið ákvörðun. Ég hef aldrei verið svona róleg í því að velja stóðhesta og ætla að vera mun fyrr á ferðinni fyrir næsta ár! Hugsýn og Assa fóru báðar undir 1. verðlauna hestinn Hvítserk frá Sauðárkróki sem er brúnskjóttur undan Álfi frá Selfossi og Smáradóttur. Ég bara krossa putta eins og alltaf áður og vona að þær haldi, og að ég fái hryssur.Hvítserkur tekur á móti dömunumFolöldin þeirra hafa ekki enn fengið nafn en ég held að ég sé að verða búin að skíra þau fyrir Atla :) Maður bíður nú ekki endalaust eftir svona hlutum  Við höfum séð til kindanna okkar af og til í sumar. Sumar þeirra virðast halda sig nærri og við sjáum þær reglulega en aðrar höfum við ekki séð síðan við slepptum þeim.Ég mætti nokkrum vinkonum fyrir þónokkru síðan og vippaði mér út úr bílnum til að athuga hvort þær vildu eitthvað við mig tala.. og auðvitað komu þær hlaupandi til mín  Spari kollaAþena hennar ÞórdísarKolla með gimbrarnar sínar tværÞað er bara tilhlökkun til þess að heimta féð okkar frá fjalli fyrsta árið og sjá afraksturinn  Fjórhjólið hennar Þórdísar Kötlu var sett í gang um daginn líka og hún þeysist heldur geyst á því. Allavega þarf pabbinn að hlaupa með til að afstýra stórslysum. Ég reyni að vera dugleg að pósta fréttum á síðuna uppfrá þessu þar sem ég er nú komin í frí frá vinnu og er bara að "bíða" eftir barninu.</description>
Sumarið flýgur áfram
      <description>Jæja það er ekki seinna vænna en að gera grein fyrir því hvað er helst í fréttum úr sveitinni. Síðasta færsla var úr sauðburði í maí! Þetta gengur nú bara ekki lengur.Í byrjun júní fórum við til Spánar í sumarfrí með foreldrum Atla, systrum hans og fjölskyldum. Við vorum með tvær íbúðir á leigu í Torrevieja og höfðum það ansi gott. Krakkarnir skemmtu sér konunglega og allir nutu ferðarinnar. Það var svolítið óþægilegt að fara frá öllu hérna í sveitinni á þessum tíma þar sem lömbin voru enn lítil og folöldin á leið í heiminn. Við vorum svo rosalega heppin að Linda vinkona mín var til í að flytjast búferlum í sveitina á meðan við vorum fjarverandi. Hún ásamt dóttur sinni og Íslensku fjárhundunum Orra og Hökka höfðu það sko bara fínt í sveitinni á meðan  og við fengum reglulega fréttir að heiman og gátum verið áhyggjulaus í fríinu.Það voru ekki teknar mjög margar myndir í ferðinni þar sem ég tók ekki myndavél út en svo missti ég mig á síðustu dögunum og keypti mér nýja svo eftir það var myndavélin á lofti. Ég er þó með eitthvað af myndum í símanum mínum sem eiga eftir að bætast við myndaalbúmið á síðunni.Hverfið okkar, útsýnið frá svölunumÞórdís KatlaÚti að borðaHöfrungasýning í Mundomar garðinumAtli og ÞórdísÞórdís fann sjóræningjaHeima á Íslandi var Linda Björk að færa hross á milli hólfa og gera og græja. Kindurnar okkar fengu heimsókn frá henni og Ellen Katrínu daglega að ógleymdum fóðurbætinum! Kindurnar fengu svo auðvitað heimsókn þegar við komum heim. Hér er Aska með gimbrina sína undan Prúð (tvílembingur). Afríka ættleiddi hrútinn hennar Ösku þar sem hennar lamb drapst í burði.Hér er svo sparigimbur undan Streng sem vonandi kemur flott af fjalli í haust.Bæði folöldin sem við áttum von á komu í heiminn á meðan við vorum í sólinni á Spáni. Ég átti von á að Hugsýn myndi kasta á meðan við vorum úti og Linda fylgdist sérstaklega vel með henni en viti menn allt í einu var Assa köstuð! Hún átti brúnstjörnótta hryssu með hvítt á báðum afturfótum undan Kvist frá Skagaströnd  Mér fannst nú alveg vera kominn tími á hryssu þar sem mér hafði ekki fæðst merfolald síðan 2004! Hugsýn kastaði svo þrem dögum síðar eða 10. júní brúnskjóttum blesóttum hesti.Svo dugar mér ekki að eiga hesta og kindur, ég fékk nýjan hund fyrir nokkrum dögum. Fyrir valinu varð Australian Shepherd frá Heimsendahundum. Tíkin sem ég valdi mér er svört þrílit og heitir Heimsenda Sumar Nótt og er fædd á sumardaginn fyrsta. Ég sótti Nótt til Reykjavíkur í síðustu viku og henni gengur ágætlega að aðlagast nýjum heimkynnum og mér að vera komin með "barn" á heimilið. Þar sem ég er enn ekki komin í frí stendur Atli vaktina á daginn enda er hann svosum vanur að "lenda í öllu" sem viðkemur áhugamálunum mínum. Hann er ótrúlega þolinmóður við mig blessaður  Þessar myndir af Nótt eru fengnar að láni frá ræktandanumAf mér er svo helst að frétta að meðgangan gengur vel. Ég er gengin tæpar 35 vikur svo þetta fer allt að skella á! Ég tók við nýrri stöðu í vinnunni minni og gerði þar með breytingar á sumarfríi og fæðingarorlofi. Leikskólinn hennar Þórdísar lokar eftir þessa viku en ég er að vinna til 1. ágúst. Ég er svo heppin að vera búin að finna stelpu sem ætlar að koma til okkar og sjá um Þórdísi á meðan ég er að vinna svo Atli hafi vinnufrið á daginn líka. Ég vona að Þórdís og Signý verði ánægðar með hvor aðra. Ég er líka búin að stytta fæðingarorlofið mitt og ég geri ráð fyrir að þurfa einhverja pössun fyrir litla barnið áður en það kemst inn á leikskóla. Hugsanlega þarf ég Au pair eða einhverja álíka stelpu til að flytja inn á heimilið. Ég hef ágætann tíma til að finna út úr því en ég tek glöð við ábendingum ef einhver veit um góðan kandiat. </description>
Ótitlað
      <description>Það kom loksins að því að okkar fyrsti sauðburður færi af stað. Ég átti von á fyrstu lömbum síðastliðna helgi og á mánudag 13. maí gerðist það loksins. Fyrst til að bera var kollótt gimbur undan Lagði og kind sem var þrílembingur. Hún hélt í sæðingu við Streng. Burðurinn var erfiður sökum stærðar lambsins og ég var ekki í fjárhúsinu sjálf þegar hún bar. Sindri á Neðri Mýrum dró úr henni lambið og blés í það líf. Lambadrottningin mín braggaðist vel og dafnar núna í fjárhúsinu.Fyrsta lambið okkar - gimbur undan Algebru (12-008) og Streng frá ÁrbæÞórdís með fyrstu gimburina dagsgamla14. maí bar svo Aþena hennar Þórdísar hvítum hrút undan Prúð frá Ytri Skógum. Hún var ekki alveg að átta sig á þessu lambi fyrst um sinn og kærði sig ekki um það en þegar leið á daginn var hún búin að sættast við það.Hrútur undan Aþenu (12-004) og Prúð frá Ytri SkógumÍ nótt fékk Afríka lambsóttina en því miður var lambið bæði gríðarstórt og snéri eitthvað vitlaust svo það lifði ekki fæðinguna af. Sindri og Birna voru á vaktinni og þrátt fyrir tilraunir þeirra til að koma lambinu í heiminn á lífi gekk það ekki upp. Svona er nú bara víst að vera bóndi, maður missir stundum skepnur. Afríka var fengin við Streng eins og Algebra.Í morgun bar svo Aska (12-016) tveimur hvítum lömbum, hrút og gimbur. Tekin var ákvörðun að gera tilraun til að venja annað lambið hennar undir Afríku. Þar sem búið var að telja fósturvísa var nokkuð öruggt að Aska væri með tvö lömb svo hægt var að skipuleggja þetta fyrirfram. Hún fékk að halda fyrra lambinu sínu en það seinna var sett ókarað, beint til Afríku og meira að segja baðað upp úr salti (sumir segja að það sé alveg málið). Þetta fór nú þannig að Afríka tók að sér hrútinn svo þær eru nú sáttar með sitt hvort lambið. Þetta gerðu Sindri og Birna fyrir okkur þar sem ég var í vinnunni minni og Atli að heiman í vinnu. Ég get allavega verið sátt við að þetta endaði vel miðað við aðstæður  Nú eru allar gimbrarnar bornar sem voru fengnar við sæðishrútum svo ég hef engar tímasetningar á hinar gimbrarnar. Væntanlega fara þær að bera koll af kolli og ég krossa putta og vona að sauðburðurinn gangi vel.Hvernig er það svo er maður nokkuð fjárbóndi nema að eiga fjárhund? .. og þarf maður ekki klárlega að eiga fleiri en einn? Týri minn er nú víst fjárhundur og allt það en ég er búin að vera að bíða eftir rétta Australian shepherd hvolpinum í þónokkurn tíma. Á sumardaginn fyrsta fæddust svo loksins hvolpar hjá Heimsendaræktun og þar af þrjár tíkur, tvær blue merle og ein svört þrílit. Ég er búin að fara að skoða hvolpana og auðvitað er maður alveg ástfanginn. Nú er bara að sjá hvaða tík er mín tík  Foreldrarnir eru margverðlaunaðir og ótrúlega flottir fulltrúar sinnar tegundarEr eitthvað dásamlegra en hvolpahrúga!</description>
Ekkert bólar á vorinu
      <description>Það er nú kominn vorhugur í mann þó veðrið minni ekkert á vor. Grillið er komið út og garðhúsgögnin líka.. en það hættir bara ekki að snjóa!Sauðburður er hafinn á Neðri Mýrum svo við bíðum spennt eftir okkar fyrstu lömbum. Ég á þó ekki von á lömbum úr okkar ám fyrr en um næstu helgi eða svo. Samkvæmt fósturvísatalningu héldu 4 gimbrar í sæðingum og eina af þeim ætti að vera tvílembd. Af þessum 4 eru allar lituðu gimbrarnar okkar, tvær svartar og ein grá svo vonandi fáum við eitthvað skemmtilegt til að setja á undan þeim. Ég hef verið léleg með myndavélina í fjárhúsunum svo ég skelli hér inn myndum frá því í apríl sem aldrei rötuðu inn á síðuna.Aþena hennar Þórdísar hér fyrir miðjuPúkadóttirÞessi kolla er svo ein ef þeim sem eiga að bera fyrst hjá okkur, hún er fengin við kollóttan sæðishrút.Ég á von á að fyrstu ærnar okkar beri um næstu helgi svo hér er bara tilhlökkun  Við mæðgur erum búnar að vera á reiðnámskeiðum í vetur, ég á knapamerki 1 og Þórdís á reiðnámskeiði með yngstu krökkunum. Ég tók verklega prófið í knapamerkinu í síðustu viku á Drunga mínum og það gekk bara vel, erfiðast var þó að fara á bak, hann er nú bæði stór en svo er ég bara orðin ansi stirð og þung á mér enda gengin 26 vikur þegar ég tók prófið. Þórdís Katla tók svo þátt í afmælissýningu hestamannafélagsins Neista á sunnudaginn á Drunga.Hamingjusöm hestastelpaLitli strumpurinn búinn að snúa sér við og situr öfugt á hestinumÞessi sýning er vonandi bara forsmekkurinn af því sem koma skal því á meðan hún sýnir áhuga á hestamennskunni verður allt fyrir hana gert svo mamman fái hana með í sportið  Fleiri myndir frá Afmælissýningunni eru hér Það er aldrei lognmolla á heimilinu heldur. Foreldrar Atla komu til okkar um helgina og reyndar var tengdapabbi mættur fyrr og hér var tekið til hendinni í eldhúsinu. Ég ætla að sýna fyrir og eftir myndir af eldhúsinu þegar það er tilbúið en það er nú þegar orðin þvílík breyting þó svo að fyrsti hluti nýja eldhúsins sé ekki fullkláraður. Þeir feðgar drifu sig líka af stað í að klára baðherbergið og þar er nú komin upp innrétting  Myndir koma inn fljótlega.Ég verð svo vonandi dugleg að skrifa fréttir á næstunni enda er vorið spennandi tími í sveitinni. Myndavélin fór með í fjárhúsið áðan.. en svo var engin mynd tekin og vélin gleymdist þar. Nú jæja hún er þá allavega til staðar fyrir næstu ferð í fjárhúsið!Fleiri myndir af þessu öllu í myndaalbumi.</description>
Styttist í vorið
      <description>Ég held að fréttaleysið hafi aldrei varað jafn lengi og núna. Reyndar ætla ég að kenna internetinu um það að hluta þar sem það hefur verið afleitt internetsamband hérna vikum og mánuðum saman. Núna á að bæta úr fréttaleysinu og vonandi verða svo tíðar fréttir hér í gegn um sauðburð og fleira skemmtilegt  Síðasta frétt á heimasíðunni var í janúar (sem betur fer á þessu ári!).. og það hefur heilmikið gerst síðan þá en ég er ansi hrædd um að margt af því sé gleymt þar sem ég hef líka verið arfaslök við að taka myndir. Það er helst að ég muni hvað við vorum að bralla ef ég á myndir af viðburðinum.Þórdís var í ballett eins og áður sagði en hún fékk meira að segja sendan alvöru ballettbúning frá frænku sinni í Reykjavík sem sló heldur betur í gegn.Þórdís fékk svo sinn eigin ballettbúning sendan frá Svíþjóð svo nú á stelpan allt tilheyrandi.Svo kom langþráð afmæli hjá heimasætunni og varð hún loksins 4 ára  Hún fékk að bjóða vinkonunum í afmæli í félagsmiðstöðinni á Skagaströnd því færið hingað heim í febrúar er ekki upp á marga fiska.Fleiri skemmtilegir dagar voru í febrúar og þar á meðal öskudagurinn. Við komumst að því að metnaður Skagstrendinga fyrir öskudagsbúningum er mikill og væntanlega verður ekki búðarkeyptur búningur aftur á þessum bæ.. hér koma sko allir í heimagerðum búningum og þeir voru sko rosalega flottir! Þórdís Katla var samt mjög ánægð með búninginn sem hún hafði valið sér.. auðvitað var það prinsessulegt, Mjallhvít varð fyrir valinu.Þórdís Katla tilbúin í leikskólann á öskudaginnKrakkarnir á leikskólanum gengu á milli fyrirtækja á Skagaströnd og sungu.Öskudagsballið var mjög skemmtilegt og búningarnir frábærir.Vinkonurnar Mjallhvít, krókódíll og prinsessaKarakterar úr OzStjáni blái, Betty Boop og strympa dóttir þeirrahani og kjúklingurÞað var svo haldin smá ballett sýning í lok námskeiðsins og það er óhætt að segja að þessar litlu ballettskottur hafi verið algjörar dúllur.Af hrossunum er allt gott að frétta. Veturinn hefur verið heldur hvítur og snjóþungur á köflum. Hér eru girðingar búnar að vera meira og minna á kafi síðan ég man ekki hvenær. Hrossin hafa verið til vandræða þar sem girðingar hafa ekki haldið þeim. Ég er að vona að við séum að sjá fyrir endann á vetrinum en það er nú ekkert öruggt í þeim efnum ennþá. Hrossin eru búin að vera í nokkrar fyrir í hólfi fyrir neðan veg en sú girðing hefur staðið að mestu upp úr snjó og hægt var að setja örlítinn straum á hana. Ég hef tekið skammarlega lítið af myndum af hrossunum mínum og verð að bæta úr því bráðlega.Gleði fór til nýrra heimkynna í BelgíuÉg byrjaði á reiðnámskeiði í janúar og fékk lánað hryssu til að byrja með. Drungi kom svo á hús á Blönduósi og fékk það hlutverk að bera mig á knapamerki og Þórdísi Kötlu á krakkanámskeiðinu hennar. Í byrjun mars fór Drungi svo á Sölvabakka í gott atlæti og ég tók inn nýja hestinn minn hann Kóng sem ég keypti í haust.Kóngur frá Mið-FossumÉg hef reyndar ekki stundað útreiðar mikið undanfarið en það litla sem ég hef prufað hann er ég mjög sátt og hlakka til að brúka hann meira. Ég tók þátt í smá rekstri um páskana og Kóngur stóð sig vel í þeirri reið.Þórdís Katla sýnir hestamennskunni áhuga og ég krossa putta og vona að það endist  Henni finnst gaman á reiðnámskeiði og vill ólm fá að fara á bak. Ég er að byrja að sleppa af henni hendinni og hér er hún á Drunga okkar inni í skemmu á Sölvabakka.. alein og ánægð með lífið.Þórdís Katla á DrungaÉg átti svo að taka próf í knapamerkjum í síðustu viku en þurfti að sleppa því vegna vinnu í Rvk. Ég tek því prófið fljótlega í staðinn.Nú styttist í vorið og eigum við von á 2 folöldum þetta árið, eða Atli réttara sagt því hann á þau bæði. Hugsýn fór undir Abraham frá Lundum II og kastar væntanlega í byrjun júníAbraham frá Lundum II á Vesturlandssýningunni um daginn.Assa fór svo undir Kvist frá Skagaströnd og hún kastar líklega í lok júní/byrjun júlí.Sauðburður er að skella á og við bíðum spennt eftir lömbunum okkar. Fósturvísar voru taldir í mars og lítur út fyrir að við eigum von á nokkuð mörgum lömbum. Ein gimbur hafði látið, 7 teljast tvílembdar og 7 einlembdar. Svo er bara að sjá hvað gerist og hvernig gengur. Það hefur ekki verið spennandi færðin heim á bæ í vetur, í raun hefur ekki verið fært nema stundum fyrir jeppann. Ég var að viðurkenna að fyrir ekki svo löngu síðan var ég að vona að þessi vetur væri búinn og ég gæti komist á bíl upp á hlað hérna heima fyrir vorið.. en svo snjóaði aftur svo ætli þetta verði ekki þannig að skaflinn hverfi ekki fyrr en í júní.Ég krossa putta og vona að við fáum allavega gott vor þar sem núna hef ég lömb að hugsa um! Svo er auðvitað fjölgun í fjölskyldunni eins og allir eflaust vita nú þegar. Ég er sett 7. ágúst og er því á 25. viku núna. Þórdís Katla verður því loksins stóra systir og hlakkar mikið til  Fleiri myndir af þessu öllu í myndaalbumi.</description>
Allt of langt síðan síðast
      <description>Húsfrúnni á Mánaskál gengur ekkert að halda blogginu lifandi um þessar mundir. Reyndar hjálpar netleysið ekki til, netleysið sem hrjáir okkur stundum heilu dagana. Það fer víst eftir veðri hvort það er nothæft internet hjá okkur og það hefur verið mikið um rigningu undanfarið og þá er netið upp á sitt versta.Ég er langt á eftir í öllum fréttum og ætla ekki að ryfja það allt upp núna en í staðinn ætla ég að setja inn nokkra myndir af Þórdísi Kötlu sem fór í ballett í dag  Tilbúin í fyrsta balletttímannFleiri myndir í myndaalbumi</description>
Ótitlað
      <description>Héðan er allt gott að frétta og ég er að reyna að standa við að skrifa fréttir reglulega. Þar sem ég á núna meiri búfénað en áður verða væntanlega "fréttir" oftar  Við erum nú strax orðin það miklir "bændur" að við eyddum síðasta laugardagskvöldi í fjárhúsinu að gefa ormalyf. Þetta var reyndar bara ágætis laugardagskvöld hjá okkur og Þórdís fékk að heimsækja strákana á Neðri-Mýrum sem hún fær aldrei nóg af.Atli er duglegur í skemmunni sinni eins og alltaf og hann var að steypa í gaflinn það sem brotnaði úr veggnum forðum, þegar sagað var fyrir skemmuhurðinni. Þórdís Katla fer stundum út í skemmu til pabba og um helgina var hún eitthvað þreytt og lagði sig á þessum forláta gestabedda sem við fundum á háaloftinu um daginn. Hún steinsofnaði og til að geta haldið áfram að saga skelltum við á hana heyrnahlífum á meðan hún kláraði blundinn sinn. Hún rumskaði ekki þessi elska, enda stundum lík mömmu sinni, sem gæti sofið allt af sér  Svo verð ég að tala aðeins um hann Týra minn svo hann gleymist ekki í spenninginum fyrir að finna sér nýjan hund. Svona fyrir ykkur sem minnist alltaf á það hvað hann sé feitur.. svona er hann nú nettur ef það er búið að bleyta feldinn hans!Hann Þórshamar Týri er nefnilega ekki eins feitur og hann lítur út fyrir að vera .. en jú hann er alveg í góðum holdum.Svo ég spjali nú aðeins meira um þessar skjátur mínar sem ég er svo ánægð með þá er ég búin að velja nöfn á þær allar. Svona til að passa upp á að ég sé örugglega með nógu mikið af seremóníum í kring um sauðfjárbúskapinn (dekurdýrin) þá valdi ég mér þema og þessi árgangur fékk allur nöfn sem byrja á A.Afríka - Arabía - Alein - Alþýða - Aska - Afþreying - Atvinna - Alvara - Andrá - Aukning - Aðdáun - Algebra - Askja - Auðn - Arna</description>
Sauðfé og fleira
      <description>Tíminn líður svo hratt hérna í sveitinni að allt í einu eru bara tveir mánuðir liðnir frá síðustu fréttum.Veturinn minnti á sig heldur betur snemma í ár því svona var umhorfs hjá okkur þann 10. september.á heimleið úr vinnunnikomin inn í dal - Atli þurfti að sækja mig að Neðri-MýrumNýræktin var óslegin ennþá..Við sóttum Hugsýn og folaldið sem hún fóstrar að Lundum til Abrahams í september. Hugsýn er fengin og kastar líklega snemma í júní. Í sömu ferð var Assa sótt til Kvists frá Skagaströnd. Hún var líka fengin og kastar líklega seint í júní eða í byrjun júlí. Eftir þessa ferð er ég búin að ákveða að drífa í að frostmerkja hrossin mín. Assa er auðvitað bara brúnt meðalhross og ég lenti í vandræðum því þegar ég sótti hana var gjörsamlega ausandi rigning og hrossin voru öll rennandi blaut og húktu inni í gerði. Allar brúnar hryssur voru eins! Eina ráðið var að grípa eitthvað sem var líklegt og fara með það þar sem sónarskoðun fór fram og láta lesa af örmerkinu.. en viti menn.. ég átti fyrstu hryssuna  Ég verð samt að viðurkenna að þetta var frekar neyðarlegt en sem betur fer var ég ekki sú eina sem var í þessum vandræðum þarna. Það ringdi svo svakalega að Assa bókstaflega hljóp upp á hestkerruna og ég þurfti að rífa mig úr fötunum þegar ég kom inn í bíl. Gallabuxurnar voru orðnar 20 kg og þetta var ekki rétti dagurinn til að gleyma úlpunni! .. í raun hefði 66 pollagallinn verið málið!Atli getur semsagt látið sér hlakka til vorsins því hann á folaldið í Hugsýn og Össu!Assa frá Þóroddsstöðum - fylfull við Kvist frá SkagaströndHugsýn og fóstursonurinn - Vaka á bakviðGöngur og réttir og allt það var á sínum stað í september. Stóðréttarhelgin var auðvitað frábær eins og alltaf áður. Enn á ný tók ég eiginlega engar myndir nema á myndavélina hans Sissa og ætli ég verði ekki heilt ár að komast yfir þær eins og síðast. Ég skal gera mitt besta til að fá einhverjar myndir frá honum til að geta sýnt frá reiðinni á laugardeginum. Ég fékk auðvitað góða gesti en Sissi kom alla leið frá Kirkjubæjarklaustri með hryssu á hestakerru. Siggi Fúsi, Þorbergur og Konný komu líka alla leiðina að austan. Eyþór vinnufélagi minn fékk lánaða hryssu á Efri Mýrum og komst því með í stóðreksturinn. Svo voru auðvitað sveitungarnir á sínum stað. Þetta árið var ekki hægt að fara ríðandi frá Strjúgsskarði eins og hefur verið gert í áratugi en vegna snjóa og bleytu var dalurinn og sérstaklega skarðið erfitt yfirferðar. Í staðinn var auglýst ferð frá Skrapatungurétt í Kirkjuskarð og svo var riðin sama leið til baka. Veðrið slapp ótrúlega vel þrátt fyrir blauta spá og frekar lítil hlýjindi. Það ringdi aðeins á okkur á bakaleiðinni en annars var þetta bara frábært. Atli mætti líka í Kirkjuskarð með heita kjötsúpu svo það væsti ekki um okkur. Um kvöldið var svo skundað á ball með Pöpunum og trallað fram á rauða nótt.Það var svo réttað á sunnudegi og hrossin mín skiluðu sér til byggða. Þau hafa því verið komin framfyrir afréttargirðingu eins og mig grunaði. Ég hafði ekki séð litla stóðið mitt í nálægt tvo mánuði svo það hlaut eiginlega að vera. Tryppin mín vöktu mikla lukku hjá ferðamönnum sem voru þarna á vegum Íshesta. Þau eru svo spök að þau tóku sig út úr stóðinu sem var í hólfinu fyrir utan réttina og hreinlega böðuðu sig í athygli og þáðu klapp og knús. Það gekk eins og í sögu að sækja hrossin mín inn í almenning og koma þeim inn í dilk. Svo voru þau bara sett á kerru og skutlað heim.Orða og Brattur komin af fjalliOrðaVið Atli erum búin að klippa hófa og gefa ormalyf þetta haustið og eru hrossin komin í hausthagann. Ég er reyndar enn með Vöku og Drunga á járnum en þau verða væntanlega ekki notuð meira samt þetta árið.Merkisviðburður átti sér einnig stað í september en þá fórum við á Snæfellsnes og keyptum okkur gimbrar. Við eigum semsagt orðið fé núna og bíðum spennt eftir þeim ævintýrum sem bíða okkur í sauðfjárræktinni. Við fórum á Hraunháls á Snæfellsnesi og gátum þar valið okkur þær gimbrar sem okkur leist vel á. Ráðunautur var búinn að dæma þær svo við gátum dálítið valið þær eftir því (ekki veitir af fyrir okkur sem kunnum ekkert á þetta). Sindri á Neðri-Mýrum kom með okkur og sá til þess að við keyptum ekki einhverja vitleysu.Atli minn bóndalegurSindri lítur yfir og er sjálfsagt að undra sig á því hvað hann er hrifinn af þessum kollóttuog svo þurfti að þreyfa og káfa og finna vænstu gimbrarnar.. og líta á dómana og sjá hvort þetta er ekki allt með besta mótiHér eru gimbrarnar loksins komnar "heim". Hér fremst er AfríkaEin falleg hyrnd sem á eftir að fá nafnÞessi fékk nafnið AlþýðaSú svarta er Arabíatvær kollóttar stöllurÞórdís Katla mætt í fjárhúsið að gefa kindunum okkarÉg er voðalega ánægð með gimbrarnar okkar og hlakka til að hefja okkar sauðfjárrækt. Hérna eru dómar gimbranna.                   kg   Ómvöðvi   Ómfita   Lögun   Frampartur   Læri   Ull       47   28   4.2   4   8.5   17.5   8       45   28   2.3   4.5   8.5   17.5   7.5       42   30   2.3   4.5   8.5   18   8       55   33   4.3   4.5   8.5   17.5   8       50   28   4   4   8.5   17.5   8.5       53   29   5   4   9   17.5   8       46   30   3.3   4   8.5   17   8.5       47   29   2.5   4   8.5   17.5   8       46   31   5.4   4   8.5   18   8       48   32   4.3   4   9   18   8.5       50   31   3.4   4.5   9   17.5   8       50   29   4.7   4   8.5   17.5   8       53   27   4.2   4   9   18   7.5       55   31   3.2   5   8.5   18   8    Sú efsta á listanum er þrílembingur og var hérumbil skilin eftir á Hrauntúni. Þegar ég skoðaði dómablaðið við kaffiborðið inni í bæ taldi ég að mig vantaði eina gimbur á kerruna sem ég hefði ætlað að fá. Þegar við fórum svo út í hús að sækja hana var hún hvergi sjáanleg og fannst á kerrunni.. en þá kom í ljós að það var búið að merkja við þrílembinginn á blaðinu en hún var ekki komin á kerruna. Þarna var ég heppin að glata ekki verðandi sparikind  Svo þegar maður er orðinn sauðfjárbóndi.. þarf maður þá ekki að eiga fjárhund? Þórshamar Týri er á þrettánda ári og því ekki hægt að taka hann með sér í göngur. Ég er því alvarlega farin að spá í að fá okkur annan hund en spurningin er bara hvernig fjárhund á að fá sér? .. ég er þessa stundin að stúdera Ástralska fjárhundinn (Aussie) og ég er bara ansi hrifin af þeirri tegund. Þetta á allt eftir að koma í ljós og það eru væntanlega nokkrir mánuðir í að það dragi til tíðinda í þessari deild!</description>
Hestaferð, verslunarmannahelgi og fleira
      <description>Sumarið æðir áfram og veðrið hefur verið frábært í allt sumar. Allt í einu er bara kominn ágúst og mánuður frá síðasta bloggi! Ég eyddi dálítið af júlí í höfuðborginni á meðan Atli var að vinna hjá Icelandair í Keflavík. Við notuðum ferðirnar í að versla inn á baðherbergið en það var ráðist í framkvæmdir hér á bæ fyrir um mánuði síðan. Allt var rifið út af baðinu, loft, veggur, hurð og tækin. Núna er að komast mynd á baðið aftur og ég hlakka verulega til að sjá afraksturinn.. já og geta baðað mig í almennilegri sturtu! Við erum farin nokkur ár aftur í tímann þar sem "sturtan" er komin aftur niður í kjallara og maður þarf að smúla sig sjálfur.Þó sumarið líði hratt þá hef ég reynt að ríða dálítið út og höfum við nágrannakona mín bara verið ágætlega duglegar saman. Ég fór svo líka í miðnætur reiðtúr í júlí með sveitungum en þá var riðið frá Hæli og inn á Blönduós nema hvað að ferðafélögum mínum þótti ekki nóg að ríða á Blönduós svo það var riðið alla leið heim líka! Ferðin tók því dálítið lengri tíma en áætlað var og vorum við Rák komnar að Neðri-Mýrum undir morgun og þá átti eftir að mjólka  Það var sónað frá Dagfara frá Sauðárkróki í síðustu viku og Gleði frá Þóroddsstöðum var fengin en Vaka mín ekki  Ég sem hafði planað að járna hana og koma henni i form fyrir stóðréttir. Hún fær að vera áfram hjá hestinum og vonandi fyljast hún. Hún verður nú samt komin á járn fyrir stóðréttir. Ég hef svo ekki heyrt enn af því hvenær verður sónað frá Kvist eða Abraham en þetta skýrist allt með tímanum. Núna um verslunarmannahelgina fengum við fullt af góðum gestum en foreldrar Atla og systur mættu hingað með fjölskyldum og einnig bróðir Sveinbjargar og fjölskyldan hans. Hérna var mikið fjör og veðrið lék við okkur. Við Garðar skelltum okkur í hestaferð út á Skagaströnd á föstudag og laugardag.Auðvitað detta alltaf einhverjar skeifur undanHrossin lögð af stað frá Skagaströnd og vita alveg í hvaða átt á að hlaupaGarðar kominn í hnakkinnFleiri myndir úr ferðinni eru hérVið fengum líka kanínur í heimsókn yfir helgina og þeir sem vildu fengu að fara á hestbak. Brynja Pála og KollaÞórdís Katla og Habba frænkaBirtaBrynja PálaÞórdís Katla í reiðtúr með mömmuFleiri myndir frá verslunarmannahelginni eru hérAuðvitað var eitthvað unnið líka en Einar var ansi duglegur að taka til hérna heima við bæinn, girðingadræsur voru rifnar upp, keyrð möl og fleira gagnlegt. Atli og Gunni byrjuðu að flísaleggja baðherbergið og í dag voru settar nýjar heitavatnslagnir í húsið okkar  Hér er alltaf nóg um að vera! </description>
Vestmannaeyjar, veiði og fleira
      <description>Þórdís Katla fékk loksins að bjóða vinkonum sínum þeim Sigríði Kristínu og Birgittu í heimsókn og það var rosalega gaman hjá þeim stöllum. Hún hefur nokkrum sinnum fengið að fara heim með þeim að leika og það hefur verið rosa gaman. Eftirvæntingin var mikil hjá stelpunum og hafði þeim hlakkað lengi til að fá að koma í sveitina til Þórdísar Kötlu.Ég kíkti á hryssurnar hjá Dagfara frá Sauðárkróki þann 26. júní. Folinn var kurteis við mig og fallegur er hann á litinn  Það verður gaman að sjá hvað við Elsa vinkona fáum að ári en hún fór líka með hryssu undir Dagfara. Dagfari ræðir málin við GleðiDagfari heilsar upp á migGleðiKatla hennar ElsuFleiri myndir úr þessari heimsókn eru hér Ég fer svo fljótlega aftur í myndatökuleiðangurVið fórum svo í smá frí fyrir síðustu helgi og tókum með okkur hestakerruna og keyrðum Hugsýn og Össu undir hesta í leiðinni. Það var svolítið skemmtileg tilbreyting að vera með fulla hestakerru í eftirdragi og það var því Atli var að fara með hryssur undir hesta! Loksins var það ekki ég sem var með vesenið  Núna er bara að krossa putta og vona að hann fái myndarlegar hryssur að ári.Hugsýn fór eins og áður sagði undir hinn vel ættaða Abraham frá Lundum IIAbraham er undan Auðnu frá Höfða og Vilmundi frá FetiAssa frá Þóroddsstöðum fór svo á stefnumót við KvistKvistur frá Skagaströnd - mynd fengin að láni frá hrossvest.is (ljósmynd: Kolla Gr.)Við fórum í stórskemmtilegt brúðkaup síðustu helgi í Vík í Mýrdal og hittum þar fólkið hans Atla í góðum gír. Ég tók því miður engar myndir úr Vík en þetta var mjög gaman. Daginn eftir renndum við svo í Landeyjahöfn og fórum með Herjólfi til Vestmanneyja. Það var alveg kominn tími til að heimsækja Eyjar og systkini mín þar. Týri kom að sjálfsögðu með og vel var tekið á móti honum í Vestmannaeyjum þar sem hann sló í gegn í pössun í vetur  Atli og Þórdís Katla komin út á dekkÞórdís var mjög spennt fyrir því að veiða fiskana sem voru til sýnis á höfninniVið fórum svo í heimsókn í fiskasafnið þar sem Örn mágur ræður ríkjum. Á safninu er ársgamall lundi sem vakti mikla lukku hjá bæði börnum og fullorðnum! Þórdís Katla, pabbi og lundinnþessi mamma getur aldrei látið nein dýr vera og þurfti líka að máta lundannSvo voru tveir aðrir litlir ungar á safninu líka sem Þórdís fékk að skoðaFleiri myndir frá Vestmannaeyjaferðinni eru hérAtli situr aldrei auðum höndum hér heima og nú er búið að rífa allt út af baðinu og á að taka það alveg í gegn  Gangurinn verður tekinn í leiðinni og það verða sko teknar fyrir-myndir þar sem ég veit að munurinn verður svakalegur  Húsið á eftir að fá mikla andlitslyftingu við þessar framkvæmdir. Svo er Atli líka búinn að klára rafstöðvarhúsið og mála það.Í vikunni bauðst honum svo veiði í ánni okkar, Laxá í Refasveit. Hann veiddi þrjá laxa og varð var mikið marga í viðbót. Laxarnir voru 6-9 pund. Því miður klikkaði eitthvað að færa myndirnar af fiskinum yfir í tölvuna mína úr símanum hans Atla en ég tók samt nokkrar myndir á myndavélina mína og ég skelli inn fleiri myndum síðar.Feðginin að veiðum9 pund - 77 cmÞann 4. júní kom hingað fréttamaður frá Fréttablaðinu ásamt ljósmyndara til að ræða við okkur furðufuglana. Við eru víst orðin eitthvað "fræg" fyrir eitthvað sem er okkur óskiljanlegt. Við tökum bara vel á móti öllum og þykir alltaf gaman að fá heimsóknir svo það var nú ekkert vandamál að taka á móti blaðamönnum. Um nóttina fæddist Atla fyrsta folaldið hans, brúnstjórnótti Hugsýnar og Abrahamssonurinn og var því tækifærið gripið og við fjölskyldan mynduð hjá hryssunni og folaldinu. Ljósmyndarinn var svo almennilegur að senda mér svo tvær myndir og er önnur sú sem birtist af okkur í Fréttablaðinu þann 30 júní.Myndin úr FréttablaðinuAtli með fína folann sinnAnnað kvöld verður svo miðnæturreið frá Hæli á Blönduós sem ég ætla að taka þátt í svo vonandi koma fljólega inn skemmtilegar fréttir og myndir.</description>
Hryssur til stóðhesta og fleira
      <description>Á miðvikudag var kominn tími til að keyra fyrstu hryssunar undir hest en þær Gleði frá Þóroddsstöðum og Vaka mín fóru á stefnumót við Dagfara frá Sauðárkróki sem er leirljós, blesóttur, sokkóttur undan Hvítasunnu frá Sauðárkróki og Hróð frá Refsstöðum. Hann er því eðalættaður og vonandi sannar hann sig svo í dómi. Ég vonast auðvitað til að fá leirljósa blesótta hryssu en ég er búin að læra að vera bara allavega glöð ef ég fæ folald yfir höfuð og ef það svo lifir svo litur og kyn skiptir ekki öllu. Gleði er fallega skjótt og faxprúð HilmisdóttirÉg held svo Vöku minni þetta árið en hún á svo að vera reiðhesturinn minn áfram. Hún hefur ekki átt folald og er orðin 12 vetra svo ég ætla að koma folaldi í hana núna og geyma hana þar til síðar í folaldseign. Ég skelli hér inn mynd af henni síðan hún var spengileg en hún hljóp í spik hjá mér þarsíðasta vetur þar sem hún átti að vera fylfull og var úti heilan vetur með folaldshryssunum. Hún er ekki svona spengilega enn í dag  en hún verður svo tekin undir hnakkinn aftur þessi elska þegar hún kemur frá Dagfara svo hún er ekki komin í frí alveg strax.Vaka er rauð tvístjörnótt SvartsdóttirVið Atli höldum þremur hryssum í ár og það er dálítið skemmtileg staðreynd að þær eru dálítið skyldar í gegn um feður sína. Hugsýn er undan Kjarval frá Sauðárkróki, Vaka er undan Svarti frá Unalæk sem er hæst dæmda afkvæmi Kjarvals og Assa frá Þóroddsstöðum er svo undan Núma frá Þóroddsstöðum sem er hæst dæmda afkvæmi Svarts frá Unalæk, það er bara spurning hvort mig vanti semsagt ekki eins og eina Illingsdóttur til að halda áfram með vitleysuna hehe.Í lok þessarar viku fer Hugsýn svo aftur undir Abraham frá Lundum II og Assa fer til Kvists frá Skagaströnd. Atli er að halda þeim báðum og er því orðinn stórtækur í hrossaræktinni. Það var umsamið að hann ætti folaldið hennar Hugsýnar í ár sem varð hans fyrsti hestur en við misstum hann svo tveggja daga gamlann. Atli fær því að halda Hugsýn aftur undir Abraham en þar að auki var hann mjög spenntur fyrir Alexander frá Lundum sem við áttum pantað undir en hann er bróðir A-bræðranna frá Lundum eins og Abraham. Alexander er undan Kvist og fallega brúnblesóttur en við misstum svo af tækifærinu til að halda undir hann þar sem hann stoppaði stutt í Eyjafirðinum. Atli greip þá til sinna ráða og pantaði undir Kvist sjálfann  og fer hún Assa undir hann. Assa er undan Núma frá Þóroddssstöðum og mamma hennar er sýnd með 7.90 og er undan heiðursverðlaunahryssunni Sjöfn frá Laugarvatni. Assa er töluvert skyldleikaræktuð þar sem mamma hennar, Sjöfn frá Laugarvatni, er einnig mamma Glímu frá Laugarvatni sem Númi er undan. Glíma hefur einnig heiðursverðlaun og eru því báðar ömmur Össu því heiðursverðlaunahryssur  Ég er núna bara með tvö hross á járnum þar sem Vaka er komin í leyfi. Drungi undan Klett frá Hvammi er búinn að vera á járnum síðan í apríl en Rák var járnuð í síðustu viku. Ég skellti mér svo með þau tvö á kerru yfir á Neðr-Mýrar og skellti mér í reiðtúr með Sindra og Birnu. Þetta var skeifnaspretturinn á Rák sem nú er orðin 21. vetra og hefur ekki verið brúkuð síðan í stóðréttunum í fyrra og viti menn, gamla hefur þetta ennþá! Svo rúm og fín og viljinn endalaus  Hún verður sparimerin mín í sumar.Tryppin voru sett á "dalinn" í vor ásamt Flugu sem er orðin 23. vetra og verður ekki járnuð í sumar. Fluga og Rák eru svo miklar vinkonur að Fluga fer aldrei langt frá og þar af leiðandi eru hún og tryppin heimakær. Þau rölta hér um svæðið en skila sér svo alltaf heim aftur sem mér finnst bara ansi notalegt.Orða mín frá Stórhóli hefur þroskast vel og er mjög falleg að mínu mati. Hún er líka ljúf og hlý í umgengni svo er liturinn hennar bara alveg æði finnst mér. Ég elska upplitið á henni með sín bláu augu.</description>
Hugsýn og "Fóstri"
      <description>Við fengum Jóa og strákana hans í heimsókn um helgina sem vakti mikla lukku hjá heimasætunni. Henni leiðist aldrei að fá litla gesti. Jói átti erindi yfir í Skagafjörð og var því ákveðið að sækja Hugsýn í leiðinni því hún á að fara undir hest fljótlega. Við komum því við á Narfastöðum og hittum Hugsýn með litla rauðstjörnótta fóstursoninn.Á hestakerrunni er rúmt um hrossin svo það var alveg pláss til að fá sér sopa á leiðinni. Ferðin gekk vel og nú eru Hugsýn og "Fóstri" liti saman í hólfi neðan við bæinn þar sem ég get dáðst að þeim út um gluggann  Krakkarnir fengu vatn í sundlaugina og skemmtu sér vel.Við kláruðum svo girðinguna loksins í dag en hún hefur tekið ógurlegann tíma. Núna er semsagt komin fín girðing í kring um nýja túnið okkar og nýræktina. Atli á sko hrós skilið fyrir þessa endalausu girðingu! Núna er bara að vona að það fari að rigna almennilega svo grasið fari að spretta. Reyndar fengum við góða dembu í gær sem vætti aðeins í en mikið þarf í viðbót ef vel á að vera.Nýja túnið og nýræktinStaurarnir loksins komir allan hringinnBylting er köstuð í Þýskalandi og átti þennan fína jarpskjótta hest undan Álfgrími frá Gullberustöðum</description>
Útskrift og fleira
      <description>Það gengur illa í hrossaræktinni á Mánaskál um þessar mundir en við misstum eina folaldið sem fæddist okkur í ár. Hugsýn kastaði myndarlegum brúnstjörnóttum hesti undan Abraham frá Lundum II sem er undan gæðingamóðurinni Auðnu frá Höfða og Vilmundi frá Feti. Abraham er bróðir Auðs, Arðs, Als og Asa frá Lundum sem allir hafa staðið sig vel á kynbótabrautinni og/eða í keppni. Atli dreymdi um að fá brúnt tvístjörnótt undan Hugsýn og Abraham og fékk brúnstjörnótt sem var bara nokkuð nálægt væntingum. Litli folinn var ekki kominn með nafn þegar hann drapst 6. júní aðeins tveggja daga gamall. Atli varð var við það að Hugsýn var orðin folaldslaus og strax var farið að leita að folaldinu, það var ekki í girðingunni og því var leitað á dalnum þar sem hugsanlega hefði hann getað farið út úr girðingunni og slæðst í burtu með nærliggjandi stóði. Svo urðu hann og Sindri, sem aðstoðaði við leitina, varir við að Hugsýn var að slást við hryssurnar í hólfinu. Fundu þeir þá litla folann og hafði hryssan verið að verja hann. Hann hafði horfið ofan í jörðina í gegn um smá holu og þar undir var mikið holrúm blaut leðja. Hann átti því aldrei séns litli folinn fyrst hann féll þarna ofan í. Við vorum auðvitað miður okkar yfir þessu enda áttum við ekki von á að þessi hætta leyndist í hólfinu. Hugsanlega er um að ræða vatnsuppsprettu sem okkur var ekki kunnugt um. Það var algjör martröð að lenda í þessu og það var mikil sog á heimilinu. Við misstum hryssu frá folaldi í fyrra og maður taldi að við værum búin með þennan kvóta í bili. Ég auglýsti strax á netinu að ég væri með mjólkandi hryssu ef folaldi vantaði fósturmóður. Ég náði sjálf að venja Bratt undir Grímu frá Lundum í fyrra og ég gat ekki annað en boðist til að aðstoða aðra fyrst ég var búin að upplifa það að fá svona góða aðstoð í fyrra.Daginn eftir fór Hugsýn í lán á Narfastaði í Skagafirði en þar var folald sem var móðurlaust og tilraunir til að venja það undir hryssu voru ekki að bera árangur. Svo fór að Hugsýn gekkst við folaldinu og er nú að mjólka ofan í lítinn fola. Í dag verður hún svo sótt ásamt folaldinu og þau fara svo saman til móts við stóðhest fljótlega.Á föstudag í síðustu viku fann Atli lambræfil sem hann kom með heim. Lambið var undanvillingur, vanært og með skitu. Svo fór að við fóstruðum litlu gimbrina sem náði sér svo aldrei almennilega á strik þrátt fyrir góða tilraun. Hún drapst svo eftir helgina og þá var maður orðinn feginn að hún fékk að fara því það var orðið ljóst að þetta var töpuð barátta, hún bara veslaðist upp.Þórdís Katla og Alexíus aðstoða við að gefa lambinuSíðustu helgi útskrifaðist ég svo sem viðskiptafræðingur frá Háskólanum á Akureyri  Þetta var oft á tíðum erfitt en nú er ég búin að uppskera gráðuna og fjölskyldan mín á þakkir skilið fyrir þolinmæði og aðstoð í gegn um námið.Mamma og pabbi komu norður til að vera viðstödd útskriftina og svo fékk ég góða gesti líka en frænkurnar mínar fjölmenntu með mökum og áttum við góða helgi saman.Það voru ekki allir að þekkja Atla svona skeggjaðann en jú ég er enn með sama karlinn, er ekkert búin að endurnýja  Alexíus frændi kom með í sveitina yfir þessa helgi og það var rosalega gaman hjá honum og Þórdísi. Þau fengu meðal annars að kúra saman í veiðihúsinu sem var mikið sport.Alexíus og Þórdís KatlaAmma Sveinbjörg og afi Gunni keyptu sundlaug handa skvísunni og sem betur fer átti Atli einhverja loftdælu til að blása í gripinn því við hefðum aldrei getað það með lungunum.Þórdís og Alexíus fengu að prufa sundlaugina sem var mjög gamanÁ mánudagsmorgun fengum við góðan gest en hún Lína litla frá Sturluhóli kom í heimsókn eina nótt. Hún og Þórdís voru miklar vinkonur og var Þórdís ansi hrifin af þessum litla gormi. Hún er bara hvolpur og gauragangurinn eftir því  Hún fékk samt að fara með Atla í girðingavinnu og er orðin útskrifuð sem sveitahundur.Ég varð vitni að því þegar Týri stal af henni nagbeini en þá greip hún til sinna ráða og kom inn með alvörubein sem Týri hafði væntanlega sett á góðan stað til að geyma til mögru áranna  </description>
Ár á Mánaskál
      <description>           0   0   1   441   2517   Icelandair   20   5   2953   14.0                 Normal   0               false   false   false      EN-US   JA   X-NONE                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                       /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable  {mso-style-name:"Table Normal";  mso-tstyle-rowband-size:0;  mso-tstyle-colband-size:0;  mso-style-noshow:yes;  mso-style-priority:99;  mso-style-parent:"";  mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;  mso-para-margin:0cm;  mso-para-margin-bottom:.0001pt;  mso-pagination:widow-orphan;  font-size:12.0pt;  font-family:Cambria;  mso-ascii-font-family:Cambria;  mso-ascii-theme-font:minor-latin;  mso-hansi-font-family:Cambria;  mso-hansi-theme-font:minor-latin;}        Það er kominn júní en síðastliðna helgi var orðið ár síðan fjölskyldan flutti hingað norður. Mér finnst bæði eins og við séum nýkomin og að við höfum alltaf verið hérna.   Atli varð svo líka þrítugur á sunnudag og fékk gjafir og tertu í tilefni dagsins. Nágranni okkar hann Sindri á Neðri Mýrum varð einnig þrítugur síðasta fimmtudag og að tilefni þessa var haldið smá teiti á Neðri Mýrum á föstudag. Mikið af góðu fólki leit við og fengu strákarnir ýmsar skemmtilegar gjafir t.d. rabbabara og bruggkút svo væntanlega verður reynt við rabbabaravíngerð í sumar. Mál málanna var væntanlega samt að þeir fengu folatolla að gjöf og töldu þá allir að ég þyrfti að nú aldeilis að reyna að vinna mér inn prik hjá Atla mínum til að komast yfir tollinn. Fyrir mér lítur dæmið þó ekki þannig út þar sem hann þarf væntanlega að vera góður við mig til að fá lánaða hjá mér hryssu! Reyndar kom svo upp úr hattinum að annar hver maður í teitinu var tilbúinn að lána Atla hryssu í folaldseign svo greyjið maðurinn þyrfti ekki að vinna sér inn prik hjá frúnni til að fá lánaða hryssu. Við sjáum til hvernig þetta endar allt saman en það er ljóst að Atli er á leið í hrossarækt.Sveinbjörg og Gunnar komu til okkar um helgina og auðvitað sátu þau ekki auðum höndum frekar en fyrri daginn. Hér var borið á tréverk, settar niður kartöflur og vatnsbólið var hreinsað. Sólin lék við okkur alla helgina. Ég var að vona að Atli fengi folald frá Hugsýn í afmælisgjöf þar sem hann átti að fá að eiga folaldið hennar. Um kvöldmatarleyti á sunnudag kíkti ég á hryssuna og sá að það var komin mjólk í hana svo þetta var að skella á. Ég vakti aðeins eftir henni en ákað svo að fara bara að sofa, þetta kæmi hvort sem ég væri að horfa á eða ekki. Atli vakti mig svo um klukkan þrjú með þær fregnir að það væri komið brúnt folald. Ég stökk auðvitað upp úr rúminu og út til að kíkja á gripinn og þetta var þessi líka sæti og blauti brúnstjörnótti hestur. Núna þarf Atli að finna nafn á folann sinn þar sem ég var bara klár með hryssunafn.  Í dag komu hinga blaðamaður og ljósmyndari frá Fréttablaðinu en það verður víst ekki þreytt saga að við skulum hafa flutt af mölinni og hingað í buskann. Þetta fólk var auðvitað velkomið í heimsókn þó svo okkur finnist við ekki hafa neitt að segja. Þeim langaði svo að mynda einhver hross og leist rosalega vel á að mynda nýja folaldið okkar svo við æddum út í stykki og vorum þar mynduð í bak og fyrir með Hugsýn og litla folaldið. Hugsýn er mikil mamma og passer vel upp á ungann sinn. Við komum þarna askvaðandi með ljósmyndara og Týra og það var allt í lagi, en þegar hinar hryssurnar komu nálægt þá tropaðist gamla mín. Hún vill sko ekki fá þær nálægt sínu afkvæmi.    Sætur með hálfu stjörnuna sínaNæstu helgi er kvennareið Neista sem ég missi því miður af þar sem hún er sama dag og útskriftin mín. Ég er voðalega svekkt því ég var sko búin að ákveða að mæta í þessa ferð. Ég er að fá til mín gesti í tilefni útskriftarinnar svo hérna verður vantanlega fjör næstu helgi.   </description>
Hitt og þetta
      <description>          0   0   1   551   3141   Icelandair   26   7   3685   14.0                 Normal   0               false   false   false      EN-US   JA   X-NONE                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                        /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable  {mso-style-name:"Table Normal";  mso-tstyle-rowband-size:0;  mso-tstyle-colband-size:0;  mso-style-noshow:yes;  mso-style-priority:99;  mso-style-parent:"";  mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;  mso-para-margin:0cm;  mso-para-margin-bottom:.0001pt;  mso-pagination:widow-orphan;  font-size:12.0pt;  font-family:Cambria;  mso-ascii-font-family:Cambria;  mso-ascii-theme-font:minor-latin;  mso-hansi-font-family:Cambria;  mso-hansi-theme-font:minor-latin;}        Núna er sumarið klárlega komið og ég kann sko vel að meta það!  Síðasta vika var mjög annasöm hjá Atla en hann og Sindri og Neðri-Mýrum voru að tæta tún, bera á og fleira í þeim dúr. Atli sást varla heima svo dögum skipti en ekki kvarta ég þar sem ég fékk nýtt tún fyrir vikið. Núna er hann svo að girða í kring um nýræktina okkar.  Einnig er búið að bera á tvö tún hjá okkur en við erum að spá í að skella áburði á allavega eitt tún til viðbótar.  Á fimmtudag kom dýralæknirinn að gelda Bratt og ég lét hann líta á Hugsýn í leiðinni og taka DNA sýni úr henna og Össu frá Þóroddsstöðum.Assa frá Þóroddsstöðum  Við fengum góða gesti hér um helgina en Aggi bróðir og fjölskyldan hans komu í heimsókn alla leið frá Vestmannaeyjum. Við áttum von öðrum næturgestum þessa helgi svo ég fékk veiðihúsið lánað og Aggi, Snæja, Guðrún Ósk og vinkona hennar hreiðruðu um sig þar. Týri minn kannaðist sko alveg við þetta góða fólk og hann fór sko með þeim út í veiðihús og gisti þar hjá þeim. Það var heldur ekki að spyrja að því að Aggi mætti með harðfisk handa Týra vini sínum sem kunni vel að meta það.    Á laugardag fór ég á Blönduós en tók með mér kerru með rusli í leiðinni. Aggi keyrði á eftir mér sem reyndist vera ágætt þar sem ég keyrði greinilega eins og bavíani með kerruna og drefiði rusli um alla sveitina. Þau voru í fullu starfi að hirða upp rusl eftir mig!  Við fórum í hesthúsið og ég lagði á Drunga fyrir stelpurnar og þær fengu að dóla á honum inni í gerði. Hann er alveg lúsþægur í svona. Þórdís fékk svo auðvitað að fara á bak líka og fékk meira að segja að halda í tauminn og hún var alveg með á hreinu hvernig maður á að stoppa hest. Angela í Lækjardal kom svo og kíkti á Vöku fyrir mig í annað skipti. Vaka var greinilega betri á vissum stöðum en enn eitthvað bólgin á öðrum. Ég var voða spennt að prufa hana og sjá árangurinn því mér fannst augljóst að þetta hafði eitthvað að segja. Angela í raun staðfesti það sem ég þegar vissi að einhvern tímann hefur eitthvað komið fyrir hálsinn á henna. Drungi fékk líka smá meðhöndlun en það var ekkert að sjá að honum en það er aldrei verra að vera viss.  Á heimleiðinni úr hesthúsinu þurfti ég að stoppa fimm sinnum til að hirða upp rusl eftir sjálfa mig! Ég hef semsagt heldur betur dreift ruslinu.   Á laugardagskvöld grilluðum við og horfðum á Eurovision sem endaði eins og það endaði, mér fannst þetta nú ótrúlega lélegt gengi og lög eins og hjá Tyrkjum voru að meika það sem ég skil bara ekki. Þessi sjóræningi á bátnum sínum átti bara heima á barnaleikriti í leikhúsi fannst mér.  Bryce vinur Atla og tveir skólafélagar hans mættu á svæðið og fengu gistingu hjá okkur á ferðalagi sínu um landið.  Á sunnudag fóru Aggi og fjölskylda á Akureyri en ég fór á Blönduós með nýju fínu hestakerruna mína að sækja Drunga og Vöku. Það gekk eins og í sögu að setja þau á kerruna og ég var alveg himinlifandi þar sem ég var búin að sannfæra Atla að Drungi yrði ekki svona erfiður að fara á góða kerru, en við vorum búin að lenda í vandræðum með að koma honum á hestakerru oftar en einu sinni. Þetta bara gekk eins og í sögu og við lögðum af stað með bros á vör. Ferðinni var heitið í Lækjardal til Angelu en til stóð að leyfa Bretunum  að fara á hestbak. Ég fékk lánað eitt þægt hross frá Neðri Mýrum sem var í Lækjardal og við fórum fyrst á bak inni í skemmu en svo var lagt af stað í smá reiðtúr. Allir skiluðu sér heim svo ég var bara sátt.  Á mánudag fór Atli í smá bílaviðgerðir bæði fyrir okkur og Bryce. Kvöldið fór svo í að gefa ormalyf, klippa síðustu hófana og færa til hross.  Ekki er enn komið folald á þessum bæ en ég tel að það sé orðið ansi stutt í það. Hugsýn er kannski að bíða eftir afmælinu hans Atla en hann verður þrítugur um helginaTýri er að standa sig vel sem smalahundur og sér til þess að fé haldi sig frá túnunum okkar. Gamla mínum finnst þetta nú frekar erfitt samt en hann kannski verður orðinn spengilegur eftir sumarið.  Ég sé nú að ég hef ekki verið nógu dugleg að taka myndir og þarf að bæta mig í því! Vonandi fylgja fleiri myndir næstu fréttum!   </description>
Sumarið er vonandi komið
      <description>Jæja núna er sko löngu kominn tími á fréttir! Þar sem að svo langt er síðan ég skrifaði fréttir síðast þá verður hellingur útundan en ég ætla að reyna að stikla á því helsta. Ég kom heim um miðjan apríl eftir dvöl í Ungverjalandi, Þýskalandi og loks Svíþjóð. Lokaverkefnið mitt sem ég er búin að vera að vinna að síðan í haust var ekki enn tilbúið en þetta var sem betur fer allt að smella. Fleiri vikna vinna að baki í þessu verkefni og því lauk loksins núna í maí og er farið í dóm. Ég verð nú samt að segja að þetta tók ótrúlega á, sérstaklega á lokasprettinum og til að gera langa sögu stutta þá er ég ein af fáum ef ekki bara sú eina sem mætti með lokaverkefnið á pósthúsið grátandi! Ég sem man svo greinilega eftir því þegar ég var stödd á pósthúsi síðastliðið vor og sá stelpu póstleggja lokaverkefni. Ég öfundaði hana svo rosalega og hlakkaði svo til að standa í hennar sporum, en nei ég var bara miður mín. Var ekki 100% sátt við fráganginn á verkefninu og varð að senda það frá mér samt sem áður. Ég er viss um að starfsfólkinu á pósthúsinu hafi þótt þetta frekar skrítið  Ég var svo ósátt við útlitið á verkefninu að ég sóttist eftir því að fá að skila nýjum eintökum, sem ég fékk, og þau eru nú á leið í pósti  Reyndar týndist verkefnið líka í Reykjavík, bara svona til að bæta ástandið, en ég hef fulla trú á að það sé á leiðinni núna. Einkunn skilar sér svo um mánaðarmótin og útkskriftin er 9. júní  .. ég er strax farin að gjóa augunum að öðru B.S. námi en ætli ég verði ekki að hemja mig um sinn.Við Þórdís eyddum nokkrum dögum í Svíþjóð hjá systur hans Atla og fjölskyldu. Það var kominn tími til að fara þangað í heimsókn og það verður sko pottþétt farið þangað aftur. Þórdís Katla á svo frábæran frænda, hann Kára, sem var endalaust duglegur að leika við hana. Þórdís fékk líka að fara með Kára á fótboltaæfingu og ætli ég hafi ekki þar með tapað henni úr hestunum í fótboltann, allavega var áhuginn gýfurlegur! Hún fékk sko líka lánaðann fótboltabúning sem hún fór ekki úr í tvo daga! Algjör fótboltastelpa hér á ferð  og taktarnir sko alveg á hreinu... Eftir dvölina í Svíþjóð ókum við mæðgur yfir til Kaupmannahafnar í flug en frændi hans Atla hitti okkur á flugvellinum og tók bílinn. Hann fór svo með Norrænu heim til íslands með bílinn okkar og hestakerruna. Þegar við komum heim var allt autt og heldur vorlegt á að líta en það átti eftir að breytast. Í síðustu viku gerði hér snjó, ís og ógeðis veður svo mönnum og hestum var nóg boðið. Ég hafði flutt Vöku og Drunga á Blönduós um leið og ég kom heim að utan og setti veturgömlu tryppin út í staðinn. Þetta veður sem skall á var ekki alveg það sem tryppagreyjin þurftu. Þetta endaði þannig að fyrst Atli var ekki heima þá hertók ég skemmuna hans og gerði þar stíu fyrir tryppin og Hugsýn. Þetta var sko ekki vandamálið, tvær spítur og eldhúsborð er allt sem þarf  .. svona þangað til gamla mín losnaði og hrakti tryppin út úr stíunni og yfir allt dótið hans Atla í skemmunn! vúps þá var mín ekki vinsæl! Þetta fór nú samt allt vel og enginn slasaðist. Það var bara ekki hægt að horfa á tryppin í þessu veðri, þegar fullorðnu hrossin sem voru búin að vera úti í allan vetur skulfu, þá gat maður bara rétt ímyndað sér hvernig tryppunum leið svona ísilögðum. Núna eru auðvitað allir komnir út aftur og hafa það gott.OrðaBratturGamla mín, HugsýnGleðiAf hryssumálum er helst að frétta að Gleði er seld og fer erlendis eftir áramót. Henni verður haldið í sumar áður en hún fer til nýs eiganda. Ég er ekki viss hvort það er folald í Hugsýn, ég skipti um skoðun nær daglega, suma daga er ég mjög svartsýn en aðra finnst mér vera einhver von. Dýralæknirinn mætir væntanlega í næstu viku að gelda Bratt og þá verður hann fenginn til að skera úr um þetta. Reiðhestarnir eru semsagt búnir að vera á húsi síðan ég kom heim en þar sem ritgerðin var ekki búin hefur lítill tími verið til útreiða og við Þórdís líka oft einar í kotinu. Við erum samt búnar að fara saman í heimsókn í hesthúsið og Þórdís fékk að æfa sig aðeins á Drunga.Nú þegar ritgerðin er búin á að koma sér í grírinn og ég fór á bak í gær og átti ágætis túr á Vöku minni en hún er ekki eins og hún á að sér að vera. Hún er stíf og viðkvæm fyrir taumi. Ég varð vör við þetta sl. haust og til stóð að láta líta á hana um leið og hún kæmi inn um áramót, það dróst svo alveg þangað til í apríl. Í dag kom hún Angela í Lækjardal til okkar í hesthúsið til að líta á dömuna og það var eins og við héldum, hún er stíf í hálsi og með vöðvabólgur bæði í hálsi og baki. Hún var nudduð í bak og fyrir og það sást alveg á henni hvernig spennan rann af henni. Hún var hálf ósátt fyrst en svo sá maður hana lygna aftur augunum og henni fannst þetta greinilega orðið gott. Hún fékk svo líka nálastungur. Nú er spennandi að sjá hvernig hún bregst við þessu öllu saman en meðferðin er ekki búin, það þarf að meðhöndla hana í nokkur skipti í viðbót. Til stendur að halda Vöku, Hugsýn og Össu þetta árið plús Gleði en það fer eftir því hvort Hugsýn sé með folaldi núna undir hvern henni verði haldið. Atli er iðinn eins og alltaf og þessa dagana er verið að vinna í litla Benz, rafstöðin er komin í gagnið aftur og ný varmadæla komin í gang. Girðingaefnið er komið á staðinn og nú stendur til að girða og rækta upp Þetta er nú hálf snubbótt fréttafærsla en svona er þetta þegar of langt um líður, þá gleymist bara svo margt. Ég stefni á að vera duglegri héðan í frá.</description>
Þýskaland
      <description>            0   0   1   205   1175   Icelandair   9   2   1378   14.0                 Normal   0               false   false   false      EN-US   JA   X-NONE                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                                      /* Style Definitions */ table.MsoNormalTable  {mso-style-name:"Table Normal";  mso-tstyle-rowband-size:0;  mso-tstyle-colband-size:0;  mso-style-noshow:yes;  mso-style-priority:99;  mso-style-parent:"";  mso-padding-alt:0cm 5.4pt 0cm 5.4pt;  mso-para-margin:0cm;  mso-para-margin-bottom:.0001pt;  mso-pagination:widow-orphan;  font-size:12.0pt;  font-family:Cambria;  mso-ascii-font-family:Cambria;  mso-ascii-theme-font:minor-latin;  mso-hansi-font-family:Cambria;  mso-hansi-theme-font:minor-latin;}        Tíminn líður á ógnarhraða hérna í Þýskalandi. Ég ætlaði að skrifa fréttir strax eftir ferðalagið hingað frá Budapest en svo eru allt í einu 20 dagar liðnir! Alveg merkilegt.  Við erum í Hedendorf sem er úthverfi frá Buxtehude sem er bær rétt sunnan við Hamburg. Við erum semsagt eiginlega úti í sveit. Hérna í þessum smábæ, sem er örugglega ekki stærri en Blönduós, eru hesthús og fjós inni í íbúðagötum, það er fjárhús fyrir aftan húsið hjá okkur og þar eru örfáar kindur á beit allan daginn. Sauðburður er greinilega á næsta leiti, allavega er komið eitt lamb í hópinn. Um daginn mættum við Þórdís stelpu á hesti hérna í götunni okkar. Þetta er semsagt allt voðalega sveitó hérna.  Hér eru tré örítið stærri en gengur og gerist heimaGatan okkarVið erum í íbúð í jarðhæð í rosalega fallegum þýsku húsi með fínum garði fyrir okkur að leika í. Búð er í göngufæri svo við Þórdís björgum okkur hérna á daginn. Við komum hingað 1.  mars en fórum strax daginn eftir til Bremen til að skoða bíl.. og viti menn.. kagginn var tekinn með heim. Um er að ræða 7 manna Benz station svo það ætti að vera nóg pláss fyrir fjölskylduna í þessu farartæki.. já eða aðallega kannski draslið sem fylgir okkur endalaust. Húsið okkar og bílinn fyrir utan.. já og Atli og Þórdís Katla líkaÁ efri hæðinni í húsinu okkar býr maður sem er kominn á eftirlaun, hann er alveg yndislegur við okkur. Hann setti t.d. fuglahús við glugann hjá okkur og gaf Þórdísi Kötlu fuglafóður til að gefa fuglunum. Hún er voðalega dugleg að sjá um smáfuglana.Þórdís Katla með fótboltamarkið sittog traktorinn (ekki þennan stóra sem mömmuna dreymir um að kaupa handa henni!)   Þar síðustu helgi fórum við á rúntinn yfir til Hamborgar. Hér er allt lokað á sunnudögum svo það var kannski ekki rosalega mikið um að vera þennan dag sem við fórum þangað en þetta var gaman og Hamborg er bara ágætlega heillandi borg.   Þórdís Katla keypti sér þýska fánann.   .. og ég fann rauð "Ted Moseby" stígvél! Ég ligg yfir ritgerðinni minni alla daga eins og ég kemst mögulega upp með. Þórdís verður auðvitað að fá einhvern tíma greyjið en þessi ritgerð er sko alveg að drepa mig.. það er enn að koma mér á óvart hvað það er endalaust langur tími í þetta! Ég veit ekki hvernig ég hefði farið af að skrifa ritgerðina heima með vinnu. Þetta fer nú að taka enda samt sem betur fer. Ég er búin að vera að stefna á að skila þessu um mánaðarmótin en ég veit ekki hvort það hefst hjá mér. Þetta hlítur þó að hafast fyrir skiladag og þá er bara útskrift í júní  Ég er auðvitað farin að hugsa fram á betri tíð í hestamennskunni og hlakka mikið að koma heim á klakann. Ég þarf að vinda mér beint í að flytja folöldin mín á milli staða til að búa til pláss fyrir reiðhestana  Það hefur staðið til að taka Vöku og Drunga inn en núna er ég með þá hugmynd að taka Gleði inn til að prufa hana og sjá hvernig mér líkar hún. Ég veit ekki alveg hvernig ég pússla þessu þá þar sem ég hef ekki nema 2 pláss, kannski finn ég eitt í viðbót eða Drungi/Vaka þurfa að vera áfram úti, ég hef ennþá dálítinn tíma til að spá í þetta. En núna er komið nóg af fréttum í bili    </description>
Sex vikur að verða liðnar
      <description>Þá eru sex vikurnar að klárast hérna í Budapest. Það er með ólíkindum hvað þetta hefur liðið hratt! Fjölskyldan er ekki á heimför eins og til stóð heldur er ferðinni heitið til Hamborgar í Þýskalandi í aðrar sex vikur. Það verður því smá seinkun á því að Þórdís fari á leikskólann og ég í vinnuna að ógleymdu hesthúsinu! Folöldin mín bíða eftir mér í hesthúsinu á Blönduósi og mér skilst að þau séu stillt og prúð. Orða litla er að verða spök eins og Brattur og ég hlakka ansi mikið til að koma heim upp á hestamennskuna að gera þó að hér sé ansi frábært að vera. Reiðhestarnir eru úti á gjöf og Sindri stórbóndi á Neðri Mýrum sér um þau fyrir mig. Hugsýn mín hefur það vonandi gott og vonandi er nú folald í henni þetta árið. Hún var sónuð með fyli í sumar, en það gerði hún líka sumarið þar á undan en svo virðist hún hafa misst fylið þá. Ég vona að sagan endurtaki sig ekki og ég fái fallegt folald í vor undan henni og Abraham frá Lundum II. Nú má vorið allavega fara að koma til að skera úr um þetta  Svo fer alveg að líða að því að ég fari á yfirsnúning vegna stóðhestamála. Til stendur að gera aðra tilraun til að halda Vöku sparimeri þar sem hún hefur ekki átt folald áður, svo held ég Hugsýn og hinni brúnu Össu frá Þóroddssstöðum. Ég ætla aðeins að sjá til hvað ég geri með Gleði þá rauðskjóttu frá Þóroddsstöðum, það kemur í ljós í vor hvort ég ætla að halda henni eða ekki þetta árið. Vaka undan Svarti frá UnalækHugsýn undan Kjarval frá SauðárkrókiAssa undan Núma frá Þóroddsstöðum og Þrúði frá LaugarvatniGleði undan Hilmi frá SauðárkrókiLokaverkefnið mitt gengur ágætlega og er farið að taka á sig góða mynd. Það er ótrúlegur tími sem fer í eina svona ritgerð, ég er búin að liggja yfir þessu og á samt ótrúlega mikið eftir. Ég er svo glöð að hafa fengið tækifæri til að skrifa ritgerðina í fríi frá vinnu. Ég get ekki sagt annað en að maður sé farinn að sjá útskriftina handan við hornið en það eru ekki nema tæpir tveir mánuðir í skil á ritgerðinni og þá er ég búin! Hlakka ótrúlega til Þórdís Katla að leira kökur..snúa sér í hringiVið fórum í útsýnissiglungu á ánni sem rennur í gegn um Budapest. Þetta er rosalega falleg borg og hún er algjört æði þegar það er farið að rökkva. Margar af þessum hrikalega fallegu byggingum eru upplýstar eins og t.d. Parlamentið þeirra.Parlament building - ÞinghúsiðÍ gærkvöldi fórum við í göngu niður um verslunarhverfi þar sem ein aðalgata, svipað og laugavegurinn okkar. Úti á götu voru líka fjölistamenn og þessi var rosalega skemmtilegur að mati okkar. Þórdís Katla hljóp um tortið og elti sápukúlurnar hans Það er allt að verða tilbúið fyrir Þýskalandsferðina. Við bókuðum flug með Ryanair en ég held að við gerum það ekki aftur. Maður verður bara pirraður yfir öllum aukagjöldnum sem þeir demba á mann. Það þarf að borga sérstaklega fyrir það að bóka sig, velja sæti og svo framvegis og maður bíður alltaf eftir næsta gjaldi. Ég ætla samt ekki að kvarta ef við komumst yfir til Þýskalands á réttum tíma. Við erum búin að panta okkur bílaleigubíl í Þýskalandi til að koma okkur frá flugvellinum til Hamborgar og til að sækja nýja bílinn okkar. Atli er semsagt búinn að finna bíl handa okkur þarna úti og fyrir valinu varð svartur station Benz, eins Benz og við áttum nema station fyrir Týra og hann er líka sjö manna svo það er nóg pláss fyrir sundferðirnar á Blönduós í sumar Týri minn hefur það gott í Vestmannaeyjum. Hann varð 11 ára um daginn og fékk gott að borða í tilefni dagsins. Hann hefur aldeilis verið dekraður þarna í Eyjum og fær meðal annars harðfisk með smjöri á tillidögum og fær heila dýnu til að sofa á inni hjá heimasætunni. Nú er bara spurning hvort hann vill koma heim með mér aftur!Það er kominn mikill framkvæmdahugur í hobby "bændurna" á Mánaskál. Mörg flott verkefni liggja á teikniborðinu og það verður sko gaman að koma heim og taka hendur fram úr ermum. Ef við verðum heima í allt sumar þá verður sko mikið gert á okkar bæ  Fyrsta verk á dagskrá er að girða nýtt stykki en þar á að sá korni fyrir Neðri Mýra bóndann. Svo stendur til að klára að klæða húsið og fara í eldhús og bað. Svo koma örugglega upp ný og spennandi verkefni þegar líður á sumarið. Nú er best að koma sér aftur í ritgerðasmíðinKveðja frá Budapest</description>
Fréttir frá Budapest
Budapest vika 2
      <description>Héðan er allt gott að frétta af okkur. Lífið er ljúft og veðrið ansi fínt  Á meðan flestir eru á kafi í snjó heima á klakanum sést til sólar hér hjá okkur. Ég er búin að vera aðeins duglegri með myndavélina svo ég hef nokkrar myndir til að sýna. Ég setti líka slatta af nýjum myndum í albumið Budapest.Við erum búin að fara aðeins í skoðunarferðir um borgina. Síðustu helgi fórum við út í eyjuna sem er hérna á Canalinum sem rennur í gegn um borgina. Við fórum svo í Museum of transport og kíktum á lestar og fleiri skemmtileg farartæki.Þórdís Katla er að verða algjör selur. Hún fer helst í sund á hverjum degi og er að verða rosalega dugleg. Við fórum í dýragarð í vikunni. Þetta var fínasti dagur og veðrið lék við okkur. Garðurinn hafði mörg dýr og kom mér eiginlega á óvart því í fyrstu virkaði hann ekkert rosalega stór. Ég veit ekki alveg hvor skemmti sér betur ég eða Þórdís Katla, þetta var allavega mjög gaman.Núna í vikunni fórum við út seinnipartinn í göngu meðfram ánni sem rennur í gegn um borgina. Útsýnið er hrikalega fallegt þegar farið er að dimma og myndir ná eiginlega ekki að fanga það. Hér eru margar fallegar byggingar og bara æðislegt að rölta um miðbæinn að kvöldi. Í kvöld fórum við út að borða á veitingaghús sem er í göngufæri við hótelið okkar. Staðurinn leit vel út en maturinn var hrikalegur. Frekar skondið kvöld eiginlega. Ég er enn ekki að fatta matinn sem var boðið upp á þarna en þjónustan og allt var tipp topp, eftirréttirnir voru fínir en aðalréttirnir voru mikil vonbrigði. Þórdís fékk gasblöðru og eftirrétt með flugeld ofan á svo þetta var ekki alslæmt  Fullt af myndum í albumi!</description>
Budapest
      <description>Þá er fjölskyldan sameinuð í Budapest Ég var nú víst búin að lofa mörgum að vera dugleg að blogga á meðan ég væri að heiman en svo finn ég það nú þegar að tíminn er farinn að hlaupa frá manni. Ég ætla samt að reyna að standa við þetta og blogga sem oftast.Við Þórdís og Týri fórum suður til Reykjavíkur á fimmtudagskvöld þar sem veðurspáin fyrir föstudag og laugardag var síðri. Við sömdum við Sindra á Neðri Mýrum um að gefa hrossunum mínum og svo eru folöldin þau Brattur og Orða á húsi á Blönduósi við fínan aðbúnað. Ég á því að geta verið áhyggjulaus hérna en auðvitað er ég að hugsa til þeirra og á eftir að fylgjast náið með  Við Þórdís fórum í Hveragerði á föstudaginn og ég skellti mér í surprice 2xfertugsafmæli þar sem frændi hans Atla og konan hans áttu bæði afmæli og fengu semsagt ekki að sleppa við að halda upp á það! Fjölskyldan tók málið bara í sínar hendur. Þetta var voðalega gaman og Atli missti af heilmiklu finnst mér.Á laugardag mættum við Þórdís Katla í afmæli til Alexanders og Christians en þeir voru að halda upp á 3. ára áfangann. Ó já.. þessi börn eru víst öll að detta í 3. ára! Alveg merkilegt hvað tíminn líður. Þórdís mín verður 3. ára eftir nokkra daga  Ég keyrði Þórshamar Týra svo í flug á laugardaginn. Hann beið svo kurteins og fínn með mér inni í farþegasalnum. Hann dillaði skottinu og brosti í hvert sinn sem einhver kom inn og iðaði allur þegar börn komu inn, samt svo stilltur. Svo kom bara vallar starfsmaður og teymdi hann með sér út. Týri var bara glaður með það og elti þennan ókunna mann, enda er hann alltaf glaður þessi hundur! Hann var svo bara glaður að sjá Agga bróðir úti í Eyjum og ég efast ekki um að hann sé að standa sig þarna. Bara eins gott að ég fái hann til baka  ég veit nefnilega að það er ekkert mál að falla fyrir þessum hundi!Á laugardagskvöld fór ég á Hamborgarafabrikkuna með Ásu Maríu og Sólveigu. Það er ekki svo oft sem maður hittir þær svo það erum að gera að nýta svona Reykjavíkurferðir. Svo var líka maturinn bara fínn! Ég fer örugglega þangað aftur. Elsa vinkona komst ekki með á Fabrikkuna þar sem hún var að sækja hrossin sín norður. Í staðinn þá fór hún á fætur fyrir allar aldir og kom með mér upp á völl á sunnudagsmorgun.. já ef það má segja að það sé kominn morgunn kl. 5 á morgnana! Þórdís Katla vaknaði þegar ég bar hana út í bíl og var svo bara hin hressasta. Elsa sat með okkur dágóða stund í flugstöðinni áður en við Þórdís fórum upp í fríhöfnina. Það var búið að semja um það að Þórdís fengi að velja sér dót í fríhöfninni og það var sko nóg um að velja.Pet shop dót varð fyrir valinu og var mikið handleikið á leiðinniÞað var voða sport að fara í flugvélina og svo var hún eins og engill alla leiðina. Horfði á sjónvar, litaði og lék sér að dótinu sínu. Ég hefði ekki getað beðið um meira! Ég gat bara setið slök og horft á bíómynd.Við millilentum svo í Amsterdam og þurftum að bíða þar í tæpa þrjá tíma. Ég gat tékkað farangurinn alla leið svo við þurftum ekkert að vesenast á þessum flugvelli. Ég var með brottfararspjöldin útprentuð svo við þurftum bara að finna Gate-ið okkar og bíða rólegar.Þórdís lék sér og trallaði fyrir flugvallargesti og náði fram ansi mörgum brosum þann daginn  Í fluginu með KLM flugfélaginu svaf Þórdís eiginlega alla leiðina. Við fórum á fætur kl. 4 svo það var ekki skrítið að litlar prinsessur væru orðnar þreyttar.Atli beið svo eftir okkur á flugvellinum í Budapest og við tókum taxa "heim" á hótel. Við erum með fína íbúð, rúmgóða og fína. Eldhúsið er stærra en ég átti von á og svo erum við með þvottavél og þurrkara. Bara flott. Sundlaug, gufa og heitur pottur ásamt líkamsrækt á hæðinni fyrir neðan... ég ætla sko í ræktina um leið og ég er búin að kaupa mér föt og skó í ræktina!Við röltum svo út á Fridays og fengum okkur í gogginn saman.Á degi 1 var nú strax farið í búðir  Fyrsta skref var að kaupa bílstól fyrir Þórdísisvo fékk hún kút, bát og bolta fyrir sundið!Við Þórdís erum búnar að vera duglegar að finna okkur eitthvað að gera á daginn.. enda er ég ekki enn búin að fylla ferðatöskurnar svo ég hef ennþá verkefni! Annars er ég með ritgerðina mína opna allan daginn og er að vinna í henni þegar ég tapa ekki baráttunni við dótturina um tölvuna! Hún vill nefnilega horfa á myndir í henni á sama tíma og ég vil læra.. ég þarf eitthvað að hugsa þetta upp á nýtt! Þórdís fyrir utan hótelið okkarVið áttum frábæran dag saman í dag. Við röltum í Mall-ið og versluðum dálítið í HM á Þórdísi. Ég ætla að fara aðra ferð í HM bara fyrir mig! Hún stóð sig ótrúlega vel í þessu rölti og græddi líka heilmikið á því að vera stillt og prúð!  Ég kom líka við í Vodafone en ég er í vandræðum með nýja símann minn!.. sem ég keypti í Vodafone á Íslandi áður en ég kom út. Ég var svo glöð að fá mér loksins síma sem maður getur notað á netið, facebook og fleira skemmtilegt.. en nei, í fyrsta lagi gat ekki ekki tengst netinu í gegn um 3G og svo þegar það er búið að bjarga því fyrir mig (í vodafone hérna úti) þá get ekki ekki gert neitt á facebook í gegn um símann  Það lítur út fyrir að síminn minn sem er glænýr og ekkert notaður sé bilaður! frábært! Ég hafði samband við Vodafone heima og þeir segja að ég eigi að geta framvísað nótunni fyrir honum sem ábyrgðarskírteini í allri Evrópu.. en sjáum til hvernig það gengur! Það er kannski best að það komi fram að ég er ekki að nota íslenska númerið mitt hérna úti. Ég er komin með ungverskt símanúmer (man ekkert hvað það er!) og því þýðir ekki að senda mér sms eða eitthvað þannig. Mæli með að senda mér skiló á facebook eða bara á manaskal@gmail.com. Ég ætla að vera duglegri að taka myndir á næstu dögum. Ég fór nú af stað í dag með Canon EOS vélina mína en hún varð rafmagnslaus við útidyrahurðina svo ég reyni kannski aftur á morgun hehe.Héðan er semsagt allt gott að frétta og allir skemmta sér vel. Verðin eru frábær, hér er allt til. Ég sakna reyndar ýmissa hluta úr ísskápnum heima en ég svelt varla hérna samt. Maður er bara svo góðu vanur heima, hérna er t.d. bara einhver G mjólk.. hvað er málið með það! Annars er matur hérna svo ódýr að maður getur ekkert kvartað.. og Tesco! Draumastaður! Það er sko matvörubúð í lagi!!Bless í bili</description>
Desember 2011
      <description>Það er orðið dálítið langt síðan ég skrifaði fréttir síðast svo ég ætla að reyna að stikla á stóru um helsti fréttir síðan síðast.Það sem af er vetri hefur verið nóg af snjóVið fórum í jólatrésleiðangur á þorláksmessu sem var svakalega skemmtilegt. Í Gunnfríðarstaðarskógi má velja sér jólatré og höggva sjálfur. Við fórum í frábæru veðri í skóginn og fundum okkur jólatré til að taka með heim. Atli og Þórdís Katla skima eftir jólatréKolla og Þórdís KatlaLeiru Þórshamar Týri - Íslenski fjárhundurinn á bænumBúið að velja jólatré og þá þurfti að sagaJólatréð dregið til bakaVið áttum ósköp notaleg jól hérna í sveitinni. Tengdó voru hjá okkur yfir jólin og við áttum yndislegar stundir saman. Þórdís var ótrúlega róleg yfir þessu jólastússi en var svo mjög dugleg að opna pakkana þegar byrjað var á því á annað borð. Hún fékk auðvitað fullt af fínum gjöfum eins og aðrir og var mjög hamningjusöm með sitt  Þórdís gerði cornflakes kökur handa okkur á jóladagHér eru öll hross löngu komin á gjöf og þau fengu líka afskruðinn af jólatrénu á aðfangadag  þeim leiðist nú ekki að naga svoleiðisDrungi kíkir á jólatréðHeldri hryssurnar mínar þær Rák og FlugaBylting að fá sér vítamín og steinefniVaka sýnir hvað henni finnst um migHugsýn mín sem fór undir Abraham frá Lundum II síðasta sumarGríma og Brattur fóru á Blönduós nokkrum dögum fyrir jól og Gríma fór svo með hestabíl heim á Lunda en Brattur á að vera á húsi á Blönduósi þangað til hann fer á Bjarghús í fóðrun. Ég kíkti auðvitað í hesthúsið um jólin og hafði myndavélina meðferðis. Brattur er alltaf hress og kátur og það er gaman að honum.Brattur, undan Birtu minni sem ég missti í sumar og Feng frá Meðalfellistuð í gerðinuTýri fær svo auðvitað að koma með í hesthúsiðEðall Byltingarsonur er farinn til nýs eigandans en hann var sóttur óvænt hingað af Jakobi hestabílstjóra. Ég var bara í þvottahúsinu að dunda mér þegar allt í einu er bankað. Ég fór til dyra og standa þá tveir hestabílstjórar úti á palli og hestabílinn opinn og tilbúinn fyrir neðan bæinn. Ég fékk alveg áfall þar sem ég átti ekki von á bílstjóranum og folaldið var enn úti með Byltingu. Nú voru góð ráð dýr og mér fannst ekki annað hægt en að drífa sig út og reyna að ná folaldinu einn tveir og bingó. Það var orðið dimmt og ég átti von á að þetta yrði eitthvað skrautlegt. Ég greyp með mér múl og brauð og lokkaði hrossin strax inn í gerði. Á svona stundum er gott að eiga brauðhross  Ég tók Byltingu í taum og mýldi svo folaldið henni við hlið og það gekk eins og í sögu. Þá var bara eftir að koma folaldinu upp á hestabílinn. Bylting var teymd með honum að bílnum og það gekk ótrúlega vel að koma honum upp. Hann var kannski ekki alveg til í að fara í einum rykk enda skildi hann bara ekkert hvað var að koma fyrir hann og hvert átti að troða honum. Upp fór hann og hann átti nú dálítið bágt þarna fyrst, lagðist bara niður og ætlaði bara að vera þar á meðan hann hugsaði málið. Bílinn var tómur svo hann hafði engin hross til að hlaupa til. Hann fór svo á sinn stað og lagði í sitt ferðalag austur á firði. Grey Eðall minn var heila 14 tíma á bílnum  litla greyjið. Það gengur bara vel með hann á nýja staðnum og eigandinn er ánægð með hann svo við erum ánægð líka. Eðall frá Mánaskál lítill og sætur í sumarEðall í ágúst/septÞað eru nú líka fréttir af Byltingu minni en hún er nú komin til nýrra eigenda í Þýskalandi. Ég átti von á hestabíl hérna daginn fyrir gamlárs en svo fór að ég flutti hana á Blönduós og fékk til þess góða hjálp hjá nágranna mínum Sindra á Neðri Mýrum. Ég þurfti að fá snjómokstur því hingað var ekki fært fyrir hestabíl eða kerru. Það gekk allt eftir pöntun svo það var ekkert mál að draga kerru. Bylting fór svo á bíl sama dag og fór til Gunnars og Krissu í Horse Export þar sem hún fór í læknisskoðun og allt það. Hún fór svo í flug þann 4. janúar og er komin til nýrra heimkynna og nýir eigendur eru voðalega lukkulegir með hana. Ég bíð nú spennt eftir fréttum og nýjum myndum af henni.Eftir að ég hafði sett Byltingu á bílinn fór ég sjálf suður til að taka á móti Atla mínum. Þórdís var fyrir sunnan hjá ömmu og afa í Hveragerði og Týri var hjá þeim líka. Það var dálítið sérstakt að vera alein í kotinu, ekki einu sinni barnið eða hundurinn. Sameinaða fjölskyndan var svo í mat hjá fjölskyldumeðlumum á gamlárskvöldi og allir skemmtu sér vel. Týri fékk að fara með í party og stóð sig vel sem selskapshundur við það tilefni. Hann var ótrúlega rólegur á miðnætti og eiginlega bara ekkert mál að hafa hann með þó hann hafi verið á ókunnugum stað líka. Þórdís Katla og pabbi með blys.. eftir það voru sjörnuljós ekki skemmtilegTýri partyhundur  Ég tók allt of fáar myndir á áramótunum svo ég verð að blikka Tinnu og fá lánaðar hennar myndir þar sem hún var mikið duglegri að hafa myndavélina á lofti.Eins og ég var búin að segja frá áður þá keypti ég mér folald í haust en ég var ekkert búin að gera því nánari skil. Ég og Elsa misstum okkur semsagt aðeins á Skype í haust og úr varð að við ákvaðum að kaupa okkur sitthvort folaldið. Folöld sem við sáum í haust í réttunum í Víðidalnum og ég var auðvitað búin að sjá myndir líka á netinu. Folöldin eru frá Stórhóli í Vestur Húnavatnssýslu. Við Elsa ætluðum svo að drífa okkur í heimsókn að Stórhóli og kíkja á gripina sem við vorum búin að festa okkur.. nema hvað að svo kom aldrei rétti tíminn. Elsa kom svo loksins norður milli jóla og nýárs og ég gat hliðrað til vinnunni til að komast í björtu á Stórhól. Viti menn.. þetta er veðrið sem við fengum..alveg frábært veður til að skoða hross!Til að segja loksins frá þessari hryssu þá heitir hún Orða og er undan slettuskjóttum hesti sem heitir Dísill frá Hæli. Sá er undan Hóf frá Varmalæk og Smáradóttur. Hún er rauðstjörnótt, glaseygð á báðum. Þar sem ég fékk enga hryssu í vor sjálf þá varð ég bara að kaupa mér hana  Við fórum svo í gær eftir vinnu að sækja Orðu en hún beið eftir okkur í hesthúsinu á Stórhóli ásamt hryssunni sem Elsa vinkona keypti. Það var svo mikill snjór að ekki var hægt að koma hestakerrunni að hesthúsinu en þá varð bara að teyma hana að kerrunni. Garðar bóndi á Stórhóli fékk það hlutverk að mýla hryssuna og þetta gekk vel en voru samt aðeins meiri læti en þegar ég mýldi Bratt úti á túni fyrir stuttu síðan  Þetta var nú ekkert sem stórbændur á Stórhóli kippa sér upp við enda gekk þetta svo bara stórvel. Hryssan hafði auðvitað aldrei fengið á sig múl og hvað þá taum með tveimur karmönnum á. Hún teymdist svo bara furðuvel að kerrunni og strákarnir voru ekki lengi að koma henni upp og loka. Við keyrðum svo kerruna upp að hesthúsinu á Blönduósi, ég krætki taum í múlinn hennar og svo labbaði hún bara inn. Þetta gekk eins og í sögu.Orða frá Stórhóligreyjið hún.. ég er auðvitað strax byrjuð að abbast upp á hana  Núna þarf ég að nota næstu daga vel til að mannvenja hana. Brattur minn var ekki alveg nógu sáttur við að þurfa allt í einu að deila stíunni sinni með öðru folaldi og er frekar vondur við hana en ég ætla rétt að vona að þetta jafni sig mjög fljótt og litla Orða mín fari að svara fyrir sig.Hérna eru eldri myndir af Orðu sem ég fæ að láni frá Maríönnu á Stórhóli:Eins og flestir örugglega vita þá fór Hugsýn mín undir Abraham frá Lundum II í sumar og var sónuð með fyli svo vonandi fæ ég folald að vori. Vinsælast væri að fá hryssu og það væri nú ekki leiðinlegt ef hún væri eins og þessi 4. vetra HugsýnardóttirHempa frá Holtabrún. F. Borði frá Fellskoti. Mynd Hulda G. Geirsd.Systir hennar Þökk frá Holtabrún er til sölu og það er búið að lækka verðið á henniFor Sale:A beautiful Icelandic mare, five years old. Trained for one winter, clear gaits, good spirit. Fully vet-checked and x-rayed last year. Confirmed in foal with 1st prize stallion Þristur frá Fet (also 1st prize for offspring)i. Could produce a very interesting colorful offspring next year. F: Mökkur frá Hólmahjáleigu 1st prize (son of Hilmir frá Sauðárkróki)M: Hugsýn frá Stóra-Sandfelli 2 (daughter of Kjarval frá Sauðárkróki)Price ISK 550.000 (ca. euro 3.700) - send me a message if you want more info :) Þrátt fyrir að vera búin að skrifa heil ósköp.. já eða allavega dæla inn myndum, þá eru aðalfréttirnar kannski að ég er á leiðinni til Budapest í 6 vikur ásamt fjölskyldunni  Ég ætla að vinna í lokaverkefninu mínu á þessum tíma og verð vonandi búin með verkefnið eða nálægt því þegarég kem aftur. Reiðhestarnir mínir verða úti þangað til ég kem til baka en þau verða drifin inn við fyrsta tækifæri því ég er skráð á námskeið sem verður byrjað áður en ég kem heim. Ég og Drungi ætlumað vera dugleg að vinna heimavinnuna okkar og stökkva inn í námskeiðið þegar ég kem til baka. Á meðan verða Brattur og Orða í plássunum mínum á Blönduósi en fara svo að Bjarghúsum í fóðrun.Ætli þetta sé ekki nóg af fréttum í bili.. ég er klárlega að skilja helling eftir en vonandi verð ég duglegri að koma með fréttir héðan í frá.</description>
Veðurblogg
      <description>Það er ekki alltaf tekið út með sældinni að búa í sveit  Það var búið að vara mig við slæmu veðri hérna á þriðjudag.. einfalda ég tók því bara sem heilögum sannleik og því kom veðrið mér á óvart sem blasti við mér í morgun. Ég lagði ekki í að fara á fólksbílnum í vinnuna svo jeppinn fékk hreyfingu. Veðrið var vægast sagt ógeðslegt og á leiðinni í vinnuna var ég farin að spá í því hvort ég væri sú eina sem hefði farið út úr húsi í morgun. Veðrið var nú alveg þess legt á Skagastrandarveginum  svo fór ég nú að mæta bílum svo það voru þá allavega fleiri bjánar á ferð en ég  Við Þórdís komumst loks í vinnuna, vorum meira en tvöfalt lengur en vanalega en komumst þó. Mér stóð ekki alveg á sama með allt þetta veður, það var bara alveg blint í morgun og ekki gæfulegt að þurfa að stoppa margsinnis úti á vegi því maður sá ekki húddið á bílnum.Ég ákvað að fara snemma heim úr vinnunni, fór rúmlega þrú, þar sem mér var sagt að það væri nú meiri hálka og ég ætti að reyna að drífa mig heim áður en það færi að hvessa en það á að auka mikið í vind. Ferðin um Skagastrandarveginn var mikið betri á heimleiðinni, því það var ekki svona blint eins og í morgun.Það var dálítill þæfingur á Mýrarbrautinni en ekkert mál samt en Skodi hefði átt í smá vandræðum með þetta held ég. Ég hitti Sindra á Neðri Mýrum við afleggjarann hans þar sem hann var að moka snjó af veginum með traktornum. Það var ágætt að vita að hann var með símann í vasanum ef ég myndi lenda í vandræðum. Þegar ég kom að afleggjaranum okkar var semi þokkalegt veður og ég sá að Bylting, folaldið og Vaka voru undir hólnum beint á móti afleggjaranum okkar. Þær voru orðnar innlygsa þar á milli skurða þar sem ég held að þær fari ekki yfir þessa skurði þegar það er búið að skafa svona mikið. Þau stóðu í mjög djúpum snjó og ég hafði áhyggjur af því að það færi allt á kaf þarna undir hólnum og þau kæmust ekki í burtu. Ég var með múl í bílnum svo ég sótti hann og ákvað að freista gæfunnar að ná annari merinni og teyma þær yfir girðinguna. Viti menn ég náði Byltingu sem ég hef aldrei náð úti fyrr. Það er eins og hún hafi viljað láta bjarga sér. Ég tók strauminn af í gær svo ég gat losað vírana úr einangrurunum og trampað vírinn niður undir snjóinn sem var nógu þéttur til að halda vírunum. Ég náði svo að teyma Byltingu yfir girðinguna og Vaka og folaldið eltu. Þau eru semsagt komin á gjöf líka þó að það hafi ekki verið ætlunin að Vaka færi á gjöf!  Hin reiðhrossin og Hugsýn eru á betri stað í girðingunni en þau eru í skurðstykkinu við veginn svo ég hef engar áhyggjur af þeim. En ég vil nú samt fá Hugsýn á gjöf líka þar sem hún er jú vonandi fylfull. Um leið og ég sleppti hryssunum varð veðrið vitlaust aftur! Þá var að koma sér heim! Ég keyrði upp afleggjarann en komst ekki nema að gamla hliðinu. Ég var að vona að ég kæmist nógu langt til að geta snúið við og haft bílinn í réttri aksturstefnu fyrir morgundaginn en það var ekki svo gott. Ég þurfti því að bakka allan afleggjarann til baka sem tók langann tíma með mig hálfa út úr bílnum því ég sá ekki neitt. Ég skildi semsagt bílinn eftir niður við hlið. Þá var að koma sér uppeftir. Þórdís var sofandi allan þennan tíma en var núna að rumska. Hún fór að gráta og það gekk ekkert að hugga hana. Ég var með matvörur með mér sem ég setti á snjóþotu og ætlaði að draga á eftir mér þar sem ég vissi að Þórdís gæti ekki verið á snjóþotunni í þessu veðri, ég yrði að halda á henni.Þórdís var mjög hrædd í þessum byl og það var mjög erfitt að halda á henni og draga snjóþotuna í þessari færð því snjórinn var ansi djúpur. Ég varð því að skilja þotuna eftir með matnum og halda á barninu heim. Ég kom gjörsamlega andlaus heim á hlað og klofaði yfir skaflinn við útidyrahurðina. Týri minn var rosalega glaður að sjá okkur eins og alltaf! Síminn hringdi og hringdi og það var Sindri að gá að okkur. Það er flott að eiga góða nágranna Ég fór svo út að ná í þotuna með vasaljós því það var farið að dimma töluvert. Þegar ég kom upp var komið að því að fara aftur út, í þetta skipti að kíkja á rafstöðina. Núna er ég bara dauðfegin að vera komin heim og inn! :) Hér er hlýtt og gott og nóg til af mat ef illa fer hehe.</description>
Fyrsti sunnudagur í aðventu
      <description>Þá er aðventan gengin í garð og vonandi verður hún bara notaleg og fín. Veðrið hefur verið mjög gott undanfarið og vonandi verður það gott áfram. Það spáir reyndar einhverjum leiðindum í þessari viku en það er bara spá, þarf ekki endilega að hafa neitt með veðrið að gera  Við tökum á því þegar að því kemur!Það er allt gott að frétta úr sveitinni, bæði af mönnum og dýrum. Hver vikan á fætur annari hverfur og kemur aldrei aftur. Nú styttist óðfluga í jólin og ég ætla sko að hafa það gott að aðventunni þar sem nú eru engin jólapróf að plaga mig! Ég er að vinna í lokaritgerðinni minni en það er ekki sama pressan og þessi blessuðu desemberpróf. Ég reyni samt að nýta dagana og komst t.d. aðeins áfram með verkefnið í síðustu viku  Ég er á leið suður í höfuðborgina í þessari viku ef færð og veður leyfa. Þetta verður nú bara stutt stopp en sjálfsagt vel nýtt eins og gerist yfirleitt þegar dreifbýlistúttur koma í bæjarferð. Eins og áður verða bæði Þórdís Katla og Týri með í för.  Við Þórdís Katla áttum frábæra helgi saman sem hófst á piparkökubakstri í leikskólanum á laugardagsmorgni. Þórdís Katla mætti í nýja jólasveinakjólnum sem amma og afi í Hveró voru að gefa henni.Seinnipartinn var svo kveikt á jólatrénu á Skagaströnd og við Þórdís Katla mættum þangað líka. Við látum okkur sko ekki vanta þangað sem von er á að jólasveinar láti sjá sig! Þórdís sofnaði í bílnum á leiðinni þangað og var hálf stúrin þegar við fórum út.Hún var lengi vel hálf feimin en svo þegar hún fann vinkonu sína af leikskólanum varð þetta rosalega gaman! Þær leiddust saman í kring um jólatréð.. algjörar dúllur! Birgitta vinkona þeirra var líka á svæðinu en hún er fótbrotin svo hún þurfti að horfa á. Jólasveinarnir komu svo í heimsókn og gáfu börnunum poka með gotteríi og gengu í kring um jólatréð. Við leigðum okkur svo eina DVD og sátum saman á laugardagskvöldi og horfðum á Rio og fengum laugardagsgotterí Þórdís Katla og Sigríður Kristín Í dag fórum ég svo í eftirlitsferð, bæði í rafstöðvarhúsið og upp að inntakinu og það lítur allt glymrandi vel út. Ég hafði með mér myndavélina og tók nokkrar myndir í leiðinni. Þórdís kom svo með mér að líta á hrossin og hún fékk far á snjóþotu sem var sko æðislegt að hennar mati! Hún skemmti sér konunglega á þotunni á sinni á meðan mamma dró.hrossin komu á móti okkurÞegar vi'ð komum til hrossanna varð myndavélin mín rafmagnslaus  Ég sem ætlaði loksins að mynda hrossin og veðrið var frábært í það. Ég verð bara að grípa næsta tækifæri í það.Ég ákvað að taka hana Grímu og Bratt fósturson hennar heim í dekur. Það er svo gott að eiga við hana Grímu að ég labbaði bara út í stykki með múl og sótti hana og Bratt og labbaði með þau heim. Síðan sótti ég traktorinn og náði mér í eina rúllu út í stæðu og opnaði fyrir þau. Þetta gat ég sko allt sjálf og er ógurlega montin  ég hef nefnilega látið Atla um það að gefa en þar sem ég er grasekkja þá gekk ég bara í málið sjálf. Og svona til að monta mig aðeins þá lenti rúllan alveg eins og til var ætlast og ég notaði traktorinn til að taka plastið ofan af henni.. alveg eins og Atli gerir alltaf  Það er nú samt eins gott að það var enginn til að fylgjast með aðförunum  Gríma og Brattur eru allavega komin með hey svo það eru allir sáttir. Hinar hryssurnar fara að koma á gjöf líka en það bíður þangað til Atli kemur heim og getur aðstoðað mig í þessu öllu saman.Ég myndir af hrossunum við fyrsta tækifæri! Nú styttist í að ég fari að taka Drunga og Vöku á hús og hlakka ógurlega til! Bóklegi hlutinn af knapamerkjunum er búinn svo nú er ég tilbúin í verklega jíhaaa  Ég er ekki enn búin að ganga frá kaupunum á nýju hryssunni "minni" svo það verða engar fréttir um hana að þessu sinni.. vonandi næst! </description>
Haustið í öllu sínu veldi
      <description>Jæja núna er ég eiginlega farin að skammast mín fyrir fréttaleysið. Ég er búin að vera ferlega löt við að setja inn fréttir en það er aðallega því ég hef ekki verið nógu dugleg að setja inn myndir.. þá gerist ekkert á fréttasíðunni heldur.Það er orðið svo langt síðan síðustu fréttir litu dagsins ljós að ég gleymi örugglega einhverju. Ég lofa að taka mig á og fara út með myndavélina á morgun og vera svo dugleg að hafa hana uppi við. Það hefur verið nóg að gera í vinnunni. Í síðustu viku fór ég til Reykjavíkur á fund og á námskeið. Í kjölfarið tók ég mér frí í vinnunni og stoppaði yfir helgi fyrir sunnan. Við Þórdís og Týri fengum gistingu hjá Dagnýju og Sigga og það fór ósköp vel um okkur. Þórdís fór svo í pössun í Hveragerði til ömmu og afa en ég nýtti helgina eins vel og ég gat í lokaritgerðina mína. Já mín er sko byrjuð að skrifa og gengur vel fyrir utan það að finna tíma í þetta. Það er að koma mynd á ritgerðina en það er ansi mikil vinna eftir í þetta.Þegar við Þórdís komum heim á sunnudeginum var ég nú ákveðin í að halda áfram með skrifin fyrst ég var komin á gott skrið en þegar ég kom inn í hús tók á móti mér lykt sem ég kunni ekki við. Þegar ég fór niður til að athuga málið steig ég inn á parket sem dúaði undan mér.. frábært, hérna hafði allt farið á flot. Fremsta herbergið í kjallaranum var þakið vatni og það hafði komist fram á gang og eyðilagt parketið. Ég taldi mig nú samt frekar heppna því í herberginu var svosum ekkert sem ekki mátti blotna. Ég fór bara í það að ausa vatni í fötur og hlaupa með út því niðurfallið í kjallaranum virkaði ekki . Ég gat því ekki notað vatnið og eina sem mér fannst koma til greina var að frárennslið frá húsinu væri stíflað vegna snjós. Þetta kvöld var því pissað úti og ekkert uppvask.Þegar ég kom heim úr vinnunni á mánudag var niðurfallið farið að virka.. ég var mjög glöð með það. Ég lét renna lengi úr krananum í eldhúsinu og viti menn, það kom ekkert vatn upp úr niðurfallinu. Til að halda upp á þetta skellti ég í þvottavél.. og viti menn.. kjallarinn fór á flot  ohh vandamálið var semsagt ennþá til staðar. Ég tók því fram föturnar aftur og jós og jós vatni. Þvottavélin dældi af sér nokkrum sinnum og alltaf þurfti ég að fara niður og halda áfram að ausa vatni. Svo þegar þetta var nú allt saman liðið hjá kveikti ég á kertum og ætlaði að setjast niður og skrifa smá í ritgerðinni minni  .. ég mundi þá eftir þvottinum í þvottavélinni og ákvað að fara niður með hann í þurrkarann. Mér til mikillar "hamingju" var kjallarinn aftur á floti!! Nú var ég búin að fá nóg, þetta var semsagt að koma að utan og kvöldið mitt var ekki búið! Ég hélt áfram að ausa og ausa og þegar ég horfði á vatnið koma jafnóðum upp um niðurfallið þá hringdi ég í nágranna minn og bað um aðstoð. Sindri á Neðri Mýrum kom til mín og hjálpaði mér að moka upp rörið frá húsinu. Sem betur fer hófst það og stíflan losnaði, ég hefði annars verið uppi alla nóttina að ausa vatni. Ég á nú svo mikið af góðum nágrönnum að Magnús á Syðri Hóli kom svo í vikunni og skipti um rafgeymi í jeppanum fyrir mig. Það var svosum ekki að spyrja að því að svona í tilefni af því að Atli væri að heiman þá gerði snjó og jeppinn stóð rafmagnslaus úti á hlaði.. frábært.. eintóm hamingja hjá mér Við fórum svo aftur suður í vinnuferð í þessari viku, aftur var það fundur og svo námskeið. Við Þórdís og Týri vorum hjá mömmu og pabba í þetta skiptið en fröken Samba fjárhundur verður bara að venjast því að í fjölskylduna er kominn annar hundur og það má ekki drepa hann.. sama hversu mikið hana langar til þess. Mamma og pabbi komu svo norður núna yfir helgina og fröken Samba var með í för. Helgin gekk nú mikið betur en ég átti von á svo ég hef engar áhyggjur af þessu lengur. Þau verða ágæt saman einn daginn. Þessi tík þarf bara að komast niður af silkipúðanum sínum og átta sig á því að hún er ekki prinsessa  Þórshamar Týri er sko kóngurinn í þessari sveit.Bóklega námskeiðið í knapamerkjunum eru á fullu um þessar mundir. Ég hlakka orðið rosalega til að fara að byrja á verklega eftir áramót. Ég er búin að finna pláss á Blönduósi fyrir Vöku og Drunga og get ekki beðið eftir því að taka á hús  Þórdís Katla ætlar að vera dugleg að koma með mér í hesthúsið og fara á hestbak. Útigangurinn hefur það gott hérna úti. Næg beit og veðrið frábært eins og er. Það var reyndar skítaveður hérna um daginn en það gleymist fljótt þegar veðrið skánar. Hrossin eru svo mjúk og fín þessa dagana og lyktin af þeim unaðsleg. Ég elska lykt af útigangshrossum.. ég er auðvitað bara svona klikkuð. Folöldin eru stór og spræk. Brattur er reyndar ekki jafn fallegur og Eðall, hann er samt ekki lítill og ræfilslegur en það þarf kannski að dekstra hann dálítið í vetur. Gríma mjólkar enn ofan í hann og þau eru eins og sönn mæðgin. Brattur er líka bara svo frábær karakter að ég held að ég muni ekki kynnast öðru eins folaldi, hann er bara æði  Mér finnst svo frábært að hann kemur til mans og þiggur knús og klór og hreinlega elskar athyglina. Pabbi setti svo rúllugreipina á ámoksturstækin í gær svo núna erum við Þórdís Katla tilbúnar að byrja að gefa þegar tíðin gefur tilefni til þess. Ég er aðeins búin að fikta í hestahlutanum á síðunni, en ég mun gefa mér meiri tíma til breytinga síðar. Ég þarf nú að búa til pláss fyrir nýjustu hryssuna  Við Elsa vorum aðeins að missa okkur á Skype um daginn og uppúr dúrnum komu smávegis hrossakaup. Þetta verður formlega kynnt síðar en það er bara gaman að þessari vitleysu. Ég er viss um að við Elsa verðum vel ríðandi hér í stóðréttunum eftir nokkur ár! Ég fékk óvæntan gest hingað áðan en bróðursonur afa frá Mánaskál, sem býr á Skagaströnd, kom í heimsókn og ætlaði að fá að sjá rafstöðina hans Atla. Þar sem Atli var ekki heima þá geymdi hann að skoða stöðina og kemur aftur síðar. Atli hefur sko bara gaman að því og ég held að mér sé óhætt að fullyrða að allir sem hafi áhuga á að sjá stöðina séu velkomnir í hemsókn.En núna er best að fara að sinna einhverjum húsverkum og setjast svo niður og skrifa  </description>
Haustið er komið
      <description>Ég held að haustið sé bara mætt til mín í Laxárdalinn. Allavega eru fjöllin grá dag eftir dag, rigningar og rok.. já ég held að ég geti sagt að haustið sé komið. Atli hefur verið að heiman, og það er ekki að spyrja að því.. alltaf er hann þar sem veðrið er töluvert betra. Við Þórdís erfum það nú ekki við hann lengi þar sem það verður nú gott að fá kallinn heim. Þórdís Katla er búin að vera lasin en þetta byrjaði í síðustu viku þegar hún fékk einhverja flensu, hún varð eiginlega aldrei alveg góð og var svo komin með eyrnabólgu um helgina. Hún er þó orðin spræk núna og er farin að fara aftur í leikskólann. Í dag var leikskólinn reyndar lokaður eftir hádegi og þá voru góð ráð dýr! Ég er búin að vera með móral yfir því að þurfa að vera fjarverandi frá vinnunni á meðan Þórdís Katla var lasin þar sem þetta þurfti akkúrat að hitta á sama tíma og Atli var að heiman. Svo þegar leikskólinn var með lokað í dag var ég orðin í klípu. Eftir nokkur símtöl og tilraunir til að redda deginum þá bjargaðist þetta í dag. Ein sem vinnur með mér er nefnilega amma bestu vinkonu hennar Þórdísar í leikskólanum og því var bara reddað að Þórdís Katla fékk að fara heim með Birgittu vinkonu sinni og leika við hana  Þegar ég sótti Þórdísi eftir vinnu þá vildi hún auðvitað ekkert smá mömmu sína og vildi bara vera áfram hjá Birgittu. Eftir miklar fortölur var ljóst að þessi slagur yrði ekki unninn og var barnið því borið út argandi hehe. Það var greinilega rosalega gaman að hjá Birgittu    Þessar stelpurófur fá nú alveg örugglega að leika sér eitthvað meira saman síðar.Við Þórdís Katla erum á leið suður á morgun til að sækja Atla. Við munum nú nýta ferðina í eitthvað skemmtilegt og gagnlegt og förum þar á meðal í smá hestaleiðangur í Grímsnesið. Týri kemur að sjálfsögðu með og fær eflaust að hitta einhverja fjölskyldumeðlimi. Týri hittir reyndar ekki Sömbu fjárhund í þessari ferð því mamma og pabbi verða ekki heima.. en í staðinn þá getur hann legið í bælinu hennar, étið nagbeinin og leikið með dótið hennar.. allt án þess að hún geti neitt við því gert! Greyjið Samban mín.Af hestamálum er það helst að frétta að við erum búin að selja Byltingu. Hún er á leið til Þýskalands þessi dama og ætlar að eiga folaldið sitt á þýskri grund í vor. Ég sem var akkúrat farin að monta mig yfir "stóðinu" mínu sem var farið að stækka. En ég efast ekki um að ég verði fljót að fylla í skarðið og fá mér eitthvað annað í staðinn! Nú styttist líka í að Eðall litli fari til síns heima, rosalega líður tíminn hratt. Hann er ferlega sætur og forvitinn þessi kappi og ég efast ekki um að eigandinn verði ánægð með hann. Ég fór út í dag og tók myndir af Byltingu og hinum hrossunum en ég get ekki sett neinar myndir inn fyrr en Atli er kominn til baka með fartölvuna okkar.Ég fór líka í smá leiðangur í dag á Neðri Mýrar en ég myndaði folöldin hans Einars. Hann fékk í ár nokkur fallega skjótt folöld undan Álfasteinssyninum Gimsteini frá Garðsá. Ég mun hjálpa honum að auglýsa þau á næstu dögum. Myndir koma eftir helgina!Hestamannafélagið á Blönduósi er að auglýsa knapamerkin sem ég er búin að bíða eftir í 3 ár að geta tekið! Ég er búin að skrá mig til leiks og viti menn.. ég skráði Atla líka!   Núna fær strákurinn bara eitthvað gott undir hnakkinn og er sendur á reiðnámskeið takk fyrir. Mér finnst eiginlega verst að hvert námskeið sé kennt allan veturinn. Ég hefði nefnilega viljað ná tveimur námskeiðum á einum vetri. Fyrir mig hefði verið betra að taka þetta hraðar og koma tveimur námskeiðum að. Ég er auðvitað búin að vera að bíða í 3 ár eftir að geta komist af stað aftur og núna á sko að gera allan heiminn! heheSíðustu helgi skellti ég mér í næstu sýslu í stóðréttir og á ball. Ég var að fara í fyrsta skipti í réttirnar í Víðidalnum og það var bara ansi gaman. Ég sá mikið af myndarlegum hrossum en ég heillaðist þó mest að tveimur folöldum frá Stórhóli en það var fyrst og fremst liturinn sem greip mig. Annað var rautt með hring í báðum augum, leit hálf geðveikislega út! og hitt brúnt með stórt vagl í báðum augum og smá leist. Mér finnst þessi augu alveg meiriháttar  Ása María mætti á sitt annað stóðréttarball þetta árið og geri aðrir "ekki-hestamenn" betur! Við Elsa og Ása kíktum í smá party á þarnæsta bæ eða eitthvað þannig og þaðan var svo farið á ball í Víðihlíð. Geirmundur lék fyrir dansi og ég verð nú alveg að segja að hann hefur nú einhvern tímann mátt sjá fífil sinn fegurri. Ég held að ég mæli nú með því að forsvarsmenn réttarballsins skoði það að yngja upp skemmtikraftana. Hann var auðvitað alveg ágætur og jafnvel góður inn á milli en heilt ball af þessu var eiginlega aðeins og fannst mér. Svo er ekki að spyrja að því að á sunnudegi var ég bara hress og spræk og fór snemma heim að taka við barninu mínu sem fékk ömmu Sveinbjörgu og afa Gunna í heimsókn til að leika við sig heila helgi! Ekkert smá heppin.Þetta blogg er alveg myndalaust en ég bæti úr því fljótlega eftir helgina en þá get ég farið að tæma myndavélina mína. Nýtt blogg kemur von bráðar  </description>
Réttir og fleira skemmtilegt
      <description>Það er alltaf nóg að gera á haustin í sveitinni og það sama á við um okkur þó við séum ekki með neinn eiginlegan búskap.Hérna voru réttir aðra helgina í september og við Þórdís Katla vorum einar heima í þetta skiptið. Við kíktum í réttirnar og sjáum fé og fólk.Ég reið eins mikið út og ég gat fyrir réttir og milli rétta til að hafa reiðhrossin í einhverju formi fyrir stóðreksturinn í tengslum við stóðréttirnar í Skrapatungu. Ég fékk Alexöndru frá Njálsstöðum til að passa Þórdísi á meðan ég reið út og fékk dásamlega daga til útreiða. Greyjið Vaka mín fékk að vinna fyrir matnum sínum sem var stundum dálítið erfitt með öll þessi aukakíló. Sissi mætti til okkar á miðvikudegi fyrir stóðréttirnar og bardúsaði með Atla hérna heima á bæ. Ása María kom svo á fimmtudegi til okkar í smá upphitun fyrir helgina því við skelltum okkur í reiðtúr á föstudeginum. Ása fékk þá að prufa Rák sem ég hafði ætlaði henni í reiðina á laugardeginum. Hún reið hryssunni eins og herforingi og var eiginlega betur ríðandi en við Sissi á köflum. Rák er bæði rúm og viljug svo hún eiginlega skildi okkur Sissa eftir stundum  Þó að Ása sé óvön og Rák viljug þá treysti ég henni fullkomlega. Ég get nú eiginlega ekki sleppt því að minnast á það þegar ég fór á kostum þennan föstudag. Mín var nefnilega að hjálpa Ásu að leggja á enda óvön manneskja á ferð. Það gekk ekki betur en svo að ég missti takið á móttakinu þegar ég var að reyna að girða og flaug afturfyrir mig og lá svo bara á bakinu  Við gátum alveg hlegið svolítið af þessu! Á föstudagskvöldinu keyrðum við Drunga á kerru á Strúgsstaði í Langadal þar sem við vorum með þrjú reiðhross en aðeins tveggja hesta kerru. Við tókum svo Vöku og Rák með okkur á laugardagsmorgun. Allt gekk þetta eins og í sögu, við vorum tímanlega og veðrið með besta móti. Að vanda var vel mætt að Strjúgsstöðum enda er hópurinn alltaf að stækka sem tekur þátt í þessum viðburði. Þórdís Katla hestastelpa fékk að prufa öll hrossin áður en við lögðum af staðVið Ása tilbúnar í slaginnSissiÞað var svo lagt af stað upp Strjúgsskarðið um tíu leitið. Upp skarðið er lengi vel ansi bratt fyrir hrossin og svo er brekkan líka bara endalaus. Þegar komið er upp mesta hallann heldur samt áfram aflíðandi brekka upp á við og manni finnst þetta ekki ætla að taka neinn enda.. allavega fannst Vöku minni það.. þó að ég hafi farið af baki og teymt hana hluta af brekkunni. Vaka svolítið móð eftir ferðina upp skarðiðÁsa á RákHúsfreyjan á Mánaskál og Sissi í KirkjuskarðiSéð frá MánaskálVið riðum bara heim að Mánaskál og létum það gott heita. Stóðið stoppar alltaf fyrir neðan bæ hjá okkur og það er svo stutt niður í rétt að mér finnst ekki taka því að fara lengra til þess að þurfa svo að ríða til baka. Í staðinn sprettum við bara af heima og njótum þess að horfa á stóðið og alla reiðmennina fara síðasta spölinn. Eins og sést örugglega á myndunum var sól og blíða, bara frábært veður!! Þessi ferð var bara frábær, allt gekk vel og veðrið toppaði þetta allt saman!Komin í hlað. Sissi á DrungaSissi og Atli hafa það gott á hlaðinu og fylgjast með stóðinuGangnamennNjálsstaða fólkRúnar mættur í kaffiAð þessu öllu loknu var auðvitað eldaður veislumatur en Sissi tók að sér að elda nautasteik ofan í okkur  Svo fengum við barnapíu og bílstjóra frá Njálsstöðum og skelltum okkur á ball með Pöpunum á Blönduósi sem var stórgóð skemmtun.Hjónaleysin á Mánaskál á balli.Ása í góðum gírSissi og DódóÁ sunnudeginum var réttað en fólk var eitthvað mis-hresst. Allavega fórum við Atli og Þórdís ein í réttirnar á meðan gestirnir sváfu. Við fengum svo góða heimsókn seinni partinn en Tryggvi sem vinnur hjá Icelandair kom í heimsókn. Hann er alltaf að smala í Svartárdal þessa helgi og kom nú og kíkti til okkar. Það er alltaf gaman að fá góða gesti en ég verð að nota tækifærið og minna á að það eru ansi margir sem enn eiga eftir að koma til okkar.. taki það til sín þeir sem eiga það  Ég ætla nú ekki einu sinni að minnast á fólkið sem lét ekki sjá sig þrátt fyrir fögur fyrirheit alveg síðan á sama tíma á síðasta ári.. uss og svei  Að hrossunum er annars allt gott að frétta. Ég verð voða kát þegar ég lít út um gluggana og sé stóðið mitt.. ég á nefnilega allt í einu heilt stóð. Allavega lítur þetta út fyrir að vera orðið stóð, ég er með 9 hausa sem er það mesta sem ég hef haft held ég. Reyndar eru þarna tvö folöld og þar af eitt selt. Gríma fósturmamma hans Bratts er svo líka bara gestur en það er sama, stóðið er myndarlegt á að líta  Í dag rifum við Atli undan reiðhestunum sem eru komnir í verðskuldaða pásu, Vaka var ekki svo heppin en hún á að koma inn fljótlega. Hún þarf ekki pásu núna þar sem hún er að koma úr óverðskulduðu árs fríi. Ég geri ráð fyrir að hún verði inni fram á vor en fær einhverja pásu samt í kring um áramót geri ég ráð fyrir. Svo þarf ég að velja fyrir hana einhvern fínan hest því ég ætla að gera aðra tilraun við að halda henni næsta vor. Vaka er búin að leggja heilmikið af en á samt langt í land!Drungi minn er búinn að vera lengi á járnum og á svo sannanlega skilið að fá frí. Kannski tek ég hann bara seint inn meira að segja, en er farin að hlakka til að taka hann inn aftur.Bylting er fylfull og verður úti í vetur. Ég geri svo ráð fyrir að taka hana undir hnakkinn eftir það ef hún verður ekki farin til nýrra eigenda.Eðall er seldur og fer til nýs eiganda í kring um áramótin. Hún verður eflaust lukkuleg með hann.Hugsýn er vonandi fylfull við Abraham frá Lundum II en hún var sónuð með fyli. Ég læt hugsanlega sóna hana aftur til að vera viss því mér fannst hún vera í hestalátum hérna heima rétt eftir að hún kom heim frá Abraham. Ég krossa putta og vona það besta!!Við Þórdís Katla sóttum Grímu og Bratt á Þingeyrar fyrir stuttu þar sem hún var hjá Vita frá Kagaðarhóli. Það gekk eins og í sögu að koma þeim upp á kerru enda er Brattur svo spakur og meðfærilegur að hann var bara settur upp á kerruna til hennar. Það var rosalega gaman að fá Bratt litla heim og hrossin tóku vel á móti þeim. Það er bara gaman að fylgjast með þessum litla sæta hesti.Þórdís Katla vex og dafnar og hefur það gott í sveitinni. Hún er dugleg á leikskólanum og fór meira að segja í gær í göngutúr með stóru deildinni. Hún er víst að stækka þessi elska.Þórdís Katla er orðin rosalega dugleg að hjólaAtli er á fullu að vinna í heima rafstöðinni. Hann er byrjaður að prufa og þetta virkar allt sem skyldi. Okkur til mæðu kom í ljós að gömlu rörin sem við erum að nota eru meira skemmd en við áttum von á og það þarf eitthvað að gera í því. Atli er þessa dagana að reyna að laga rörin svo við getum komið stöðinni af stað. Annars þarf að kaupa helling af rörum i viðbót og fara í framkvæmdir við að sjóða þau saman og koma þeim í jörðina. Versta er að það kostar ansi marga peninga!! Ég krossa putta og vona að Atli nái að laga gömlu rörin. Ég ætla að taka myndir af þessum framkvæmdum öllum á morgun því það er löngu kominn tími til að sýna myndir frá aðaláhugamáli húsbóndans, það hafa víst ekki allir áhuga á truntum á þesum bæ  Það er semsagt bara allt gott að frétta af litlu sveitafjölskyldunni. Ég er að reyna að komast af stað í lokaverkefninu mínu, það er bara eitthvað svo erfitt að byrja. Vonandi kemst ég svo á fljúgandi skrið og klára þetta fyrir áramót. Fullt af nýjum myndum í myndaalbumi!!</description>
Hundalíf
      <description>Núna hef ég tíðindi! Haldið þið að það sé ekki kominn hundur á heimilið. Núna er sko gaman hjá minni J Ég keyrði Atla suður á laugardaginn og sótti mér eitt stykki hund á bakaleiðinni. Þetta er enginn annar en Leiru Þórshamar Týri, gamall vinur okkar Skellu. Hann er orðinn 10 ára og sárvantaði heimili og mig "sárvantaði" hund. Týri lætur eins og heima hjá sér og virðist kunna vel við sig hérna. Mig minnir nú að hann hafi komið með mér hingað norður fyrir nokkrum árum en hann man nú varla eftir því.  Ég skellti mér í reiðtúr í gær og tók Týra með sem hafði bara gaman af því. Hann var stilltur og hlýddi vel. Eftir reiðtúrinn var hann látinn þorna niðri eins og alvöru sveitahundi sæmir áður en hann fékk að koma upp að skoða slotið. Týri svaf eins og engill i nótt, ekkert væl eða vesen á honum svo ég held að honum líði bara ágætlega hérna hjá okkur.  Svo finnst honum gott að borða og mér leiðist ekki að gefa matgæðingum að borða en ég lofa að passa mig. Hann er nefnilega nánast hringlóttur nú þegar J  Týri var svo einn heima í dag á meðan við Þórdís vorum í vinnu og leikskóla. Hann var því eðlilega mjög ánægður að sjá okkur þegar við komum heim. Þar sem Týri var búinn að vera einn allan daginn drifum við okkur út í girðingavinnu svo Týri gæti notið sín úti.  Svo stendur til að færa skjóttu hryssurnar í grasmeiri girðingu á morgun fyrst ég er búin að tjasla saman girðingunni J Það eru næg verkefni hjá okkur Þórdísi og Týra um þessar mundir. Týri þyrfti bara að geta passað Þórdísi fyrir mig á meðan ég ríð út, þá væri þetta fullkomið.  Þórdís Katla fékk far í hjólbörunumÞórdís vildi líka vera á myndinni!  Í dag var fyrsti vinnudagurinn þar sem ég var alein í nýja starfinu en nágrannakona mín frá Sturluhóli var að koma mér inn í ýmis mál áður en hún hverfur af landsfjórðunginum. Ég er mjög spennt fyrir vinnunni minni og hlakka til að takast á við þetta. Semsagt ef ég var ekki búin að minnast á þetta áður þá fékk ég semsagt áframhaldandi vinnu hjá Greiðslustofu á Skagaströnd og fékk ný og krefjandi verkefni. Svo styttist bara í réttir og göngur.. ég er farin að telja niður dagana í stóðréttirnar en ég er búin að vera að bíða eftir þeim síðan á mánudegi eftir stóðréttirnar í fyrra! Mæli sko með þessari ferð fyrir alla sem hafa gaman af því að ríða út  </description>
Haustið er að skella á
      <description>Jæja þá er þetta sumar nú eiginlega á enda þó að haustið sé nú ekki alveg komið samt. Það er nú bara allt í lagi þar sem sumarið var gott að það er margt að hlakka til haustsins líka. Þórdís er alsæl á leikskólanum þó að það sé stundum erfitt að vakna á morgnana og sérstaklega erfitt fyrir mömmuna að þurfa að vekja hana. En við þurfum víst að mæta á ákveðnum tíma svo það er ekki í boði að kúra frameftir á morgnana. Atli fer líka snemma á fætur til að sinna störfunum hérna heima en þessa dagana er það rafstöðin sem á hug hans allan. Rafstöðin er orðin samsett í rafstöðvarhúsinu fyrir neðan bæ og framhaldið er mjög spennandi. Atli prufaði stöðina fyrir nokkrum dögum og gat notað hana til að kveikja á ljósaperu svo hún er allavega farin að skila rafmagni. Núna er unnið að því að koma rafmagninu inn í hús svo stöðin geti farið að kynda fyrir okkur  Ég mun taka myndir af herlegheitunum og skella hér inn.Þórdís Katla leikskólastelpa. Eins og flestir kannski vita þá kom tökulið frá sjónvarspsþættinum Landanum til okkar í þarsíðustu viku og fékk að vita aðeins meira um okkur og hvernig stóð á því að við fluttum af suðvesturhorninu og hingað í Laxárdal. Hér er auðvitað bara gott að vera og maður var farinn að eltast við að koma hingað í öllum frístundum og því var mjög freistandi að fara bara norður. Það er skemmtilegt frá því að segja að við höfum fengið mjög jákvæð viðbrögð við þættinum. Fólk hefur stoppað okkur á förnum vegi, hringt og sent póst. Fólki finnst þetta greinilega aðdáunarvert að ungt fólk taki svona ákvörðun og ansi marga hefur dreymt um að gera eitthvað í þessa veru. Atli er búinn að fá símhringingar um sjónvarpsskilyrði og rafstöðina og leiðist það nú ekki að fá fólk í heimsókn gagngert til að skoða rafstöðina hjá honum  enda dálítið ánægður með gæluverkefnið sitt.Hér er hægt að sjá þáttinn: http://www.ruv.is/frett/ungt-par-i-eydidalAf hrossunum er allt gott að frétta. Drungi og Vaka eru komin heim eftir tvær ferðir yfir Kjöl. Drungi kom rosalega flottur til baka, ótrúlega spengilegur en Vaka auðvitað enn feit en þó var heilmikið farið af henni við hlaupin. Vaka var ekkert notuð en fékk bara að hlaupa með á meðan Drungi stóð sig víst vel í ferðinni. Núna styttist í göngur og stóðréttir svo ég tók mig til í dag og hreyfði öll reiðhrossin sem voru búin að fá smá pásu. Við þurfum að æfa okkur aðeins fyrir smölun svo ég geri mig ekki af fífli  ég þvælist vonandi ekki mikið fyrir. Bylting, Eðall, Hugsýn, Rák og Fluga stungu af héðan um daginn en allt í einu var hliðið á girðingunni opið og þau nýttu tækifærið. Atli kom að þeim við Balaskarð en hryssurnar vildu ekki láta ná sér enda mjög gaman að spretta um dalinn. Daginn eftir voru svo Rák og Fluga mættar hér niður á veg og við stungum þeim inn í girðingu aftur. Hugsýn, Bylting og folaldið voru hinsvegar hvergi sjáanleg og ætluðu að njóta frelsins aðeins lengur. Tveim dögum síðar keyrði ég fram á Hugsýn og Byltingu og gat þá tekið múlinn af Byltingu en það var óþægilegt að vita af henni með múl á sér. Að því loknu ákvað ég að hafa ekki frekari áhyggjur af þeim og leyfa þeim að ganga frjáls fram á haust. Nokkrum dögum síðar voru þær svo bara mættar heim svo það var ekki annað hægt en að stinga þeim inn í girðingu aftur líka. Núna er semsagt "allt" stóðið á Mánskál heimavið, heil 6 hross plús eitt folald.Reyndar er Brattur Birtusonur enn að heiman með Grímu fósturmömmu og ég veit ekki alveg hvenær hann kemur til baka.Síðustu helgi fengum við góðan hóp af fólki í heimsókn en það var búið að rukka ansi lengi um fjölskylduhátíð sem hingað til hefur verið nefnd Dalalíf innan fjölskyldunnar. Frænkurnar mínar komu í dalinn ásamt fríðu föruneyti og hér var slegið upp tjaldbúðum á hlaðinu, grillað, leikið og sungið og allir skemmtu sér frábærlega.Mér heyrðist á hópnum að þetta yrði klárlega endurtekið enda var þetta bara gaman og veðrið var algjörlega á okkar bandi. Núna er ég farin að telja niður í stóðréttirnar sem verður örugglega rosalega gaman líka. Ég var að heyra að Paparnir myndu spila á balli aftur en ég hef ekki fengið það staðfest opinberlega, ég vona innilega að það sé rétt! Ballið í fyrra með Pöpunum var snilld  Það verður örugglega fullt hús af fólki hjá okkur til að njóta helgarinnar með okkur og þar á meðal er Ása vinkona sem er algjörlega óvön en fór samt ríðandi með okkur í fyrra. Hún er svo kokhraust að hún ætlar að endurtaka leikinn! Hún er svo asskoti dugleg að leggja í þetta aftur!  Annars er allt gott að frétta af fjölskyldunni á Mánaskál.</description>
Heyskapur, kvennareiðtúr og fleira
      <description>Það er svosum ekki margt að frétta héðan úr sveitnni annað en það að sumarið líður allt of hratt! Heyskapur hófst þarsíðasta sunnudag og var búið að hirða allt á mánudeginum (8. ágúst). Einar á Neðri-Mýrum kom og rúllaði fyrir okkur eins og í fyrra og með í ferð var líklegur næsti ábúandi á jörðinni en Einar og Sonja eru að öllum líkindum að hætta að búa í haust.  Við Atli slóum svo sjálf og rökuðum. Mamma og pabbi voru hérna á sunnudeginum svo þau sáu um Þórdísi á meðan við Atli vorum bæði í heyskap á sitt hvorri dráttarvélinni  Ég sló meira að segja Suðurtúnið sjálf og var það í fyrsta skipti sem ég stýri sláttuvél. Ég stóð mig ágætlega held ég, allavega var túnið slegið og allar vélar heilar á eftir. Reyndar þótti ég víst fara heldur geyst en það varð semsagt smá misskilningur okkar Atla á milli þegar hann gaf mér bendingu um "2" með fingrunum og taldi ég auðvitað að ég ætti að fara í 2. gír en hann meinti víst að ég ætti að passa að halda mig í ca 2 þús snúningum. Það þurfti ekkert að minna mig á 2 þúsund snúningana því ég mundi eftir þeim fyrirmælum en fannst það heldur erfitt að fylgja eftir þegar ég var komin í 2. gír líka!! Enginn sagði neitt fyrr en eftir á svo ég sló bara túnið á fljútandi siglingu og fyrir þá sem vita hversu óslétt þetta tún er þá getið þið bara ímyndað ykkur hversu ljúf sú ferð var!   Atli að byrja að slá á Nesinu/Þríhyrnunaog túnið fyrir neðan vegSuðurtúnið.. Atli á gamla Zetor og Einar á aðeins nýrri græjuGamli rauði Zetorinn hans afa var notaður í heyskapinn og nú virka meira að segja flestir gírar, meira að segja bakkgírinn líka. Við Atli fórum nú t.d. á sunnudagskvöldið niður á Nesið fyrir neðan veiðihúsið til að snúa og slá meira og ég klæddi mig vel enda kalt úti og hvasst. Þegar við erum svo komin niður á tún bendir Atli mér í áttina að gamla Rauð, sem er jú opinn traktor, og ég var steinhissa.. ég ætlaði sko að sitja inni í Ferguson með húfuna mína og vetlingana en hefði klárlega farið í kuldagalla ef ég hefði vitað hann ætlaði að vera herramaður og láta mig snúa á húslausu dráttarvélinni! Þegar ég var orðin hálf kalin og farin að kvarta undan kulda fékk ég að fara inn í vél til Atla og viti menn.. það var meira að segja funheit miðstöð í traktornum hans!! Atla var sko hent út á gamla Zetor með það sama og ég fékk miðstöðina  Gamli fíni ZetorinnVið Atli fórum í heilmikla hrossasnúninga þar síðustu helgi áður en við fórum í heyskapinn því við keyrðum Drunga og Vöku í Skagafjörð. Þau eru síðan þá búin að vera í ferð um hálendið yfir Kjöl. Ég heyrði í Hjalta um helgina og Drungi var búinn að standa sig vel en Vaka fékk bara að hlaupa með suður þar sem hún var ekki í ástandi til að bera meira en sjálfa sig sem var vitað fyrirfram. Hún verður kannski notuð eitthvað á norðurleiðinni í þessari viku. Í sömu ferð fórum við alla leið í Eyjafjörðinn og sóttum Hugsýn sem er fengin við Abraham frá Lundum og Atli er búinn að panta brúnskjótta hryssu sem er hans uppáhaldslitur, nema að hann sé búinn að breyta því í brúna hryssu því hann er sammála mér að brún hross séu alltaf flottust á keppnisvellinum. Allavega þá óska ég innilega eftir hryssu, sérstaklega þar sem við keyrðum svo langt með hana undir hestinn og hún missti fylið sitt síðasta haust. Nú er kominn tími til að verða heppinn. Á heimleið úr Eyjafirðinum sóttum við svo Byltingu og Eðal en Bylting er fengin við Álfgrími frá Gullberastöðum og verður spennandi að sjá hvað hún gefur okkur á næsta ári. Álfgrímur, rauðskjóttur blesóttur 1. verðl. sonur Álfs frá Selfossi og 1. verðlauna hryssu.Bylting er svo til sölu ef einhver hefur áhuga. Myndir og upplýsingar um hana eru á síðu hér til hægri sem heitir hrossin og svo í myndaalbumunum. Nú ef hún selst ekki þá bíðum við bara spennt eftir fallegri skjóttri hryssu undan henni á næsta ári  Ég tók mig til í vikunni og myndaði Eðal aðeins fyrir nýja eigandann og setti myndirnar inn í myndaalbumið. Þetta er myndarlegur hestur með lausan gang og virðist nota tölt jafn mikið og brokk. Auk þess er hann mjög skynsemislegur og forvitinn og hún verður örugglega alsæl með hann á húsi í vetur. Reynar er hann nú svo greinilega móálóttskjóttur en ekki bleikálóttskjóttur eins og ég hallaðist að síðast. Þórdís byrjaði í leikskólanum Barnabæ á Skagaströnd síðastliðinn þriðjudag og það gengur eins og í sögu. Hún er mjög spennt fyrir því að fara á leikskólann og er stundum að biðja um að fara á leikskólann á kvöldin. Hún virðist hafa tekið þessum breytingum mjög vel og hún varla lítur á mann þegar maður er að kveðja hana á leikskólanum á morgnana. Svo gengur líka vel að hætta með bleyjuna, þetta er allt á réttri leið hjá okkur. Þórdís Katla sveitastelpa í heyskapAlvarleg með strá í munni Síðustu helgi var kvennareiðtúr hestamannafélagsins Þyts í Vestur Húnavatnssýslu. Við Elsa og Svala skelltum okkur í ferðina ásamt fleiri skvísum úr Víðidalnum og þetta var mjög skemmtilegt. Það er alltaf búningaþema í þessum ferðum og í þetta skipti var það ævintýraþema. Ég valdi að vera pocahontas og meira að segja saumaði mér búning takk fyrir! Ég sem aldrei tek þátt í neinu svona búningadóti sat og saumaði mér búning, fyrst með gömlu antík singer saumavélinni minni og svo í höndunum þegar Singer hætti að sauma. Úr varð þessi líka ágæti indjánastelpu kjóll og fléttur í hárið til að kóróna dressið. Ég tók Rák með mér í ferðina þar sem Drungi var á fjöllum með Vöku. Rák stóð sig mjög vel og var bara þrælskemmtileg í ferðinni. Vel viljug áfram og rúm á tölti og gaf yngri hestum ekkert eftir. Bara fínasta ferðahross þessi hryssa og örugglega bestu "kaup" sem ég hef gert. Myndir úr ferðinni eru væntanlegar en Elsa var myndasmiðurinn í ferðinni og ég á eftir að fá myndirnar hjá henni. Núna er ansi haustlegt hér fyrir norðan. Rigningarsuddi, vindur og frekar kalt. Ég hálf finn til með hrossunum mínum sem eru á Kili núna miðað við verðurspána út vikuna en kannski ætti ég frekar að vorkenna ferðamönnunum sem eru búnir að borga fyrir ferðina og fá þetta veður alla vikuna. Vonandi er bara ekki endalaus þoka hjá þeim svo þeir sjái nú eitthvað af hálendinu á leiðinni. Atli er á kafi í virkjanasmíðum. Núna er vatn farið að renna í gegn um rafstöðvarhúsið og hann er að leggja lokahönd á smíðin í kring um þetta. Það styttist því í að hann fari að pússla þessu saman niður í rafstöðvarhúsinu og þá fara hlutirnir að gerast  Vonandi verður stöðin komin í gagnið fyrir veturinn. Um helgina kom hingað hópur í hestaferð með Fannar járningamann með meiru í fararbroddi. Ég var akkúrat í kvennareiðinni og missti af þessari heimsókn. Eitthvað heyrðist mér að ég hafi boðið upp á óþarflega mikla beit fyrir ferðahrossin en þau hafa örugglega bara haft gott af því að fá vel að éta eftir langt ferðalag. Þetta sýnir nú bara að ég eigi ekki nóg af hrossum fyrst hólfin mín eru vel loðin seinnipart sumars  Ég vona að hópurinn hafi svo ekki villst í þokunni sem beið þeirra á sunnudagsmorgninum. Ég hef allaveg ekki frétt af hópi villtum hér á afrétti svo líklega eru Fannar og co komin á leiðarenda. Annað er ekki fréttnæmt í þetta skiptið held ég. Ég þarf að vera duglegri að taka myndir og reyni að bæta úr því á næstunni.</description>